1. gr.
Við 3. tl. 4. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður t, sem orðast svo:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 659/2013 frá 10. júlí 2013, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 205/2013.
2. gr.
Niður skulu falla viðaukar A og B í fylgiskjali IV við reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1146/2012 frá 3. desember 2012 um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 474/2006 frá 22. mars 2006 um að stofna skrá Bandalagsins yfir flugrekendur, sem bannað er að stunda flugrekstur innan Bandalagsins, sem um getur í II. kafla reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2111/2005.
3. gr.
Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 659/2013 frá 10. júlí 2013 um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 474/2006 frá 22. mars 2006 um að stofna skrá Bandalagsins yfir flugrekendur sem bannað er að stunda flugrekstur innan Bandalagsins sem um getur í II. kafla reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2111/2005, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka EES-samningsins, bókun 1, um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans, sbr. ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar nr. 205/2013 frá 8. nóvember 2013. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 64, 14. nóvember 2013, bls. 342.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 2. mgr. 3. gr., 1. mgr. 4. gr. og 5. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.
Innanríkisráðuneytinu, 16. desember 2013.
Hanna Birna Kristjánsdóttir.
Ragnhildur Hjaltadóttir.