I. KAFLI
Almenn ákvæði.
1. gr.
Markmið.
Markmið þessarar reglugerðar er að stuðla að auknu öryggi í flugi með bættri flugvernd og viðeigandi ráðstöfunum til að koma í veg fyrir ólöglegar aðgerðir sem beinast gegn almenningsflugi.
2. gr.
Gildissvið.
Reglugerð þessi gildir um eftirfarandi eftirlitsskylda aðila:
Ráðstafanir sem mælt er fyrir um í þessari reglugerð skulu gilda um millilandaflugvöll sem jafnframt er landamærastöð á Íslandi. Ráðstafanirnar skulu ekki gilda um innanlandsflug milli flugvalla á íslensku yfirráðasvæði, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 69/2009, frá 29. maí 2009.
Viðauki sem fylgir reglugerð þessari skal vera hluti hennar.
3. gr.
Orðskýringar.
Í þessari reglugerð er merking eftirfarandi hugtaka sem hér segir:
Aðgangseftirlit/aðgangsstýring (Access control): Beiting aðgerða til að koma í veg fyrir aðgang óviðkomandi aðila og/eða óleyfilegra ökutækja.
Aðili (Entity): Einstaklingur, stofnun eða fyrirtæki að undanskildum umráðanda eða flugrekanda.
Almenningsflug (Civil Aviation): Flug í samræmi við reglur sem settar eru af flugmálayfirvöldum og starfrækt undir eftirliti eða stjórn Flugmálastjórnar Íslands fyrir allt flug annað en herflug. Almenningsflug tekur hvort tveggja til atvinnuflugs og einkaflugs.
Bakgrunnsathugun (Background Check): Athugun á því hver einstaklingur er og upplýsingum lögreglu um sakaferil hans, þ.m.t. hvort hann eigi afbrotaferil að baki, sem lið í mati á því hvort óhætt er að heimila honum aðgang að haftasvæði flugverndar án fylgdar og viðkvæmum trúnaðarupplýsingum um flugvernd.
Bannaður hlutur (Prohibited Article): Vopn, sprengiefni eða önnur hættuleg tæki, hlutir eða efni sem nota má til að fremja ólöglegt athæfi sem stofnar flugvernd í almenningsflugi í hættu. Viðmiðunarskrá yfir bannaða hluti af þvi tagi er að finna í viðauka við reglugerð þessa.
Birgðir til notkunar um borð (In-flight Supplies): Neysluvörur eða vörur sem eru til sölu um borð í loftfari.
Flugleiðsöguþjónusta (Air Navigation Services): Með flugleiðsöguþjónustu er átt við flugumferðar- og fjarskiptaþjónustu, leiðsögu- og kögunarþjónustu, veðurþjónustu fyrir flugleiðsögu og upplýsingaþjónustu flugmála.
Flugrekandi (Air Carrier): Fyrirtæki sem stundar flutninga í lofti og hefur gilt flugrekstrarleyfi eða sambærilegt leyfi.
Flugsvæði (Airside): Athafnasvæði á flugvelli, aðliggjandi landsvæði og byggingar eða hlutar af þessu þar sem aðgangur er takmarkaður.
Flugvallarbirgðir (Airport Supplies): Allir hlutir sem ætlunin er að selja, nota eða gera tiltæka á haftasvæði flugverndar á flugvöllum.
Flugvernd (Aviation Security): Sambland af ráðstöfunum og mannlegum og náttúrulegum úrræðum til að vernda almenningsflug gegn ólöglegum aðgerðum.
Flugverndaráætlun (Aviation Security Programme): Skipulag og reglur samkvæmt því um varúðarráðstafanir, viðbrögð og tækjaviðbúnað sem settar eru fyrir tiltekið svæði, t.d. ríki eða einstaka flugvelli og ætlað er að vernda almenningsflug gegn ólögmætum afskiptum.
Flugverndarfulltrúi (Security Officer): Fulltrúi eftirlitsskylds aðila sem samþykktur er af flugmálayfirvöldum og ábyrgur fyrir að leiðbeina, innleiða og framfylgja flugverndaráætlun. Flugverndarfulltrúi starfar sem sérstakur trúnaðarmaður flugmálayfirvalda varðandi flugverndarmál.
Haftasvæði flugverndar (Security Restricted Area): Hluti flugsvæðis þar sem öðrum kröfum um flugvernd er beitt til viðbótar við takmarkaðan aðgang. Þessi svæði ná að jafnaði m.a. yfir öll brottfararsvæði farþega á milli skimunarstaða og loftfars, hlaðs, flokkunarsvæða farangurs, farangursskála, póststöðva og athafnasvæða fyrir ræstingar og flugvistir.
Handfarangur (Cabin Baggage): Farangur sem er ætlaður til flutnings í farþegarými loftfars.
Lestarfarangur (Hold Baggage): Farangur sem er ætlaður til flutnings í lest loftfars.
Samþykki vegna flugverndar (Security Approval): Sérstakt samþykki útgefið af Flugmálastjórn Íslands vegna flugverndar, þar sem staðfest er að fullnægjandi flugverndaraðgerðum sé lýst í viðeigandi flugverndaráætlun.
Skimun (Screening): Beiting tæknilegra aðferða eða annarra aðferða til að bera kennsl á og/eða finna bannaða hluti.
Skráður sendandi (Account Consignor): Sendandi sem sendir farm eða póst fyrir eigin reikning og þar sem verklagsreglur hans uppfylla sameiginlegar reglur og kröfur um flugvernd nægilega vel til að unnt sé að flytja farm eða póst með fraktvél eingöngu.
Umráðandi (Operator): Einstaklingur, stofnun eða fyrirtæki sem annast eða býðst til að annast flutninga í lofti.
Viðkvæmasti hluti haftasvæðis flugverndar á flugvelli (Critical Part of Security Restricted Areas of Airport): Skilgreint og afmarkað svæði innan haftasvæðis flugverndar á flugvelli, t.d. landgangur, landgöngubrú, hreint svæði innan flugstöðvar o.s.frv.
Viðurkenndur birgir birgða til notkunar um borð (Regulated Supplier of in-flight Supplies): Birgir sem viðhefur verklagsreglur sem uppfylla sameiginlegar reglur og kröfur um flugvernd þannig að unnt sé að afhenda birgðir til notkunar um borð beint um borð í loftfarið.
Viðurkenndur umboðsaðili (Regulated Agent): Flugrekandi, umboðsaðili, farmmiðlun eða einhver annar aðili sem hefur með höndum flugverndareftirlit í tengslum við farm eða póst.
Þekktur birgir birgða til notkunar um borð (Known Supplier of in-flight Supplies): Birgir sem viðhefur verklagsreglur sem uppfylla sameiginlegar reglur og kröfur um flugvernd þannig að unnt sé að afhenda flugrekanda eða viðurkenndum birgi birgðir til notkunar um borð en ekki beint um borð í loftfarið.
Þekktur birgir flugvallarbirgða (Known Supplier of Airport Supplies): Birgir sem viðhefur verklagsreglur sem uppfylla sameiginlegar reglur og kröfur um flugvernd þannig að unnt sé að flytja flugvallarbirgðir inn á haftasvæði flugverndar.
Þekktur sendandi (Known Consignor): Sendandi sem sendir farm eða póst fyrir eigin reikning og þar sem verklagsreglur hans uppfylla sameiginlegar reglur og kröfur um flugvernd þannig að unnt er að flytja farm eða póst með hvaða loftfari sem er.
Önnur haftasvæði flugverndar (Other Restricted Areas): Stofnanir, þjónustuaðilar, tilgreind svæði eða mannvirki o.fl. sem mikilvæg eru fyrir flugstarfsemi, þ.m.t. vernd flugleiðsögu, og Flugmálastjórn Íslands hefur skilgreint sem önnur haftasvæði flugverndar í flugverndaráætlun Íslands, svo sem Flugstjórnarmiðstöð í Reykjavík og flugturnar á millilandaflugvöllum; jafnframt loftskeytastöðvar, ratsjárstöðvar, móttöku- og sendistöðvar fyrir flugfjarskipti, flugvitar, vararafstöðvar og eldsneytisbirgðastöðvar sem þjóna millilandaflugvöllum, eftir því sem við á.
4. gr.
Eftirlitsstjórnvald.
Flugmálastjórn Íslands er tilnefnt eftirlitsstjórnvald samkvæmt reglugerð þessari og annast tilkynningar til Eftirlitsstofnunar EFTA á grundvelli reglugerðarinnar, nema annað sé tekið fram.
Flugmálastjórn Íslands skal sjá um gerð og að viðhalda flugverndaráætlun Íslands og þjálfunaráætlun Íslands vegna flugverndar til að tryggja að fylgt sé ákvæðum reglugerðar þessarar. Stofnunin ber ábyrgð á samræmingu og eftirliti með framkvæmd áætlananna. Jafnframt skal stofnunin sjá um gerð og framkvæmd áætlunar um gæðaeftirlit með flugvernd í almenningsflugi.
Flugmálastjórn Íslands skal sjá til þess að eftirlitsskyldur aðili samkvæmt 2. gr. geri flugverndaráætlun og komi sér upp gæðakerfi fyrir sína starfsemi. Með flugverndaráætlun skal fylgja lýsing á gæðakerfi hins eftirlitsskylda aðila þar sem fram kemur m.a. hvernig innra eftirliti hans sé háttað og hvernig tryggt sé að kröfur reglugerðar þessarar, flugverndarráðstafanir og verklagi hins eftirlitsskylda aðila sé framfylgt. Flugverndaráætlanir skulu samþykktar af Flugmálastjórn Íslands og sæta eftirliti stofnunarinnar.
Flugmálastjórn Íslands skal sjá til þess að rekstraraðili flugleiðsöguþjónustu leggi fram flugverndar- og þjálfunaráætlun til samþykkis þar sem lýst er flugverndarráðstöfunum, aðgangsstýringu og þjálfunarmálum, samkvæmt 16. gr.
Flugmálastjórn Íslands skal sjá til þess að eftirlitsskyldur aðili samkvæmt 2. gr. geri þjálfunaráætlun um flugvernd í almenningsflugi. Eftirlitsskyldur aðili samkvæmt 1. og 2. tölulið 2. gr. skal skila inn þjálfunaráætlun vegna flugverndar samhliða flugverndaráætlun. Eftirlitsskyldur aðili samkvæmt 3. tölulið 2. gr. skal lýsa þjálfun starfsmanna og hvernig henni er háttað. Eftirlitsskyldur aðili er ábyrgur fyrir því að starfsfólk hans sem hefur flugverndarlegt hlutverk sé með fullnægjandi þjálfun samkvæmt flugverndaráætlun Íslands, þjálfunaráætlun Íslands vegna flugverndar og ákvæðum reglugerðar þessarar, sbr. reglugerð (ESB) nr. 185/2010 um ítarlegar ráðstafanir til að framfylgja sameiginlegum grunnkröfum um flugvernd, með síðari breytingum.
Flugmálastjórn Íslands skal innleiða og annast gæðaeftirlit með flugvernd og gera viðeigandi úttektir á flugverndarráðstöfunum með aðferðum gæðastjórnunar og samkvæmt bestu starfsvenjum.
Flugmálastjórn Íslands er heimilt að fela sjálfstæðum vottunaraðilum að hafa eftirlit með framkvæmd afmarkaðra þátta flugverndar hér á landi. Flugmálastjórn skal hafa eftirlit með að vottunaraðilar starfi í samræmi við ákvæði laga um loftferðir og reglugerð þessa.
Flugmálastjórn Íslands er heimilt að setja frekari fyrirmæli um verklag einstakra þátta í almenningsflugi, í flugverndaráætlun Íslands, sem aðeins verður birt viðeigandi aðilum.
5. gr.
Úttekt Eftirlitsstofnunar EFTA.
Eftirlitsstofnun EFTA hefur heimild til að framkvæma úttektir á flugverndareftirliti í samvinnu við Flugmálastjórn Íslands á íslenskum millilandaflugvöllum og hjá eftirlitsskyldum aðilum sem beita flugverndarráðstöfunum, í þeim tilgangi að fylgjast með beitingu reglna um flugvernd hér á landi, í samræmi við ákvæði reglugerðar þessarar.
Farið skal með tilkynningu Eftirlitsstofnunar EFTA um skoðun sem trúnaðarmál til að tryggja að skoðunarferlið skaðist ekki. Eftirlitsaðilar stofnunarinnar skulu hafa aðgang að öllum gögnum sem nauðsynleg eru til að meta hvort farið sé að sameiginlegum kröfum um flugvernd.
6. gr.
Sameiginlegar grunnkröfur.
Sameiginlegar grunnkröfur um að verja almenningsflug gegn ólöglegu athæfi sem stofnar flugvernd í almenningsflugi í hættu skulu vera eins og mælt er fyrir um í reglugerð (EB) nr. 300/2008 um sameiginlegar reglur um flugvernd í almenningsflugi og um niðurfellingu á reglugerð (EB) nr. 2320/2002, með síðari breytingum (hér eftir nefnd reglugerð (EB) nr. 300/2008), sbr. 1. mgr. 61. gr.
Flugmálastjórn Íslands er heimilt að veita undanþágur frá sameiginlegum grunnkröfum um flugvernd sem um getur í reglugerð þessari, sbr. reglugerð (EB) nr. 300/2008 og reglugerð (EB) nr. 1254/2009 og samþykkja annars konar verndarráðstafanir sem veita fullnægjandi vörn á grundvelli staðbundins áhættumats á flugvelli eða afmörkuðu svæði flugvallar þar sem umferð takmarkast við einn eða fleiri eftirfarandi flokka:
Flugmálastjórn Íslands er heimilt að kveða á um sérstakar verklagsreglur um flugvernd eða veita undanþágur frá vörn (protection) og flugvernd á flugsvæðum flugvalla, í samræmi við ákvæði reglugerðar (ESB) nr. 185/2010 um ítarlegar ráðstafanir til að framfylgja sameiginlegum grunnkröfum um flugvernd (hér eftir nefnd reglugerð (ESB) nr. 185/2010), sbr. þó viðmiðanir um frávik sem settar eru fram í reglugerð (EB) nr. 272/2009 um viðbót við sameiginlegar grunnkröfur um flugvernd í almenningsflugi sem mælt er fyrir um í viðaukanum við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 300/2008, sbr. 1. mgr. 61. gr.
Flugmálastjórn Íslands er heimilt að gera ráðstafanir sem eru strangari en sameiginlegu grunnkröfurnar, sem um getur í 1. mgr., kveða á um. Slíkar ráðstafanir skulu gerðar á grundvelli áhættumats, vera viðeigandi, hlutlægar, án mismununar og í réttu hlutfalli við áhættuna sem um ræðir, sbr. ákvæði laga um loftferðir og samnings um Evrópska efnahagssvæðið.
Flugmálastjórn Íslands skal tilkynna Eftirlitsstofnun EFTA um ráðstafanir skv. 2. og 4. mgr.
II. KAFLI
Flugvernd á flugvöllum.
7. gr.
Skipulagning flugvalla.
Rekstraraðili flugvallar er ábyrgur fyrir flugverndarráðstöfunum á og við flugvöll og skal hann skilgreina haftasvæði flugverndar og önnur svæði á flugvellinum í samræmi við flugverndaráætlun Íslands og ákvæði reglugerðar þessarar, sbr. 61. gr. Skilgreiningu svæða skal lýst í flugverndaráætlun flugvallarins og skal hún samþykkt af Flugmálastjórn Íslands.
Rekstraraðili flugvallar er ábyrgur fyrir aðgangsstýringu inn á flugvöllinn; eftirliti og eftirlitsferðum á skilgreindum svæðum sem eru hluti af flugvellinum og verndun mannvirkja. Flugmálastjórn Íslands er heimilt að leyfa sérstakar flugverndarráðstafanir eins og þeim er lýst í flugverndaráætlun Íslands, á flugvöllum þar sem færri en eitt áætlað millilandaflug er frá flugvellinum að meðaltali á dag.
8. gr.
Haftasvæði flugverndar.
Haftasvæði flugverndar skal a.m.k. taka til eftirfarandi svæða:
Á flugvelli þar sem fleiri en 40 starfsmenn hafa aðgangsheimild inn á haftasvæði flugverndar skal skilgreina svæði samkvæmt 1. mgr. sem viðkvæmasta hluta haftasvæðis flugverndar á flugvelli.
9. gr.
Önnur haftasvæði flugverndar.
Rekstraraðili flugleiðsöguþjónustu, stofnun, fyrirtæki og þjónustuaðili, með starfsemi utan flugvallarsvæðis, svo sem Flugstjórnarmiðstöð Reykjavíkur og flugturnar sem þjóna millilandaflugvelli samkvæmt 3. gr., skulu skilgreina önnur haftasvæði flugverndar í samræmi við flugverndaráætlun Íslands.
Aðili samkvæmt 1. mgr. er ábyrgur fyrir aðgangsstýringu inn á önnur haftasvæði flugverndar sem skilgreind hafa verið og skal hafa eftirlit með henni.
10. gr.
Aðgangur í heimildarleysi.
Ef talið er að aðili hafi í heimildarleysi farið inn á viðkvæmasta hluta haftasvæðis flugverndar eða haftasvæði flugverndar skal rýma svæðið; framkvæma nákvæma skoðun á því og skima aðila inn á það að nýju, samkvæmt kröfum þar um.
III. KAFLI
Samþykki vegna flugverndar.
11. gr.
Skylda til umsóknar um samþykki.
Rekstraraðili flugvallar með útgefið starfsleyfi af Flugmálastjórn Íslands; flugrekandi með útgefið flugrekendaskírteini af Flugmálastjórn Íslands sem og aðrir aðilar sem veita þjónustu og hafa flugverndarlegt hlutverk, skulu hafa samþykki vegna flugverndar frá stofnuninni. Óheimilt er að gefa út starfsleyfi, flugrekendaskírteini eða annað sambærilegt skírteini til handa aðila sem veitir þjónustu og hefur flugverndarlegt hlutverk, nema að fengnu samþykki vegna flugverndar.
Eftirtaldir aðilar skulu sækja um samþykki vegna flugverndar:
Flugrekandi sem hefur samþykki Flugmálastjórnar Íslands vegna flugverndar telst hafa stöðu sem viðurkenndur umboðsaðili enda uppfylli hann skilyrði samkvæmt 6. kafla reglugerðar (ESB) nr. 185/2010.
12. gr.
Umsókn um samþykki.
Umsókn um samþykki skal senda Flugmálastjórn Íslands með eftirfarandi upplýsingum:
13. gr.
Flugverndar- og þjálfunaráætlun.
Aðili sem sækir um samþykki vegna flugverndar, sbr. 11.-12. gr. skal leggja fram flugverndaráætlun með þjálfunaráætlun vegna flugverndar sem greinir hvernig viðkomandi aðili uppfyllir ákvæði reglugerðar þessarar. Samþykki vegna flugverndar samkvæmt 11. og 12. gr. tekur einnig til samþykkis flugverndaráætlunar.
14. gr.
Gæðakerfi.
Eftirlitsskyldur aðili skal hafa gæðakerfi fyrir þá starfsemi sem hann sinnir. Gæðakerfi skal uppfylla kröfur flugverndaráætlunar Íslands og lýsa m.a. skipulagi flugverndarmála, flugverndarþjálfun, ábyrgð á framkvæmd, verklagi og sérstökum flugverndaraðgerðum. Gæðakerfi skal vera í samræmi við ákvæði reglugerðar (EB) nr. 300/2008, með síðari breytingum.
15. gr.
Skilyrði samþykkis.
Heimilt er að veita samþykki vegna flugverndar þegar:
Heimilt er að veita samþykki vegna flugverndar til allt að 5 ára í senn. Um umsókn um endurnýjun samþykkis fer samkvæmt 12. gr. og skal hún berast eigi síðar en 30 dögum áður en gildandi samþykki fellur niður.
16. gr.
Samþykki flugverndaráætlunar rekstraraðila flugleiðsöguþjónustu.
Rekstraraðili flugleiðsöguþjónustu skal leggja fram flugverndaráætlun sína til samþykktar til Flugmálastjórnar Íslands.
Rekstraraðili flugleiðsöguþjónustu skal undanþeginn skilyrði samkvæmt 1. mgr. ef fyrir hendi er samþykkt flugverndaráætlun rekstraraðila flugvallar með útgefið starfsleyfi af Flugmálastjórn Íslands sem einnig greinir flugverndaráætlun vegna aðflugsstjórnarþjónustu og flugturnsþjónustu.
17. gr.
Samþykki flugverndaráætlunar erlendra flugrekenda.
Flugrekandi með útgefið flugrekandaskírteini frá erlendu ríki sem flýgur áætlunarflug milli Íslands og erlends ríkis skal leggja fram flugverndaráætlun sína til Flugmálastjórnar Íslands með hæfilegum fyrirvara, áður en flug er hafið. Flugmálastjórn Íslands skal samþykkja verkferla vegna strangari krafna samkvæmt 6. gr., ef við á.
Flugrekandi með útgefið flugrekandaskírteini frá erlendu ríki sem flýgur óreglubundið flug milli Íslands og erlends ríkis, fleiri en fjögur flug yfir tveggja mánaða skeið, skal einnig leggja fram flugverndaráætlun sína til samþykktar með hæfilegum fyrirvara, fyrir áætlað flug.
18. gr.
Svipting samþykkis.
Heimilt er að svipta handhafa, samþykkis vegna flugverndar, verði hann uppvís að brotum gegn ákvæðum laga og/eða reglna og talið er, með hliðsjón af eðli brotsins og atvikum öllum, eða annars framferðis aðila eða starfsmanns hans, varhugavert að hann hafi samþykki. Heimilt er að svipta handhafa samþykki tímabundið eða að fullu og öllu leyti við ítrekuð brot.
Ákvörðun um sviptingu skal rökstudd og handhafa samþykkis gefinn kostur á að neyta andmælaréttar áður en endanleg ákvörðun er tekin í samræmi við ákvæði stjórnsýslulaga. Heimilt er að svipta samþykki vegna flugverndar tímabundið á meðan meðferð máls stendur.
Hafi handhafi samþykkis verið sviptur samþykki samkvæmt þessari grein er honum óheimil starfræksla samkvæmt starfsleyfi, flugrekandaskírteini eða öðru sambærilegu skírteini til handa aðila sem veitir þjónustu og hefur flugverndarlegt hlutverk. Flugmálastjórn Íslands skal í slíkum tilvikum afturkalla starfsleyfi viðkomandi aðila, flugrekandaskírteini eða annað sambærilegt skírteini til handa aðila sem veitir þjónustu og hefur flugverndarlegu hlutverki að gegna. Flugmálastjórn hefur jafnframt heimild til að takmarka starfsemi handhafa samþykkis samkvæmt þessari grein eða loka svæðum, þegar í stað, ef alvarlegt frávik greinist við úttekt viðkomandi aðila, óháð því hvort mál bíður kærumeðferðar samkvæmt stjórnsýslulögum.
19. gr.
Flugverndarfulltrúi.
Aðili með samþykki vegna flugverndarráðstafana skal tilnefna flugverndarfulltrúa sem ábyrgur er fyrir að innleiða og framfylgja flugverndaráætlun aðilans. Flugverndarfulltrúinn skal samþykktur af Flugmálastjórn Íslands og vera sérstakur trúnaðarmaður stofnunarinnar, varðandi flugverndarmál. Tilnefndur flugverndarfulltrúi skal hafa forræði á flugverndarmálum innan fyrirtækis, vera óháður annarri starfsemi innan þess og skal honum tryggt sjálfstæði í starfi.
Tilkynna skal með minnst 10 daga fyrirvara sé ætlunin að skipta um tilnefndan flugverndarfulltrúa og allar breytingar á upplýsingum og samskiptaupplýsingum um hann.
Flugverndarfulltrúi skal hafa undirgengist bakgrunnsathugun samkvæmt reglugerð þessari fyrir tilnefningu.
IV. KAFLI
Tilnefning aðila vegna flugverndar,
skráðir sendendur og þekktir birgjar.
20. gr.
Skráður sendandi.
Viðurkenndur umboðsaðili skal tilnefna skráðan sendanda sem sendir farm eða póst fyrir eigin reikning að því gefnu að verklagsreglur skráða sendandans uppfylli sameiginlegar reglur og kröfur um flugvernd nægilega vel til að unnt sé að flytja farm eða póst með farmvél eingöngu.
Til að verða tilnefndur sem skráður sendandi gildir eftirfarandi málsmeðferð:
Skráður sendandi skal framkvæma flugverndarráðstafanir í samræmi við ákvæði reglugerðar (ESB) nr. 185/2010.
21. gr.
Þekktur birgir birgða til notkunar um borð í loftfari.
Aðili, sem hefur með höndum flugverndareftirlit, sem um getur í 8. kafla reglugerðar (ESB) nr. 185/2010, og afhendir birgðir til notkunar um borð, en ekki beint um borð í loftfar, skal tilnefndur sem þekktur birgir af hálfu fyrirtækis sem hann afhendir birgðirnar. Fyrirtæki sem afhent er til skal vera samþykkt sem viðurkenndur birgir.
22. gr.
Flugverndareftirlit þekkts birgis birgða til notkunar um borð í loftfari.
Þekktur birgir skal:
23. gr.
Þekktur birgir flugvallarbirgða.
Aðili, sem afhendir vöru inn á haftasvæði flugverndar og hefur með höndum flugverndareftirlit, sem um getur í 24. gr. og afhendir flugvallarbirgðir, skal tilnefndur sem þekktur birgir af hálfu rekstraraðila flugvallarins.
24. gr.
Flugverndareftirlit þekkts birgis flugvallarbirgða.
Þekktur birgir flugvallarbirgða skal:
V. KAFLI
Aðgangsheimildir.
25. gr.
Almennt um aðgangsheimildir.
Einstaklingi, ökutæki og vinnuvél skal einungis heimil ferð inn á og um flugsvæði flugvallar, að því tilskildu að fyrir liggi gild heimild eða leyfisbréf og lögmæt ástæða til að vera þar.
Til að fá aðgang að haftasvæði flugverndar skal einstaklingur framvísa einni af eftirfarandi heimildum:
Um nánari kröfur til aðgangsheimilda einstaklinga og ökutækja vísast til reglugerðar (ESB) nr. 185/2010, með síðari breytingum.
26. gr.
Umsókn um aðgang að haftasvæði flugverndar.
Vinnuveitandi eða einstaklingur sem þarf starfa sinna vegna að hafa aðgang að haftasvæði flugverndar skal sækja um aðgang til rekstraraðila flugvallar. Umsókn um aðgangskort að haftasvæði flugverndar samkvæmt c-lið 2. mgr. 25. gr. skal vera á þar til gerðu eyðublaði sem rekstraraðili flugvallar ákveður og liggur frammi á skrifstofu viðkomandi flugvallar, hjá rekstraraðila flugvallar eða flugrekanda. Í umsókn skulu koma fram nauðsynlegar upplýsingar samkvæmt 27. gr. til að staðfesta megi bakgrunn viðkomandi umsækjanda. Vinnuveitandi skal sækja um aðgangskort fyrir starfsmann sinn.
Flugrekandi sem hyggst gefa út áhafnarkort til einstaklings samkvæmt b-lið 2. mgr. 25. gr., skal óska eftir því að farið verði fram á bakgrunnsathugun á viðkomandi einstaklingi hjá ríkislögreglustjóra. Í beiðni um bakgrunnsathugun skulu koma fram nauðsynlegar upplýsingar samkvæmt 27. gr. til að staðfesta megi bakgrunn viðkomandi starfsmanns. Flugrekanda er óheimilt að gefa út áhafnarkort til einstaklings nema að fenginni jákvæðri umsögn ríkislögreglustjóra úr bakgrunnsathugun.
Með umsókn um aðgang að haftasvæði flugverndar og beiðni um bakgrunnsathugun frá flugrekanda skal leggja fram skriflega heimild einstaklings fyrir öflun nauðsynlegra gagna t.d. frá lögreglu til að tryggja megi að fullnægjandi bakgrunnsathugun geti farið fram, sbr. 27. gr. Rekstraraðili flugvallar og flugrekandi skulu senda beiðni um bakgrunnsathugun til ríkislögreglustjóra, á þar til gerðu eyðublaði sem ríkislögreglustjóri ákveður, til að unnt verði að framkvæma bakgrunnsathugun á einstaklingi í samræmi við 27. gr. Heimilt er að óska frekari upplýsinga ef nauðsyn krefur.
Einstaklingi er óheimilt að sækja námskeið í flugverndarþjálfun nema að fenginni jákvæðri umsögn við bakgrunnsathugun samkvæmt 27.-29. gr. Með umsókn um námskeið í flugverndarþjálfun skal liggja fyrir staðfesting ríkislögreglustjóra á jákvæðri umsögn um umsækjanda við bakgrunnsathugun.
Hafi viðkomandi verið búsettur erlendis á síðastliðnum 5 árum skal hann leggja fram þau gögn sem óskað er til þess að unnt sé að leggja mat á umsókn hans svo sem sakavottorð eða sambærileg vottorð frá erlendu stjórnvaldi þar sem hann hefur verið búsettur eða dvalið. Erlendur ríkisborgari skal leggja fram viðurkennt sakavottorð frá heimaríki eða því ríki sem viðkomandi hefur haft búsetu í, síðastliðin 5 ár áður en hann fluttist til Íslands. Sakavottorð skal dagsett innan þriggja mánaða frá dagsetningu umsóknar.
Nú eru lögð fram gögn sem ekki teljast nægjanleg til að hægt sé að meta viðkomandi og hann hefur ekki sinnt ítrekaðri beiðni um frekari gögn eða upplýsingar og skal þá rekstraraðili flugvallar hafna umsókn.
Óheimilt er að ráða einstakling til starfa, sem þarf starfsins vegna að hafa aðgang að haftasvæði flugverndar, nema að undangenginni bakgrunnsathugun, samkvæmt 27. gr. Rekstraraðili flugvallar sem gefur út heimild til tímabundins aðgangs að haftasvæði flugverndar til einstaklings, skal ábyrgjast að viðkomandi einstaklingur sé ávallt í fylgd með aðila sem hlotið hefur heimild til aðgangs að haftasvæði flugverndar að undangenginni bakgrunnsathugun samkvæmt 27. gr. og heimild rekstraraðila flugvallar til að fylgja einstaklingi um haftasvæði flugverndar.
Einstaklingur skal njóta gagnkvæmrar viðurkenningar á bakgrunnsathugun lögreglu sem hann hefur hlotið í öðru ríki, geti hann sýnt fram á það með viðeigandi gögnum, sé eftir því óskað. Ríkislögreglustjóri getur ákveðið að einstaklingur sem hlotið hefur bakgrunnsathugun lögreglu í öðru ríki skuli engu að síður gangast undir bakgrunnsathugun ríkislögreglustjóra hér á landi, áður en hann fær heimild til aðgangs að haftasvæði flugverndar samkvæmt reglugerð þessari.
Kröfur samkvæmt þessari grein gilda jafnframt um umsóknir inn á önnur haftasvæði flugverndar og um áhafnarkort sem flugrekandi gefur út.
27. gr.
Bakgrunnsathugun.
Athuga skal a.m.k. 5 ár aftur í tímann, frá dagsetningu umsóknar samkvæmt 26. gr., bakgrunn hvers einstaklings sem þarf starfa sinna vegna að hafa aðgang að haftasvæði flugverndar til að unnt sé að leggja mat á hvort heimila eigi aðgang án fylgdar. Athugunin skal framkvæmd af ríkislögreglustjóra og m.a. felast í skoðun á viðkomandi í skrám lögreglu, þ.m.t. málaskrá lögreglu, skoðun á sakavottorði; upplýsingakerfi Interpol; SIS-upplýsingakerfinu; upplýsingum úr Þjóðskrá; eftir atvikum fyrirspurnum til erlendra yfirvalda; skoðun hjá tollyfirvöldum; héraðsdómi og í öðrum opinberum skrám. Ríkislögreglustjóri getur falið öðrum lögregluembættum framkvæmd bakgrunnsathugana. Rekstraraðili flugvallar og flugrekandi skulu tryggja að bakgrunnsathugun sé endurtekin með reglulegu millibili og eigi sjaldnar en á 5 ára fresti. Að auki er ríkislögreglustjóra heimilt, að eigin frumkvæði eða samkvæmt beiðni rekstraraðila flugvallar eða flugrekanda, að gera úrtaksathugun á þeim aðilum sem staðist hafa bakgrunnsathugun, eins lengi og aðgangsheimildir þeirra eru í gildi. Jafnframt er ríkislögreglustjóra heimilt að hafa eftirlit með skráningum bakgrunnsathugaðra einstaklinga í málaskrá lögreglu, eins lengi og aðgangsheimildir þeirra eru í gildi. Rekstraraðili flugvallar og flugrekandi skulu tilkynna ríkislögreglustjóra um starfslok viðkomandi einstaklings sem hlotið hefur bakgrunnsathugun hjá embættinu svo eftirliti með honum í málaskrá lögreglu samkvæmt framangreindu megi ljúka.
Ríkislögreglustjóri skal skrá einstakling sem fengið hefur bakgrunnsathugun í málaskrá lögreglu. Komi í ljós að einstaklingur sem hlotið hefur bakgrunnsathugun, brýtur af sér eftir að athugun átti sér stað, skal ríkislögreglustjóri, þegar í stað, upplýsa rekstraraðila flugvallar eða flugrekanda ef um alvarlegt brot er að ræða sem getur haft áhrif á flugöryggi og, eftir atvikum, afturkalla jákvæða umsögn sem veitt hefur verið vegna bakgrunnsathugunar. Rekstraraðili flugvallar eða flugrekandi skal þá, þegar í stað, gera ráðstafanir til að afturkalla heimild viðkomandi einstaklings til aðgangs að haftasvæði flugverndar, sbr. 7. mgr. Rekstraraðili flugvallar eða flugrekandi getur afturkallað heimild viðkomandi einstaklings til aðgangs að haftasvæði flugverndar tímabundið á meðan kærumeðferð máls fer fram samkvæmt 7. mgr.
Með bakgrunnsathugun skal m.a. kanna og staðfesta:
Ríkislögreglustjóri skal upplýsa rekstraraðila flugvallar og flugrekanda um niðurstöður úr bakgrunnsathugun með jákvæðri eða neikvæðri umsögn um viðkomandi einstakling.
Komist ríkislögreglustjóri að þeirri niðurstöðu að veita beri einstaklingi neikvæða umsögn vegna umsóknar um aðgang að haftasvæði flugverndar, á grundvelli bakgrunnsathugunar, skal ríkislögreglustjóri upplýsa einstakling um fyrirhugaða neikvæða umsögn og gefa honum kost á að óska eftir rökstuðningi ríkislögreglustjóra. Óski einstaklingur eftir rökstuðningi skal ríkislögreglustjóri rökstyðja niðurstöðu sína og gefa einstaklingi kost á að neyta andmælaréttar í samræmi við ákvæði stjórnsýslulaga. Komist ríkislögreglustjóri að þeirri niðurstöðu, eftir að einstaklingur hefur veitt andmæli, að umsögnin sé enn neikvæð, skal sú ákvörðun tilkynnt einstaklingi sem og rekstraraðila flugvallar eða flugrekanda. Rekstraraðili flugvallar skal þá þegar tilkynna vinnuveitanda hans að umsókn um aðgang að haftasvæði flugverndar sé hafnað á grundvelli neikvæðrar umsagnar ríkislögreglustjóra. Í ákvörðun ríkislögreglustjóra skal leiðbeint um kæruheimild til ráðherra flugmála samkvæmt 59. gr.
Rekstraraðila flugvallar er óheimilt að veita einstaklingi sem hlotið hefur neikvæða umsögn við bakgrunnsskoðun hjá ríkislögreglustjóra, aðgang að haftasvæði flugverndar og aðgang að upplýsingum um framkvæmd og eftirlit flugverndar. Hafi ríkislögreglustjóri veitt einstaklingi neikvæða umsögn vegna bakgrunnsathugunar fyrir flugrekanda er honum óheimilt að gefa út áhafnarkort til viðkomandi einstaklings sbr. 2. mgr. 26. gr. og veita aðgang að upplýsingum um framkvæmd og eftirlit flugverndar.
Rökstuðningur ríkislögreglustjóra samkvæmt 2. mgr. skal sendur einstaklingi með sannanlegum hætti. Í rökstuðningnum skal lýsa í meginatriðum þeim atvikum sem talin eru leiða til neikvæðrar umsagnar. Ríkislögreglustjóri skal veita einstaklingi a.m.k. 15 daga frest, frá póstlagningardegi rökstuðnings, til að tjá sig skriflega um efni máls og, eftir atvikum, leggja fram gögn, áður en endanleg ákvörðun er tekin.
Sama málsmeðferð gildir leiði neikvæð umsögn ríkislögreglustjóra til þess að einstaklingur fær ekki útgefið áhafnarkort frá flugrekanda samkvæmt reglugerð þessari.
28. gr.
Mat á afbrotaferli.
Við ákvörðun um hvort veita beri umsækjanda heimild til að sækja námskeið í flugverndarþjálfun og aðgangsheimild að haftasvæði flugverndar eða aðgang að trúnaðarupplýsingum um flugvernd skal sérstaklega athuga brotaferil einstaklings sem sótt er um heimild fyrir. Leggja skal til grundvallar upplýsingar úr sakaskrá og eftir atvikum málaskrá og öðrum skrám lögreglu um viðkomandi einstakling. Leitast skal við að afla upplýsinga úr skrám lögreglu, einungis að því marki sem talið er að geti haft vægi við mat á hæfi viðkomandi einstaklings til að njóta aðgangs að haftasvæði flugverndar og fá aðgang að upplýsingum um framkvæmd og eftirlit flugverndar, sbr. 2.-7. mgr.
Hafi einstaklingur, hérlendis eða erlendis, sætt sektum eða verið dæmdur til refsingar eða eigi ólokið máli í refsivörslukerfinu þar sem hann er grunaður eða sakaður um refsiverða háttsemi samkvæmt íslenskum lögum, skal synja honum um aðgang að haftasvæði flugverndar, trúnaðarupplýsingum um flugvernd og að sækja námskeið í flugverndarþjálfun, sbr. þó ákvæði 29. gr., enda séu brotin stórfelld eða gefi vísbendingar um að öryggi ríkisins, flugstarfsemi og almannahagsmunum kunni að stafa hætta af. Synjað skal um framangreindan aðgang og að sækja námskeið í flugverndarþjálfun hafi einstaklingur verið dæmdur fyrir alvarleg brot, svo sem brot á almennum hegningarlögum, notkun eða dreifingu ávana- og fíkniefna, ólögmæta notkun eða dreifingu vopna, tollalagabrot, brot sem stefnt hefur lífi einhvers í hættu, ofbeldisbrot, fjárkúgun, brot sem ógna öryggi ríkisins, brot sem ógna flugöryggi, kynferðisbrot eða sé umsækjandi eða hafi verið meðlimur í ólöglegum samtökum eða meintum glæpasamtökum. Jafnframt skal synjað um framangreindan aðgang og að sækja námskeið í flugverndarþjálfun hafi einstaklingur verið dæmdur fyrir önnur brot, svo sem þjófnað, verslun með þýfi, fjársvik, svik eða hafi sviksamlega haldið fram rangri staðhæfingu þrátt fyrir að sakfellingu sé ekki lokið. Ríkislögreglustjóri ákveður hvort veita beri umsækjanda neikvæða umsögn vegna umsóknar um aðgang að haftasvæði flugverndar, að upplýsingum um flugvernd eða um að sækja námskeið í flugverndarþjálfun á grundvelli annarra brota en talin eru hér að framan.
Við mat á brotaferli einstaklings skal einnig leggja til grundvallar hvort öryggi flugsamgangna geti stafað hætta af einstaklingi. Sérstaklega skal meta hugsanlega hættu sem af viðkomandi kann að stafa gagnvart íslenska ríkinu og erlendum ríkjum, öryggi þeirra, flugstarfsemi og öðrum almannahagsmunum.
Ennfremur er heimilt að taka tillit til eftirfarandi atvika, ef:
Komi í ljós við bakgrunnsathugun samkvæmt 27. gr. að einstaklingur hefur ítrekað gengist undir sektargreiðslur vegna fíkniefnalagabrota, eða hafi ríkislögreglustjóri rökstuddan grun um að viðkomandi neyti ólöglegra ávana- og fíkniefna, getur ríkislögreglustjóri ákveðið að skilyrða umsögn bakgrunnsathugunar því, að hann gangist undir fíkniefnapróf, þar á meðal blóð- og þvagrannsókn. Neiti einstaklingur að undirgangast slíka rannsókn eða komi í ljós við rannsóknina að hann neyti ólöglegra ávana- og fíkniefna, er ríkislögreglustjóra heimilt að veita neikvæða umsögn um viðkomandi vegna bakgrunnsathugunar. Fíkniefnapróf skal framkvæmt af heilbrigðisstarfsmanni og skal kostnaður vegna framkvæmdar þess greiðast af umsækjanda. Einstaklingi er skylt að hlíta nauðsynlegri meðferð heilbrigðisstarfsmanns.
Komi í ljós við bakgrunnsathugun samkvæmt 27. gr. að lögregla hefur þurft að hafa endurtekin afskipti af einstaklingi vegna meintra brota af hans hálfu, getur ríkislögreglustjóri ákveðið að veita honum neikvæða umsögn vegna bakgrunnsathugunar, megi telja að öryggi flugsamgangna geti stafað hætta af honum.
Við ákvörðun um hvort veita beri aðgangsheimild að haftasvæði flugverndar skal m.a. fylgt þeim viðmiðum sem sett eru fram í leiðbeiningargögnum Evrópusambands flugmálastjórna (ECAC) nema strangari kröfur séu gerðar samkvæmt reglugerð þessari eða lögum um loftferðir.
29. gr.
Tímafrestir.
Nú hefur einstaklingur lokið afplánun og/eða innt sektargreiðslur af hendi vegna brota samkvæmt 2. mgr. 28. gr. og er þá heimilt að taka tillit til þess í eftirfarandi tilvikum:
enda hafi viðkomandi ekki gerst sekur um ítrekuð brot og sýnt þyki að af honum stafi ekki lengur hætta fyrir íslenska ríkið eða erlend ríki, öryggi þeirra, flugstarfsemi eða almannahagsmuni.
30. gr.
Aðgangskort.
Rekstraraðili flugvallar gefur út aðgangskort sem veitir heimild til aðgangs að haftasvæði flugverndar. Á aðgangskorti og áhafnarkorti samkvæmt b- og c-lið 2. mgr. 25. gr. skal vera ljósmynd af handhafa, nafn hans, nafn útgefanda/flugvallar, starfsaðila/fyrirtækis, gildistími og áritun um hvaða svæði handhafi hafi aðgang að. Gildistími skal ritaður með áberandi hætti á aðgangskortið.
Handhafi aðgangskorts eða áhafnarkorts samkvæmt 1. mgr. skal jafnan bera það þannig að það sé vel sýnilegt við störf.
Aðgangskort og áhafnarkort skulu gefin út með tiltekinn gildistíma, að hámarki 5 ár. Takmarka má heimild við tiltekna vikudaga og tilgreindan hluta sólarhrings. Almennt skal heimildin bundin ákveðnu starfi eða starfsemi og er handhafa þá einungis heimilt að nýta heimildina í þeim tilgangi. Láti handhafi af því starfi eða sé sú starfsemi lögð niður, fellur heimildin úr gildi.
Aðgangskorti og áhafnarkorti skal tafarlaust skilað til útgefanda ef:
Útgefanda aðgangskorts og áhafnarkorts skal tilkynnt án tafar um aðgangskort sem hefur glatast; kort sem hefur verið stolið eða sem hefur ekki verið skilað inn.
Kröfur samkvæmt ákvæði þessu gilda jafnframt um umsóknir inn á önnur haftasvæði flugverndar.
Óheimilt er að gefa út aðgangskort eða áhafnarkort samkvæmt þessari grein nema að fenginni jákvæðri umsögn ríkislögreglustjóra úr bakgrunnsathugun samkvæmt 27. gr. Hafi einstaklingur fengið útgefið áhafnarkort samkvæmt b-lið 2. mgr. 25. gr. telst kortið vera gild aðgangsheimild að skilgreindum hluta haftasvæðis flugverndar samkvæmt flugverndaráætlun viðkomandi flugvallar.
Sækja skal um endurnýjun aðgangskorts eða áhafnarkorts eigi síðar en þremur mánuðum áður en gildandi kort rennur úr gildi. Umsókn um endurnýjun aðgangskorts eða áhafnarkorts skal skilað til rekstraraðila flugvallar á þar til gerðu eyðublaði sem rekstraraðili ákveður. Rekstraraðili flugvallar skal þá þegar senda beiðni um bakgrunnsathugun einstaklings til ríkislögreglustjóra svo unnt verði að meta heimild til endurnýjunar aðgangskorts eða áhafnarkorts. Komi til þess að beiðni um endurnýjun aðgangskorts eða áhafnarkorts berist ekki innan tímafrests getur ríkislögreglustjóri krafist þess að einstaklingur skili öllum gögnum sem nauðsynleg eru til bakgrunnsathugunar að nýju svo unnt verði að framkvæma nýja bakgrunnsathugun á honum í samræmi við 27.-29. gr.
Um frekari kröfur til aðgangskorta vísast til flugverndaráætlunar Íslands og reglugerðar (ESB) nr. 185/2010, með síðari breytingum.
31. gr.
Þjálfun handhafa aðgangskorta.
Handhafar aðgangskorta skulu hafa lokið viðeigandi námskeiði og þjálfun vegna flugverndar í samræmi við ákvæði reglugerðar (ESB) nr. 185/2010, með síðari breytingum, sbr. 1. mgr. 61. gr. Þeir skulu hafa kynnt sér reglur sem gilda um aðgang að flugvelli áður en aðgangskort er gefið út. Þeir skulu undirrita yfirlýsingu þar að lútandi og skuldbinda sig til að hlíta þeim reglum.
32. gr.
Leyfisbréf fyrir ökutæki og vinnuvélar.
Rekstraraðila flugvallar er aðeins heimilt að gefa út leyfisbréf fyrir ökutæki eða vinnuvél ef sýnt er fram á nauðsyn þess starfsins vegna.
Leyfisbréfið skal ávallt haft á sýnilegum stað þegar ökutækið eða vinnuvélin er á flugsvæði.
Leyfisbréfinu skal tafarlaust skilað til útgefanda ef:
Útgefandanum skal tilkynnt tafarlaust um leyfisbréf fyrir ökutæki eða vinnuvél sem hefur glatast, leyfisbréf sem hefur verið stolið eða ekki verið skilað inn.
33. gr.
Svipting aðgangsheimilda.
Heimilt er rekstraraðila flugvallar að svipta einstakling aðgangsheimild að flugsvæði, tímabundið eða að fullu, standist hann ekki bakgrunnsathugun eða vegna brota gegn lögum og reglum ef telja verður með hliðsjón af eðli brotsins eða annars framferðis hans, varhugavert að hann noti heimildina. Ákvörðun um sviptingu skal rökstudd og starfsmanni gefinn kostur á að neyta andmælaréttar áður en ákvörðun er tekin, í samræmi við ákvæði stjórnsýslulaga. Sé um alvarlegt brot að ræða er rekstraraðila flugvallar heimilt að svipta einstakling aðgangsheimild að flugsvæði, tímabundið, þá þegar, á meðan niðurstöðu kærumeðferðar er beðið samkvæmt grein þessari.
Rekstraraðila flugvallar er jafnframt heimilt að afturkalla útgáfu leyfisbréfs fyrir ökutæki eða vinnuvél samkvæmt 32. gr. sé skilyrðum greinarinnar ekki fullnægt eða hafi ökutækið eða vinnuvélin ekki verið notuð í samræmi við lög eða reglur.
VI. KAFLI
Skimun farþega og handfarangurs.
34. gr.
Skimun farþega.
Farþegar skulu skimaðir með eftirfarandi aðferðum:
Farþegar skulu fara úr yfirhöfnum s.s. frökkum og jökkum áður en skimun fer fram og skal skima þá sem handfarangur.
Þegar vopnaleitarmaður getur ekki ákvarðað hvort farþeginn beri á sér bannaða hluti eða ekki skal farþeganum synjað um aðgang að haftasvæðum flugverndar eða hann endurskimaður með fullnægjandi hætti að mati vopnaleitarmanns.
Aðeins er heimilt að nota sprengjuleitarhunda sem viðbótarúrræði við skimun.
35. gr.
Handleit og líkamsleit.
Þegar handleit og/eða líkamsleit fer fram skal hún framkvæmd með þeim hætti að hægt sé að tryggja, með nokkurri vissu, að einstaklingurinn beri ekki á sér bannaða hluti.
Þegar málmleitarhliðið gefur frá sér viðvörun skal finna orsök viðvörunarinnar og framkvæma leit í samræmi við 34. gr.
Aðeins er heimilt að nota handmálmleitartæki (HHMD) sem viðbótarúrræði við skimun. Tækið kemur ekki í staðinn fyrir kröfur um handleit.
Leit skal framkvæmd með svo mikilli tillitssemi sem unnt er og má hún aldrei vera víðtækari en nauðsynlegt er. Leit skal ætíð framkvæmd af einstaklingi af sama kyni. Sá sem sætir leit getur krafist þess að vitni sé tilkvatt. Líkamsleit skal aðeins framkvæmd af lögreglu.
36. gr.
Leit hafnað.
Sérhverjum aðila sem neitar að undirgangast leit í samræmi við ákvæði reglugerðar þessarar eða neitar að láta skoða handfarangur sinn skal synjað um að fara inn á haftasvæði flugverndar og í loftfar.
Ákvörðun samkvæmt 1. mgr. telst endanleg og verður ekki skotið til æðra stjórnvalds.
37. gr.
Skimun handfarangurs.
Fartölvur og önnur stór raftæki skulu fjarlægð úr handfarangri áður en skimun fer fram og skulu þau skimuð sérstaklega.
Handfarangur skal skimaður með:
Þegar vopnaleitarmaður getur ekki ákvarðað hvort handfarangur innihaldi bannaða hluti eða ekki er handfarangri ekki hleypt í gegn eða hann endurskimaður þannig að fullnægjandi sé að mati vopnaleitarmanns.
Sérhver taska, sem inniheldur stórt raftæki, skal endurskimuð þegar raftækið hefur verið fjarlægt úr töskunni og skal það skimað sérstaklega.
Aðeins er heimilt að nota sprengjuleitarhunda sem viðbótarúrræði við skimun.
38. gr.
Leitarhundar.
Rekstraraðila flugvallar er heimilt að þjálfa og nota leitarhunda til aðstoðar við framkvæmd flugverndar á flugvöllum, svo sem við leit að sprengiefnum eða öðrum bönnuðum hlutum á flugvallarsvæði, í flugstöð eða um borð í loftfari eftir atvikum.
39. gr.
Vökvi, úðaefni og gel.
Farþega er heimilt að hafa með sér vökva, úðaefni og gel inn á haftasvæði flugverndar og um borð í loftfar að því tilskildu að efnin uppfylli einhver eftirfarandi skilyrða:
Vökvi, úðaefni og gel skal fjarlægt úr handfarangri áður en skimun fer fram og efnin skimuð sérstaklega.
Vökvar, úðaefni og gel taka til maukkenndra efna, fljótandi krema, blandna í föstu eða fljótandi formi, innihalds þrýstiumbúða, t.d. tannkrems, hárgels, drykkja, súpa, síróps, ilmvatns, raksápa og annarra efna af sambærilegum þéttleika.
40. gr.
Meðferð bannaðra hluta.
Nú hefur fundist bannaður hlutur eða hlutir sem ekki eru ólögmætir á farþega eða í handfarangri og skal þá farþega gefinn kostur á að:
Framangreindar ráðstafanir skulu gerðar á kostnað farþega.
Bannaða hluti sem lagt er hald á og ekki er ráðstafað í samræmi við 1. mgr. skal farið með sem óskilamuni eða þeim eytt.
VII. KAFLI
Ráðning og þjálfun starfsfólks.
41. gr.
Einstaklingar með aðgang að haftasvæði.
Einstaklingur sem starfar á flugvelli, eða hjá aðila með samþykki vegna flugverndar eða tilnefndum aðila og hefur aðgang að haftasvæði flugverndar skal hljóta tilskilda grunnþjálfun og starfsþjálfun í samræmi við ákvæði reglugerðar þessarar, sbr. 1. mgr. 61. gr.
Áður en einstaklingur fær heimild til að sjá um flugverndareftirlit án umsjónar skal hann hafa lokið viðeigandi þjálfun með viðunandi árangri í samræmi við ákvæði 11. kafla reglugerðar (ESB) nr. 185/2010 og þjálfunaráætlun Íslands vegna flugverndar.
42. gr.
Flugverndarstarfsmenn.
Þjálfun einstaklings, sem sinnir skimun, framkvæmir aðgangseftirlit eða aðgangsstjórnun og aðila sem sinnir eftirliti með framkvæmd flugverndar, skal fela í sér fræðilegan og verklegan hluta ásamt starfsþjálfun á vinnustað, í samræmi við ákvæði 11. kafla reglugerðar (ESB) nr. 185/2010 og þjálfunaráætlun Íslands vegna flugverndar.
Einstaklingur, sem ráðinn er til að framkvæma flugvernd samkvæmt 1. mgr., skal hafa þá andlegu og líkamlegu getu og hæfni sem þarf til að vinna verkefni sín með skilvirkum hætti og skal gerð grein fyrir eðli þessara krafna í upphafi ráðningarferlisins.
43. gr.
Efni námskeiða.
Flugmálastjórn Íslands skal viðurkenna leiðbeinendur sem þjálfa flugverndarstarfsmenn og samþykkja efni námskeiða samkvæmt 41.-42. gr. áður en:
Þjálfun með aðstoð tölvu má fara fram með eða án stuðnings frá leiðbeinanda eða þjálfara.
44. gr.
Þjálfunarskrár.
Þjálfunarskrár einstaklinga, sem hafa fengið þjálfun samkvæmt reglugerð þessari, skulu geymdar a.m.k. jafnlengi og ráðningarsamningar þeirra gilda.
45. gr.
Kröfur til þjálfunar.
Einstaklingur sem fellur undir 42. gr. og er ætlað að sjá um skimun fólks, farangurs, farms og birgða, annast skoðun ökutækja, framkvæma aðgangsstýringu eða aðgangseftirlit og hafa eftirlit með framkvæmd flugverndar samkvæmt 11. kafla reglugerðar (ESB) nr. 185/2010, skal undirgangast:
46. gr.
Hæfni leiðbeinenda og óháðra matsmanna.
Flugmálastjórn Íslands skal halda skrá yfir viðurkennda leiðbeinendur, eða hafa aðgang að henni og ef við á, skrá yfir óháða matsmenn sem hafa uppfyllt kröfur samkvæmt reglugerð þessari, sbr. 1. mgr. 61. gr.
47. gr.
Þjálfunaráætlun Íslands vegna flugverndar.
Nánar er kveðið á um kröfur til aðila sem sinna þjálfun vegna flugverndar, þjálfunar einstaklinga og samþykkis flugverndarstarfsmanna og leiðbeinenda samkvæmt reglugerð þessari, í þjálfunaráætlun Íslands og reglugerð (ESB) nr. 185/2010, með síðari breytingum.
VIII. KAFLI
Ákvarðanir varðandi framkvæmd flugverndar sem leynt skulu fara.
48. gr.
Leynilegar ákvarðanir.
Mikilvægt er að unnt sé að birta einungis hluta þeirra reglna sem varða ákveðna þætti flugverndar. Þetta er gert til að koma í veg fyrir að unnt sé að nýta sér upplýsingar um framkvæmd flugverndar til að vega að öryggi flugs. Birtur er listi yfir þær ákvarðanir sem leynt skulu fara samkvæmt reglugerð þessari í 2. mgr. 61. gr. Ákvarðanir samkvæmt þessum kafla skulu vera leynilegar og hafa ígildi reglugerðar gagnvart þeim aðilum sem þær beinast að.
49. gr.
Birting leynilegra ákvarðana.
Ákvarðanir framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, sem vísað er til í 48. gr., sbr. 2. mgr. 61. gr., um viðbótaraðgerðir við innleiðingu sameiginlegra grundvallarviðmiða um flugvernd, skulu öðlast gildi hér á landi en verða á grundvelli öryggissjónarmiða einungis birtar þeim einstaklingum sem starfs síns vegna þurfa að hafa vitneskju um efni þeirra.
50. gr.
Efni ákvarðana.
Efni leynilegra ákvarðana, sbr. 2. mgr. 61. gr., sem verður hluti af reglugerð þessari, varðar beina flugverndarhagsmuni. Öryggi og leynd varðandi efni ákvarðananna leiðir af þjóðréttarlegum skuldbindingum á sviði flugverndar.
51. gr.
Miðlun upplýsinga.
Flugmálastjórn Íslands skal sjá um miðlun upplýsinga um framkvæmd flugverndar á grundvelli leynilegrar ákvörðunar, sbr. 2. mgr. 61. gr. Stofnunin skal fullnægja upplýsingaskyldu gagnvart þeim einstaklingum sem starfs síns vegna þurfa að hafa vitneskju um efni ákvarðananna og tryggja að hún berist þeim með sannanlegum hætti.
Skjöl flugverndar sem flokkuð eru sem trúnaðarskjöl skulu send í ábyrgðarpósti eða boðsend. Tryggja skal að trúnaðarskjal sé eingöngu meðhöndlað af þeim sem hefur lögmætan aðgang að trúnaðarupplýsingunum. Óheimilt er öðrum en þeim sem póstinum er beint að, að opna viðeigandi trúnaðarskjöl sem tengjast flugvernd.
Trúnaðarskjöl skal varðveita með tryggum hætti. Útbúa skal á hverjum stað verklagsreglur sem tryggja eiga örugga varðveislu trúnaðarskjala og skjalageymslur sem uppfylla kröfur um varðveislu trúnaðarskjala. Hvert eintak trúnaðarskjals er á ábyrgð viðtakanda sem skal tryggja að skjölin séu varðveitt í læstri hirslu og liggi ekki á glámbekk.
Flugmálastjórn Íslands er heimilt að kanna meðhöndlun á trúnaðarupplýsingum. Skylt er að láta í té upplýsingar sem stofnunin krefst í því skyni.
52. gr.
Þagnarskylda.
Gæta skal trúnaðar um allar upplýsingar sem tengjast flugvernd, um starfsemi og aðstæður á flugvelli eða flugvallarsvæði og við mannvirki þeim tengd eða í tengslum við loftför almennt.
Aðgangur einstaklinga að trúnaðarupplýsingum ræðst af störfum þeirra innan flugverndar.
Þeir einstaklingar sem starfs síns vegna fá vitneskju um efni ákvarðana sem leynt skal fara samkvæmt reglugerð þessari skulu gæta fyllsta trúnaðar um efni þeirra í samræmi við ákvæði laga um loftferðir.
Þeir einstaklingar sem starfs síns vegna fá vitneskju um niðurstöðu bakgrunnsathugunar ríkislögreglustjóra um einstakling skulu gæta fyllsta trúnaðar um efni hennar í samræmi við ákvæði laga um loftferðir.
Þagnarskylda helst þótt látið sé af starfi.
IX. KAFLI
Ýmis ákvæði.
53. gr.
Skrá yfir samþykkta og tilnefnda aðila vegna flugverndar.
Flugmálastjórn Íslands skal halda skrá yfir aðila sem hlotið hafa samþykki eða tilnefningu vegna flugverndar í samræmi við ákvæði reglugerðar þessarar.
54. gr.
Frekari kröfur.
Flugmálastjórn Íslands er heimilt að setja frekari fyrirmæli og verklagsreglur varðandi flugverndarráðstafanir. Stofnuninni er heimilt að ákveða að þau fyrirmæli og verklagsreglur skuli einungis birtar viðeigandi aðilum.
55. gr.
Neyðaráætlun.
Rekstraraðili flugvallar skal sjá til þess að gerð sé neyðaráætlun vegna flugverndar í samvinnu og samráði við lögregluyfirvöld og þá aðila sem hafa hlutverki að gegna samkvæmt áætluninni og halda reglulegar æfingar. Æfingar til að bregðast við hvers konar ógn gegn flugi skal halda á minnst tveggja ára fresti með þátttöku þeirra aðila sem hafa hlutverki að gegna. Halda skal minni æfingar þess á milli, svo sem samskipta- og skrifborðsæfingar. Um frekari kröfur til neyðaráætlunar vegna flugverndar vísast til flugverndaráætlunar Íslands.
Flugmálastjórn Íslands hefur eftirlit með að ákvæði þessu sé framfylgt.
56. gr.
Flugverndarnefnd flugvalla.
Rekstraraðili flugvallar skal koma á fót flugverndarnefnd flugvallar. Flugverndarnefnd skal koma saman minnst tvisvar á ári og fjalla um skipulag flugvallar, samráð og mat á flugverndarráðstöfunum á flugvellinum og taka virkan þátt í skipulagi og framkvæmd æfinga á neyðaráætlun samkvæmt 55. gr.
57. gr.
Flugverndarráð Íslands.
Flugmálastjórn Íslands setur reglur um skipan og starfsemi flugverndarráðs sem skal vera stjórnvöldum til ráðuneytis um flugverndaraðgerðir sem nauðsynlegar eru til að mæta hættu gegn almenningsflugi. Reglurnar skulu settar að höfðu samráði við ráðherra flugmála. Flugverndarráð skal koma saman minnst tvisvar á ári.
58. gr.
Gjaldtaka vegna flugverndar.
Rekstraraðila flugvallar er heimilt að innheimta gjöld til að standa undir kostnaði við flugvernd á flugvelli í samræmi við ákvæði laga um loftferðir. Gjaldið skal ákvarðað í gjaldskrá sem skal auglýst á heimasíðu rekstraraðila flugvallar eða með öðrum tryggum hætti.
59. gr.
Kæruheimild.
Nú er umsókn um aðgang að haftasvæði flugverndar synjað á grundvelli bakgrunnsathugunar vegna flugverndar eða heimild til aðgangs að haftasvæði flugverndar afturkölluð, sbr. 27. gr. eða handhafi samþykkis vegna flugverndar sviptur samþykki, sbr. 18. gr. og má kæra þá ákvörðun til ráðherra flugmála í samræmi við ákvæði stjórnsýslulaga.
60. gr.
Refsingar.
Brot gegn ákvæðum reglugerðar þessarar varða refsingu samkvæmt 141. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum.
61. gr.
Innleiðing.
Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi eftirtaldar reglugerðir framkvæmdastjórnarinnar og Evrópuþingsins og ráðsins með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans:
Með reglugerð þessari öðlast jafnframt gildi hér á landi eftirfarandi ákvarðanir framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, settar á grundvelli reglugerðar (EB) nr. 300/2008 frá 11. mars 2008, um sameiginlegar reglur um flugvernd, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans:
62. gr.
Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 2. mgr. 70. gr. og 70. gr. d, sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.
Á sama tíma falla úr gildi reglugerð um flugvernd nr. 361/2005 ásamt síðari breytingum; reglugerð um innleiðingu reglugerða á sviði flugverndar nr. 125/2006 og reglugerð nr. 835/2009 um ákvarðanir varðandi framkvæmd flugverndar sem leynt skulu fara.
Ákvæði til bráðabirgða.
Bakgrunnsskoðunum áhafna samkvæmt V. kafla skal lokið eigi síðar en 1. febrúar 2012.
Þrátt fyrir ákvæði reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 272/2009 frá 2. apríl 2009 um viðbót við sameiginlegar grunnkröfur um flugvernd í almenningsflugi sem mælt er fyrir um í viðaukanum við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 300/2008, skulu rekstraraðilar flugvalla hafa komið upp skimunarbúnaði á flugvöllum til að skima vökva, úðaefni og gel samkvæmt 39. gr., eigi síðar en 29. apríl 2013 í samræmi við ákvæði reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 720/2011 frá 22. júlí 2011 um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 272/2009.
Innanríkisráðuneytinu, 12. október 2011.
Ögmundur Jónasson.
Ragnhildur Hjaltadóttir.
VIÐAUKI
(sjá PDF-skjal)