1. gr.
Við 3. tl. 4. gr. reglugerðarinnar bætast tveir nýir stafliðir, o og ó, sem orðast svo:
o. |
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 590/2010 frá 5. júlí 2010. |
|
ó. |
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1071/2010 frá 22. nóvember 2010. |
2. gr.
Viðaukar A og B við reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 791/2010 frá 6. september 2010 um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 474/2006 frá 22. mars 2006 um að stofna skrá Bandalagsins yfir flugrekendur sem bannað er að stunda flugrekstur innan Bandalagsins sem um getur í II. kafla reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2111/2005 í fylgiskjali IV við reglugerðina falla niður.
3. gr.
Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi eftirfarandi reglugerðir framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka samningsins og bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans:
4. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 2. mgr. 3. gr., 1. mgr. 4. gr. og 5. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.
Innanríkisráðuneytinu, 4. nóvember 2011.
Ögmundur Jónasson.
Ragnhildur Hjaltadóttir.