1. gr.
Með reglugerð þessari er felld úr gildi reglugerð nr. 173, 23. febrúar 2008, um bann á loðnuveiðum.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða og laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, til að öðlast þegar gildi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 27. febrúar 2008.
Einar Kristinn Guðfinnsson.
Steinar Ingi Matthíasson.