I. KAFLI
Almennt.
1. gr.
Göngudeildir sem sinna tilkynningarskyldum sjúkdómum.
Göngudeildir sem sinna tilkynningarskyldum sjúkdómum skulu vera á Landspítala (LSH) og hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Göngudeild sem sinnir tilkynningarskyldum sjúkdómum hjá börnum skal vera á LSH.
Göngudeildir skv. 1. mgr. skulu annast sjúklinga sem þangað er vísað eða þangað leita vegna tilkynningarskyldra smitsjúkdóma eða annarra alvarlegra sjúkdóma eða gruns um slíka sjúkdóma. Hlutverk deildanna er einnig að rekja smit manna á milli, hafa upp á þeim einstaklingum sem kunna að hafa smitast af tilkynningarskyldum sjúkdómum og hindra frekari sjúkdómsútbreiðslu, sbr. 1. og 2. mgr. 16. gr. sóttvarnalaga, nr. 19/1997, með síðari breytingum.
2. gr.
Sérstök aðstaða til greiningar, einangrunar, afeitrunar og hreinsunar.
Á LSH skal vera þekking og viðbúnaður sem snýr að sóttvörnum vegna sérstakra ógna sem steðjað geta að vegna sýkla, eiturefna og geislavirkra efna.
Sérstök aðstaða skal vera á LSH til greiningar og einangrunar sjúklinga sem eru til rannsóknar eða meðferðar vegna smitsjúkdóma eða gruns um smitsjúkdóma eða vegna afleiðinga eiturefna- eða geislavirkra efna. Þar skal einnig vera aðstaða til sótthreinsunar og afeitrunar sjúklinga, fatnaðar, áhalda og farartækja.
Á LSH skal starfa sóttvarnanefnd sem er stjórn LSH til ráðgjafar um sóttvarnir í samstarfi við sóttvarnalækni. Þá skal starfa á LSH sýkingavarnadeild sem skráir sýkingar í tengslum við veitingu heilbrigðisþjónustu og stuðlar að sýkingavörnum innan LSH, eitrunarmiðstöð og geislaeðlisfræðideild sem skrá óhöpp vegna eitrana og geislaóhöpp.
3. gr.
Sýkingavarnanefndir.
Á sjúkrahúsum, öðrum en LSH, skulu starfa sýkingavarnanefndir sem skrá sýkingar í tengslum við veitingu heilbrigðisþjónustu og stuðla að sýkingavörnum innan stofnananna.
Á heilsugæslustöðvum, heilbrigðisstofnunum og starfsstofum heilbrigðisstarfsmanna skal vera til staðar þekking og grunnviðbúnaður sem snýr að sóttvörnum.
II. KAFLI
Framkvæmd opinberra sóttvarnaráðstafana.
4. gr.
Göngudeildir sem sinna tilkynningarskyldum sjúkdómum.
Göngudeildir sem sinna tilkynningarskyldum sjúkdómum, heilsugæslustöðvar og aðrar heilbrigðisstofnanir skulu sinna opinberum sóttvarnaráðstöfunum í samræmi við IV. kafla laga nr. 19/1997 og reglugerð nr. 834/2007, um tilnefningu yfirlækna heilsugæslustöðva, með síðari breytingum, til að sinna sóttvörnum samkvæmt nánari fyrirmælum sóttvarnalæknis.
5. gr.
Almannavarnir.
Opinberar sóttvarnaráðstafanir skv. 12. gr. laga nr. 19/1997 og undirbúningur þeirra skulu gerðar í samvinnu við almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.
6. gr.
Alþjóðlegar hafnir og flugstöðvar.
Landamærastöðvarnar í flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli og höfnunum í Reykjavík, á Grundartanga, á Seyðisfirði, á Akureyri og á Ísafirði skulu vera sóttvarnastöðvar og uppfylla skilyrði alþjóðaheilbrigðisreglugerðarinnar um alþjóðlega landamærastöð.
7. gr.
Öryggisbirgðahald.
Sóttvarnalæknir skal hafa umsjón með afhendingu, dreifingu og notkun öryggisbirgða lyfja, sem kveðið er á um í I. viðauka í fylgiskjali 1, og annars nauðsynlegs búnaðar í landinu til að bregðast við heilbrigðisógnum á borð við farsóttir eða aðra vá.
8. gr.
Læknisrannsókn á fólki sem flyst til landsins.
Göngudeildir skv. 1. gr. og heilsugæslustöðvar annast læknisrannsókn á þeim sem koma til landsins og sækja um dvalarleyfi samkvæmt verklagsreglum sóttvarnalæknis sem miðast við sérstakt hættuástand vegna smitsjúkdóma og farsótta á tilteknu landsvæði, sbr. 4. mgr. 14. gr. laga nr. 19/1997. Hafi umsækjandi fullgilt læknisvottorð samkvæmt verklagsreglum sóttvarnalæknis þarf viðkomandi ekki að sæta læknisrannsókn.
9. gr.
Læknisrannsókn á ferðamönnum við komu eða brottför.
Berist tilkynning frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni um að næm sótt sem ógnað getur almannaheill breiðist út og gæti borist til landsins eða frá því, skulu þeir sem koma til landsins eða hyggjast yfirgefa það og gætu hafa orðið fyrir smiti sæta læknisrannsókn samkvæmt nánari fyrirmælum sóttvarnalæknis, sbr. 13. gr. laga nr. 19/1997. Ferðamanni ber að veita upplýsingar um áfangastað, gangast undir læknisrannsókn sem er eins takmörkuð og auðið er en uppfyllir jafnframt markmið sóttvarna og heimila könnun á farangri.
III. KAFLI
Greiðslur og undanþága frá greiðsluhlutdeild.
10. gr.
Dvalar- og atvinnuleyfi.
Læknisrannsókn sem gerð er vegna umsóknar um dvalar- og atvinnuleyfi og er í samræmi við verklagsreglur sóttvarnalæknis skal greiðast af vinnuveitanda eða þeim sem sækir um dvalar- eða atvinnuleyfi. Leiði læknisrannsókn í ljós þörf fyrir frekari sértækar rannsóknir þá greiðir viðkomandi umsækjandi eða sjúkratrygging hans kostnað við þau heilsufarslegu vandamál sem greinast fyrstu sex mánuðina sem dvalið er í landinu. Læknisrannsókn sem vinnuveitandi óskar sérstaklega eftir greiðist af vinnuveitandanum.
11. gr.
Tilkynningarskyldir sjúkdómar.
Greining, meðferð og eftirfylgni tilkynningarskyldra sjúkdóma, sbr. reglugerð nr. 221/2012, um skýrslugerð vegna sóttvarna, fyrir aðra en getið er um í 10. gr., skal vera sjúklingi, sem leitar til göngudeilda sem sinna tilkynningarskyldum sjúkdómum skv. 1. gr. eða heilsugæslustöðva, að kostnaðarlausu. Sama gildir um þá sem kvaddir eru til rannsóknar til leitar að smiti. Hafi sjúklingur leitað til sérgreinalæknis skal fyrsta lyfjameðferð í kjölfar greiningar vera honum að kostnaðarlausu.
Lyf við tilkynningarskyldum sjúkdómi, sbr. viðauka II í fylgiskjali 1, ávísað frá göngudeildum skv. 1. gr. greiðist af viðkomandi göngudeild en lyf ávísað af öðrum greiðist af Sjúkratryggingum Íslands. Læknir skal staðfesta á lyfseðli að um tilkynningarskyldan sjúkdóm sé að ræða.
Greinist tilkynningarskyldur sjúkdómur hjá umsækjanda um dvalar- og atvinnuleyfi sem ekki hefur fullnægjandi tryggingu er sóttvarnalækni heimilt að veita undanþágu fyrir greiðsluhlutdeild ef ríkir almannahagsmunir krefjast þess.
12. gr.
Ákvæði vegna alþjóðaheilbrigðisreglugerðarinnar.
Ferðamenn sem að kröfu sóttvarnayfirvalda þurfa að leggja fram vottorð og sæta þurfa læknisrannsókn, bólusetningum, einangrun, takmörkun á ferðafrelsi eða heilbrigðisráðstöfunum vegna farangurs eru undanþegnir greiðsluhlutdeild.
IV. KAFLI
Gildistaka.
13. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 18. gr. sóttvarnalaga, nr. 19/1997, sbr. 12., 16. og 17. gr., öðlast þegar gildi. Samtímis fellur úr gildi reglugerð nr. 414/2007.
Velferðarráðuneytinu, 21. september 2012.
Guðbjartur Hannesson.
Vilborg Ingólfsdóttir.
Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)