1. gr.
Við 3. tl. 4. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður s, sem orðast svo: Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1146/2012 frá 3. desember 2012.
2. gr.
Viðaukar A og B við reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 295/2012 frá 3. apríl 2012 um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 474/2006 frá 22. mars 2006 um að stofna skrá Bandalagsins yfir flugrekendur sem bannað er að stunda flugrekstur innan Bandalagsins sem um getur í II. kafla reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2111/2005 í fylgiskjali IV við reglugerðina falla niður.
3. gr.
Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1146/2012 frá 3. desember 2012 um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 474/2006 frá 22. mars 2006 um að stofna skrá Bandalagsins yfir flugrekendur sem bannað er að stunda flugrekstur innan Bandalagsins sem um getur í II. kafla reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2111/2005 með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka EES-samningsins, bókun 1, um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 20, 28. mars 2012, bls. 723.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 2. mgr. 3. gr., 1. mgr. 4. gr. og 5. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.
Innanríkisráðuneytinu, 3. apríl 2013.
Ögmundur Jónasson.
Ragnhildur Hjaltadóttir.