I. KAFLI
Húsnæðismál.
1. gr.
Reglugerð um húsaleigubætur nr. 118/2003, með síðari breytingum, sbr. reglugerðir nr. 378/2008, 1222/2011 og 1205/2012, fellur brott.
II. KAFLI
Málefni barna.
2. gr.
Reglugerð um starfsháttu barnaverndarráðs nr. 49/1994 fellur brott.
III. KAFLI
Málefni félagsþjónustu sveitarfélaga.
3. gr.
Reglugerð um daggæslu í heimahúsum nr. 198/1992 fellur brott.
IV. KAFLI
Málefni fatlaðs fólks.
4. gr.
Reglugerð um svæðisskrifstofu málefna fatlaðra nr. 273/1993 fellur brott.
Reglugerð um stjórnarnefnd málefna fatlaðra og Framkvæmdasjóð fatlaðra nr. 204/1994 fellur brott.
Reglugerð um svæðisráð málefna fatlaðra nr. 606/1998 fellur brott.
Reglugerð um trúnaðarmenn fatlaðs fólks nr. 172/2011 fellur brott.
V. KAFLI
Gildistaka.
5. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 31. gr. laga um húsnæðisbætur nr. 75/2016, 101. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002, 34. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, ákvæði til bráðabirgða VII, VIII og X í lögum um málefni fatlaðs fólks, nr. 59/1992, og ákvæði til bráðabirgða I í lögum um réttindagæslu fatlaðs fólks, nr. 88/2011, öðlast þegar gildi.
Velferðarráðuneytinu, 4. janúar 2018.
Ásmundur Einar Daðason
félags- og jafnréttismálaráðherra.
Ellý Alda Þorsteinsdóttir.