1. gr.
Gildissvið.
Reglugerð þessi gildir um skipulag og starfsemi Matvælastofnunar, sem starfar skv. ákvæðum laga nr. 80/2005 um Matvælastofnun, með síðari breytingum.
2. gr.
Yfirstjórn og stjórnskipulag.
Matvælastofnun hefur aðsetur og aðalskrifstofu á Selfossi. Forstjóri Matvælastofnunar fer með yfirstjórn stofnunarinnar, mótar stefnu í störfum hennar og ber ábyrgð á fjárhagslegum rekstri, sbr. 3. gr. laga nr. 80/2005 um Matvælastofnun. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra setur forstjóra erindisbréf. Forstjóri stofnunarinnar ákvarðar skiptingu hennar í svið eftir viðfangsefnum og skal skipurit staðfest af ráðherra.
Í samræmi við 1. mgr. 4. gr. laga nr. 80/2005 um Matvælastofnun skipar ráðherra sviðsstjóra þess sviðs stofnunarinnar sem fer með dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim. Skal sviðsstjóri þess sviðs vera dýralæknir og nefnast yfirdýralæknir. Hann er jafnframt staðgengill forstjóra stofnunarinnar.
Forstjóri Matvælastofnunar ræður sviðsstjóra yfir öðrum sviðum stofnunarinnar, sem kallast forstöðumenn, en þó er forstjóra heimilt að velja aðra skipan mála á sviði gæðamála (gæðastjóri) og á svið fræðslu- og upplýsingamála (s.s. fræðslustjóri/upplýsingafulltrúi). Sviðsstjórar skulu starfa við aðalskrifstofu stofnunarinnar.
3. gr.
Starfsemi Matvælastofnunar.
Hlutverk Matvælastofnunar er skilgreint í 2. gr. laga nr. 80/2005 um Matvælastofnun. Forstjóri stofnunarinnar ákvarðar hvernig einstökum viðfangsefnum, sem stofnunin annast, skal skipt milli sviða í samræmi við skipurit hennar. Einnig er stofnuninni heimilt að reka skrifstofur, sem fara með tiltekin verkefni, sbr. einnig ákvæði 4. og 5. greinar.
4. gr.
Umdæmisskrifstofur.
Umdæmisskrifstofur Matvælastofnunar heyra undir yfirstjórn stofnunarinnar og skulu vera í umdæmum héraðsdýralækna, sbr. 2. mgr. þessarar greinar, og taka mið af umfangi starfseminnar á hverjum stað. Auk verkefna sem héraðsdýralæknum og öðrum dýralæknum er falið að annast skv. 3. - 6. mgr. 11. gr. laga nr. 66/1998 um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, með síðari breytingum, getur Matvælastofnun falið umdæmisskrifstofum að sinna öðrum viðfangsefnum innan starfssviðs stofnunarinnar.
Umdæmisskrifstofur Matvælastofnunar skulu staðsettar sem hér segir, sbr. nánari skilgreiningu á umdæmum héraðsdýralækna í 11. gr. laga nr. 66/1998 um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, með síðari breytingum:
1. Gullbringu- og Kjósarumdæmi.
2. Borgarfjarðar- og Mýraumdæmi.
3. Snæfellsnesumdæmi.
4. Dalaumdæmi.
5. Vestfjarðaumdæmi.
6. Vestur-Húnaþingsumdæmi.
7. Austur-Húnaþingsumdæmi.
8. Skagafjarðar- og Eyjafjarðarumdæmi.
9. Þingeyjarumdæmi.
10. Austurlandsumdæmi nyrðra.
11. Austurlandsumdæmi syðra.
12. Austur-Skaftafellsumdæmi.
13. Vestur-Skaftafellsumdæmi.
14. Suðurlandsumdæmi.
5. gr.
Inn- og útflutningsmál.
Matvælastofnun skal starfrækja landamærastöðvar með fullnægjandi húsnæði, tækjum, búnaði og annarri aðstöðu fyrir starfsmenn stofnunarinnar, til að sinna opinberu landamæraeftirliti í samræmi við ákvæði EES-samningsins og íslenskar reglur þar um. Þá er stofnuninni heimilt að reka sérstaka skrifstofu fyrir inn- og útflutningsmál til að sinna verkefnum á sviði matvælaeftirlits, dýra- og plöntuheilbrigðis og einnig öðrum viðfangsefnum, sem varða milliríkjaviðskipti og falla undir verksvið Matvælastofnunar.
6. gr.
Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 2. mgr. 4. gr. laga nr. 80/2005 um Matvælastofnun. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 903/2005, um skipulag og starfsemi Landbúnaðarstofnunar.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 2. janúar 2008.
Einar K. Guðfinnsson.
Baldur P. Erlingsson.