1. gr.
Við c-lið 4. gr. reglugerðarinnar bætast nýir töluliðir, 44, 45 og 46, sem orðast svo:
2. gr.
Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi eftirtaldar gerðir:
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/661 frá 2. desember 2022 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2111/2005 um sameiginlegar viðmiðanir sem hafa ber í huga í tengslum við innleiðingu eða afléttingu flugrekstrarbanns á vettvangi Sambandsins, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 73 frá 15. mars 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 34, frá 25. apríl 2024, bls. 749-752.
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2691 frá 29. nóvember 2023 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 474/2006 að því er varðar skrá yfir flugrekendur sem bannað er að stunda flugrekstur eða sæta rekstrartakmörkunum innan Sambandsins, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 138 frá 12. júní 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 65, frá 29. ágúst 2024, bls. 436-454.
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1601 frá 30. maí 2024 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 474/2006 að því er varðar skrá yfir flugrekendur sem er bannað að stunda flugrekstur eða sæta rekstrartakmörkunum innan Sambandsins, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 217 frá 23. september 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 85, frá 21. nóvember 2024, bls. 367-384.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 3. mgr. 228. gr. laga um loftferðir, nr. 80/2020, og öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 22. nóvember 2024.
F. h. r.
Árni Freyr Stefánsson.
Vala Hrönn Viggósdóttir.