1. gr.
Markmið.
Markmið reglugerðar þessarar er að tryggja farþegum víðtæka vernd gegn hættu sem steðjar að öryggi þeirra vegna flugrekenda er ekki uppfylla viðeigandi öryggiskröfur og tryggja gagnsæi upplýsinga um þá flugrekendur sem sæta banni eða takmörkunum á starfrækslu innan Evrópska efnahagssvæðisins.
2. gr.
Gildissvið.
Reglugerð þessi gildir um flutninga á farþegum í lofti ef flugið er hluti af farsamningi og flutningur hefst á Evrópska efnahagssvæðinu, og
Reglugerðin tekur til flugs hvort sem um áætlunar- eða leiguflug er að ræða.
3. gr.
Ábyrgð á framkvæmd.
Flugmálastjórn Íslands ber ábyrgð á framkvæmd reglugerðar þessarar í samræmi við 2. ml. 1. mgr. 3. gr. í fylgiskjali II við reglugerð þessa. Stofnunin annast miðlun upplýsinga skv. 3. mgr. 4. gr. og 9. gr. í fylgiskjali II og 1. mgr. 3. gr., 5. gr. og 6. gr. í fylgiskjali III og 3. gr. í fylgiskjali IV við reglugerð þessa.
Flugmálastjórn Íslands skal í samræmi við 2. mgr. 9. gr. í fylgiskjali II við reglugerð þessa birta á heimasíðu sinni á íslensku og ensku lista yfir þá flugrekendur sem sæta banni eða takmörkunum á starfrækslu innan Evrópska efnahagssvæðisins og annast uppfærslu listans um leið og honum er breytt af hálfu Evrópubandalagsins með vísan til 5. gr. laga nr. 60/1998 um loftferðir með síðari breytingum.
Flugmálastjórn Íslands ber ábyrgð á framkvæmd ákvæða reglugerðar þessarar er lúta að neytendavernd í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 574/2005 um gildistöku reglugerðar EB nr. 261/2004 um sameiginlegar reglur um skaðabætur og aðstoð til handa farþegum sem neitað er um far og þegar flugi er aflýst eða mikil seinkun verður og um að fella úr gildi reglugerð (EBE) nr. 295/91.
4. gr.
Innleiðing gerða.
Með reglugerð þessari öðlast gildi eftirfarandi reglugerðir Evrópuþingsins og ráðsins með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka samningsins og bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans:
5. gr.
Viðurlög.
Brot gegn ákvæðum reglugerðar þessarar varða refsingu samkvæmt 141. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum.
6. gr.
Gildistaka.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 2. mgr. 3. gr., 1. mgr. 4. gr. og 5. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Samgönguráðuneytinu, 3. mars 2008.
Kristján L. Möller.
Ragnhildur Hjaltadóttir.
Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)