Velferðarráðuneyti

1129/2012

Reglugerð um menntun, réttindi og skyldur sjóntækjafræðinga og skilyrði til að hljóta starfsleyfi.

I. KAFLI

Almenn ákvæði.

1. gr.

Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um sjóntækjafræðinga sem hafa starfsleyfi landlæknis skv. 2. gr.

II. KAFLI

Starfsleyfi.

2. gr.

Starfsleyfi.

Rétt til að kalla sig sjóntækjafræðing og starfa sem slíkur hér á landi hefur sá einn sem fengið hefur til þess leyfi landlæknis.

3. gr.

Skilyrði fyrir veitingu starfsleyfis.

Leyfi skv. 2. gr. má veita þeim sem lokið hafa námi í sjóntækjafræði frá skóla á háskólastigi sem viðurkenndur er sem slíkur af heilbrigðisyfirvöldum hér á landi og heilbrigðisyfirvöldum þess ríkis þar sem námið var stundað.

Einnig má veita starfsleyfi á grundvelli menntunar frá ríki innan Evrópska efnahags­svæðisins (EES) og Sviss. Um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi sjón­tækja­fræðings sem uppfyllir skilyrði tilskipunar 2005/36/EB, um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi, með síðari breytingum, fer samkvæmt reglugerð um viðurkenn­ingu á faglegri menntun og hæfi heilbrigðisstarfsmanna frá öðrum EES-ríkjum, nr. 461/2011, eða samkvæmt Norðurlandasamningi um sameiginlegan norrænan vinnu­markað fyrir ákveðnar heilbrigðisstéttir og dýralækna, nr. 36/1993, sbr. breytingu nr. 6/2001.

Þá er heimilt að veita starfsleyfi þeim sem lokið hafa sambærilegu prófi frá mennta­stofnun í ríki utan EES eða Sviss sem viðurkennd er sem slík af heilbrigðis­yfirvöldum hér á landi og heilbrigðisyfirvöldum þess ríkis þar sem námið var stundað.

Umsækjandi um starfsleyfi sem sjóntækjafræðingur, skv. 2. gr., frá ríki utan EES og Sviss sem Ísland hefur ekki samið við um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi skal meðal annars leggja fram gögn um ríkisfang, innihald náms og námslengd, ásamt prófskírteini, starfsleyfi ef starfsgreinin er löggilt í því landi sem umsækjandi kemur frá, fyrirhuguð störf hér á landi svo og önnur gögn og vottorð sem landlæknir telur nauð­syn­leg vegna útgáfu starfsleyfis.

Áður en umsókn um starfsleyfi er tekin til efnislegrar meðferðar þarf eftir atvikum að liggja fyrir staðfest afrit umsóknar um atvinnu- og dvalarleyfi ásamt undirrituðum ráðn­ingarsamningi.

Heimilt er að gera kröfu um að umsækjandi búi yfir kunnáttu í íslensku og hafi þekkingu á íslenskri heilbrigðislöggjöf svo og öðrum lögum og stjórnvaldsfyrirmælum sem talin eru nauðsynleg til að geta starfað sem sjóntækjafræðingur, einkum vegna öryggis og samskipta við sjúklinga.

Hafi að mati landlæknis ekki verið sýnt fram á að nám umsækjanda uppfylli kröfur skv. 1. mgr. er heimilt að krefjast þess að umsækjandi gangist undir próf sem sýni fram á að hann búi yfir þeirri faglegu þekkingu og hæfni sem krafist er af sjóntækjafræðingi. Landlæknir skal í samráði við Félag íslenska sjóntækjafræðnga skipuleggja próf fyrir umsækjanda.

Starfsleyfi skv. 3. mgr. er gefið út við komu umsækjanda til starfa hér á landi.

4. gr.

Réttur til að mæla sjón.

Rétt til að mæla sjón vegna gleraugna og til að ávísa á gleraugu hefur sjón­tækja­fræðingur með menntun sem fullnægir kröfum um sjónmælingar og ávísun á gleraugu og fengið hefur leyfi landlæknis skv. 2. gr. Miðað skal við þriggja ára nám á háskóla­stigi í greininni.

Rétt til að mæla sjón vegna snertilinsa og til að ávísa á snertilinsur hefur sjón­tækja­fræðingur sem uppfyllir skilyrði 1. mgr. auk skilyrða um menntun til slíkra mælinga. Miða skal við tíu vikna fullt nám í snertilinsufræði á háskólastigi.

Sjónmæling er mæling á sjónskekkju og sjónlagi augans með og án sjónhjálpartækja.

Í starfsleyfi skal koma fram réttur sjóntækjafræðings til sjónmælinga vegna gleraugna og ávísunar á gleraugu og réttur til sjónmælinga vegna snertilinsa og ávísunar á snerti­linsur.

Sjóntækjafræðingur sem fengið hefur leyfi til að mæla sjón skal hafa slíkt leyfi eða staðfestingu leyfis á áberandi stað á starfsstöð sinni þannig að það sé sýnilegt þeim sem sækja sér þjónustu viðkomandi sjóntækjafræðings.

5. gr.

Takmarkanir á rétti til að mæla sjón.

Sjóntækjafræðingur sem rétt hefur til að mæla sjón skv. 4. gr. má ekki vinna sjón­hjálpartæki án fyrirsagnar augnlæknis fyrir eftirtalda einstaklinga:

  1. Barna undir tólf ára aldri.
  2. Fólks sem aldrei hefur farið til augnlæknis.
  3. Sjúklinga sem hafa skilgreindan augnsjúkdóm eða sjúkdóma sem skaðlegir gætu verið sjón, svo sem sykursýki, alvarlega gigtsjúkdóma eða skjaldkirtilssjúkdóma, nema staðfest sé að sjúklingurinn sé í reglubundnu eftirliti hjá augnlækni.
  4. Fólks sem á nána ættingja með gláku, nema staðfest sé að það sé í reglubundnu eftirliti hjá augnlækni.
  5. Fólks sem ekki nær betri sjón en 6/9 á hvoru auga fyrir sig með gleraugum.
  6. Fólks þar sem sjón hefur versnað skyndilega, takmarkanir eru á sjónsviði, sem er rangeygt eða hefur tvísýni.

6. gr.

Réttur til smíði sjónhjálpartækja.

Sjóntækjafræðingur sem ekki uppfyllir skilyrði um menntun skv. 4. gr. má einungis fullvinna gleraugu samkvæmt tilvísun eða forskrift augnlæknis eða sjóntækjafræðings sem hefur rétt til sjónmælinga skv. 4. gr.

7. gr.

Leiðbeiningarskylda.

Sé um að ræða sjónmælingu einstaklings sem náð hefur 60 ára aldri og hefur ekki farið til augnlæknis síðastliðin fimm ár skal sjóntækjafræðingur benda viðkomandi á að leita til augnlæknis til að láta meta aldurstengda augnsjúkdóma.

8. gr.

Umsagnir.

Áður en leyfi er veitt skv. 2. gr. skal landlæknir leita umsagnar Félags íslenskra sjóntækjafræðinga um það hvort umsækjandi uppfylli skilyrði um menntun skv. 1. mgr. 3. gr. og 4. gr. til útgáfu starfsleyfis.

Landlækni er heimilt að leita umsagnar annarra aðila eftir þörfum.

III. KAFLI

Réttindi og skyldur.

9. gr.

Faglegar kröfur og ábyrgð.

Sjóntækjafræðingur skal sýna sjúklingi virðingu og sinna störfum sínum af árvekni og trúmennsku og í samræmi við þær faglegu kröfur sem gerðar eru til stéttarinnar á hverjum tíma.

Sjóntækjafræðingi ber að þekkja skyldur sínar og virða siðareglur stéttarinnar, viðhalda þekkingu sinni og faglegri færni og tileinka sér nýjungar er varða starfið.

Sjóntækjafræðingur skal þekkja lög og reglugerðir sem gilda um heilbrigðisstarfsmenn og heilbrigðisþjónustu og önnur lög og stjórnvaldsfyrirmæli eftir því sem við á.

Sjóntækjafræðingur ber ábyrgð á starfi sínu í samræmi við þá menntun sem hann hefur hlotið.

Sjóntækjafræðingur skal virða faglegar takmarkanir sínar og leita eftir aðstoð eða vísa sjúklingi til annars heilbrigðisstarfsmanns eftir því sem nauðsynlegt er, svo sem ef hann telur sig ekki geta veitt honum viðeigandi heilbrigðisþjónustu.

10. gr.

Upplýsingaskylda og færsla sjúkraskrár.

Um upplýsingaskyldu sjóntækjafræðings gagnvart sjúklingi fer samkvæmt ákvæðum laga um réttindi sjúklinga, nr. 74/1997.

Um skyldu sjóntækjafræðings til að veita landlækni upplýsingar, meðal annars vegna eftirlits og til gerðar heilbrigðisskýrslna, fer samkvæmt lögum um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007.

Sjóntækjafræðingur skal, eftir því sem við á, færa sjúkraskrá samkvæmt ákvæðum laga um sjúkraskrár, nr. 55/2009, og reglugerðum sem settar eru samkvæmt þeim.

11. gr.

Aðstoðarmenn og nemar.

Sjóntækjafræðingur ber ábyrgð á því að aðstoðarmenn og nemar, sem starfa undir hans stjórn, hafi næga hæfni og þekkingu og fái nauðsynlegar leiðbeiningar og tilsögn til að inna af hendi störf sem hann felur þeim.

12. gr.

Trúnaður og þagnarskylda.

Sjóntækjafræðingur skal gæta fyllstu þagmælsku um allt það sem hann kemst að í starfi sínu um heilsufar sjúklings, ástand, sjúkdómsgreiningu, horfur og meðferð ásamt öðrum persónulegum upplýsingum. Þetta gildir ekki bjóði lög annað eða rökstudd ástæða er til þess að rjúfa þagnarskyldu vegna brýnnar nauðsynjar.

Samþykki sjúklings eða forráðamanns, ef við á, leysir sjóntækjafræðing undan þagnar­skyldu.

Þagnarskylda samkvæmt þessari grein nær ekki til atvika sem sjóntækjafræðingi ber að tilkynna um samkvæmt öðrum lagaákvæðum. Í þeim tilvikum ber sjóntækjafræðingi skylda til að koma upplýsingum um atvik á framfæri við þar til bær yfirvöld.

Um trúnaðar- og þagnarskyldu sjóntækjafræðings gilda jafnframt ákvæði laga um rétt­indi sjúklinga, ákvæði laga um sjúkraskrár og önnur lög eftir því sem við á.

IV. KAFLI

Ýmis ákvæði.

13. gr.

Gjaldtaka.

Um gjaldtöku vegna útgáfu starfsleyfis fer skv. 10. gr. laga um aukatekjur ríkissjóðs, nr. 88/1991.

Um gjaldtöku vegna hvers konar umsýslu landlæknis vegna umsókna um starfsleyfi til viðbótar gjaldi skv. 1. mgr. og vegna prófa í faglegri þekkingu og færni fer samkvæmt reglugerð um gjaldtöku vegna umsókna um starfsleyfi og sérfræðileyfi heilbrigðis­starfsmanna, nr. 951/2012.

14. gr.

Almenn ákvæði.

Ákvæði laga um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012, laga um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007, laga um sjúkraskrár, nr. 55/2009, laga um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, laga um réttindi sjúklinga, nr. 74/1997, svo og önnur lög og stjórnvaldsfyrirmæli gilda eftir því sem við á um sjóntækjafræðinga.

15. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 5., 30. og 31. gr. laga um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012, öðlast gildi 1. janúar 2013. Frá sama tíma fellur brott reglugerð um menntun sjóntækjafræðinga og takmarkanir á heimild þeirra til sjónmælinga, nr. 1043/2004, með síðari breytingum.

Velferðarráðuneytinu, 11. desember 2012.

Guðbjartur Hannesson.

Vilborg Ingólfsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica