1. gr.
Gildissvið.
Reglugerð þessi gildir um alla starfsemi sem fellur undir lög nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, með síðari breytingum, þar sem efni sem talin eru upp í mengunarmarkaskrá, sbr. viðauka I, myndast eða eru notuð.
2. gr.
Orðskýringar.
Í reglugerð þessari er merking eftirfarandi hugtaka sem hér segir:
3. gr.
Mengun haldið í lágmarki.
Vinnu skal skipuleggja og framkvæma þannig að mengun sé eins lítil og kostur er. Mengun í andrúmslofti starfsmanna skal ekki fara yfir mengunarmörk sem gefin eru upp í mengunarmarkaskrá, sbr. viðauka I. Við mengun frá fleiri en einu efni skal tekið tillit til samverkandi áhrifa. Við mat á mengun skal taka tillit til áreynslu við vinnu auk loftmengunar og einnig að sum efni geta borist inn í líkamann gegnum húð. Slík efni eru merkt með bókstafnum H í mengunarmarkaskrá, sbr. viðauka I.
Þegar mengunarmörk eru miðuð við meðaltal yfir átta stunda vinnudag, sbr. b-lið 2. gr., má styrkur mengunar á hverju tímabili (hæst fimmtán mínútna tímabili) þó aldrei fara yfir sem svarar tvisvar sinnum þau mengunarmörk sem um ræðir.
4. gr.
Aðgerðir til að draga úr mengun.
Þegar mengun er yfir mengunarmörkum skal þegar í stað grípa til aðgerða til að draga úr mengun. Þegar ekki er ljóst hvort mengun er yfir mengunarmörkum skulu aðstæður rannsakaðar þegar í stað með tilliti til þess. Leiði rannsókn í ljós að mengun er yfir mengunarmörkum skal þegar gripið til aðgerða til að draga úr mengun uns hún er komin undir viðmiðunarmörk.
Við fyrirbyggjandi aðgerðir, eða aðgerðir til að draga úr mengun skal leitast við að beita þeim aðgerðum er hér fara á eftir í eftirfarandi röð:
Þegar gripið hefur verið til aðgerða skv. a-e-liðum 2. mgr. skal framkvæma mengunarmælingar til að kanna hvort um fullnægjandi aðgerðir hafi verið að ræða nema ljóst sé að svo hafi verið þannig að mengun sé undir viðmiðunarmörkum.
Þegar ekki er unnt að grípa til aðgerða skv. a-e-liðum 2. mgr. eða á annan hátt þarf að draga úr mengun eða þær aðgerðir sem gripið hefur verið til eru ófullnægjandi skal nota nauðsynlegan hlífðarbúnað, svo sem öndunargrímur. Vinnu skal þá skipuleggja þannig að notkun öndunargríma valdi starfsmönnum sem minnstum óþægindum.
Vinnurými sem mengun getur myndast í skal hafa góða loftræstingu og skal aðflutt loft vera eins hreint og kostur er.
Tæknibúnað sem valdið getur mengun skal hanna og útbúa þannig að eftirlit og hreinsun sé auðveld. Reglubundið eftirlit og hreinsun skal framkvæma í því skyni að hindra myndun og dreifingu mengunar.
Vinnurými skal skipuleggja þannig að auðvelt sé að halda því hreinu. Hreinsa skal jafnóðum upp efni sem hefur farið til spillis. Í því skyni að koma í veg fyrir mengun og slysahættu skal ennfremur hreinsa reglulega ryk sem hefur sest til.
5. gr.
Eftirlit.
Vinnueftirlit ríkisins hefur eftirlit með framkvæmd reglugerðar þessarar, sbr. 82. gr. laga nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, með síðari breytingum.
6. gr.
Kæruheimild.
Heimilt er að kæra ákvarðanir Vinnueftirlits ríkisins sem teknar eru á grundvelli reglugerðar þessarar til félags- og tryggingamálaráðuneytis innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðunina, sbr. 98. gr. laga nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, með síðari breytingum.
7. gr.
Viðurlög.
Brot á ákvæðum reglugerðar þessarar varða ákvæði 99. gr. laga nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, með síðari breytingum.
8. gr.
Gildistaka.
Reglugerð þessi sem sett er samkvæmt heimild í 38. og 51. gr. laga nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, með síðari breytingum, að fenginni umsögn stjórnar Vinnueftirlits ríkisins og umhverfisráðuneytis, til innleiðingar á tilskipun nr. 91/322/EBE, um setningu leiðbeinandi viðmiðunarmarka til framkvæmdar á tilskipun ráðsins nr. 80/1107/EBE um verndun starfsmanna gegn áhættu vegna efna-, eðlis- og líffræðilegra áhrifavalda á vinnustöðum, sem vísað er til í 3. lið XVIII. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, á tilskipun nr. 2000/39/EB, um gerð fyrstu skrár um leiðbeinandi viðmiðunarmörk fyrir váhrif í starfi við framkvæmd tilskipunar ráðsins nr. 98/24/EB um að tryggja öryggi og vernda heilsu starfsmanna gegn áhættu vegna efnafræðilegra áhrifavalda á vinnustað, sem vísað er til í 16. lið XVIII. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið og á tilskipun nr. 2006/15/EB, um gerð annarrar skrár yfir leiðbeinandi viðmiðunarmörk fyrir váhrif í starfi við framkvæmd tilskipunar ráðsins nr. 98/24/EB og um breytingu á tilskipunum nr. 91/322/EBE og nr. 2000/39/EB, sem vísað er til í 3. lið XVIII. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 30/2007, öðlast þegar gildi.
Reglur nr. 154/1999, um mengunarmörk og aðgerðir til að draga úr mengun á vinnustöðum, og reglur nr. 917/2001, um breytingu á þeim, falla jafnframt úr gildi.
Félags- og tryggingamálaráðuneytinu, 2. apríl 2009.
Ásta R. Jóhannesdóttir.
Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir.
VIÐAUKI
(sjá PDF-skjal)