1. gr.
Við 3. tl. 4. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður j, sem orðast svo:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 298/2009 frá 8. apríl 2009.
2. gr.
Viðauki A og B við reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1131/2008 frá 14. nóvember 2008 um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 474/2006 frá 22. mars 2006 um að stofna skrá Bandalagsins yfir flugrekendur sem bannað er að stunda flugrekstur innan Bandalagsins sem um getur í II. kafla reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2111/2005 í fylgiskjali IV við reglugerðina falla niður.
3. gr.
Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 298/2009 frá 8. apríl 2009 um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 474/2006 frá 22. mars 2006 um að stofna skrá Bandalagsins yfir flugrekendur sem bannað er að stunda flugrekstur innan Bandalagsins sem um getur í II. kafla reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2111/2005 með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka EES-samningsins, bókun 1, um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans, sem merkt er fylgiskjal I með reglugerð þessari.
Fylgiskjal I með reglugerð um aðgerðir til að tryggja flugöryggi og skrá yfir flugrekendur er ekki uppfylla viðeigandi öryggiskröfur, nr. 277/2008 birtist með reglugerð þessari sem fylgiskjal II.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 2. mgr. 3. gr., 1. mgr. 4. gr. og 5. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.
Samgönguráðuneytinu, 27. apríl 2009.
Kristján L. Möller.
Ragnhildur Hjaltadóttir.
Fylgiskjöl.(sjá PDF-skjal)