1. gr.
Eftirfarandi breytingar eru gerðar á reglugerð um aðgerðir til að tryggja flugöryggi og skrá yfir flugrekendur er ekki uppfylla viðeigandi öryggiskröfur nr. 277/2008:
a) |
Við 3. tl. 4. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður g, sem er svohljóðandi: |
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 331/2008 frá 11. apríl 2008. |
|
b) |
Fylgiskjal I með reglugerð þessari kemur í stað fylgiskjals I við reglugerðina. |
c) |
Viðauki A og B við reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 474/2006 frá 22. mars 2006 um að stofna skrá Bandalagsins yfir flugrekendur sem bannað er að stunda flugrekstur innan Bandalagsins sem um getur í II. kafla reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2111/2005 í fylgiskjali IV við reglugerðina falla niður. |
2. gr.
Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 331/2008 frá 11. apríl 2008 um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 474/2006 frá 22. mars 2006 um að stofna skrá Bandalagsins yfir flugrekendur sem bannað er að stunda flugrekstur innan Bandalagsins sem um getur í II. kafla reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2111/2005 með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka EES-samningsins, bókun 1, um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans, sem merkt er fylgiskjal V með reglugerð þessari.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 2. mgr. 3. gr., 1. mgr. 4. gr. og 5. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 sem síðari breytingum og öðlast þegar gildi.
Samgönguráðuneytinu, 22. apríl 2008.
Kristján L. Möller.
Ragnhildur Hjaltadóttir.
Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)