1. gr.
2. gr. reglugerðarinnar orðast svo:
Yfirstjórn og stjórnskipulag.
Matvælastofnun hefur aðsetur og aðalskrifstofu á Selfossi. Forstjóri Matvælastofnunar fer með yfirstjórn stofnunarinnar, mótar stefnu í störfum hennar og ber ábyrgð á fjárhagslegum rekstri, sbr. 3. gr. laga nr. 80/2005 um Matvælastofnun. Ráðherra setur forstjóra erindisbréf. Forstjóri stofnunarinnar ákvarðar skiptingu hennar í svið eftir viðfangsefnum.
Í samræmi við 1. mgr. 4. gr. laga nr. 80/2005 um Matvælastofnun skipar ráðherra sviðsstjóra þess sviðs stofnunarinnar sem fer með dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim. Skal sviðsstjóri þess sviðs vera dýralæknir og nefnast yfirdýralæknir. Hann er jafnframt staðgengill forstjóra stofnunarinnar.
Forstjóri Matvælastofnunar ræður sviðsstjóra yfir öðrum sviðum stofnunarinnar, sem kallast forstöðumenn, en þó er forstjóra heimilt að velja aðra skipan mála á sviði gæðamála (gæðastjóri) og á sviði fræðslu- og mannauðsmála (s.s. fræðslustjóri/mannauðsstjóri). Sviðsstjórar skulu starfa við aðalskrifstofu stofnunarinnar.
2. gr.
4. gr. reglugerðarinnar orðast svo:
Umdæmisskrifstofur.
Matvælastofnun rekur umdæmisskrifstofur sem heyra undir yfirstjórn stofnunarinnar og sinna verkefnum í samræmi við ákvæði 11. gr. laga nr. 66/1998 um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, með síðari breytingum. Stofnunin ákveður staðsetningu skrifstofa í hverju umdæmi, en þau eru Suðvesturumdæmi, Vesturumdæmi, Norðvesturumdæmi, Norðausturumdæmi, Austurumdæmi og Suðurumdæmi.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 2. mgr. 4. gr. laga nr. 80/2005 um Matvælastofnun. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 11. desember 2012.
F. h. r.
Kristján Skarphéðinsson.
Baldur P. Erlingsson.