Heilbrigðisráðuneyti

581/2020

Reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð nr. 817/2012, um sóttvarnaráðstafanir.

1. gr.

Við 11. gr. reglugerðarinnar bætast þrjár nýjar málsgreinar sem verða 4., 5. og 6. mgr. og orðast svo:

Fyrir valkvæða sýnatöku vegna greiningar á SARS-CoV-2 samkvæmt reglugerð um sóttkví, ein­angrun og sýnatöku við landamæri Íslands vegna COVID-19 nr. 580/2020 greiðir einstaklingur gjald samkvæmt þeirri reglugerð.

Sýnataka hjá einstaklingum sem sýna einkenni sjúkdómsins COVID-19 í samræmi við fagleg fyrir­mæli landlæknis er þeim að kostnaðarlausu skv. 1. mgr.

Uppfylli einstaklingur ekki skilyrði faglegra fyrirmæla landlæknis skal hann greiða gjald fyrir sýna­töku samkvæmt reglugerð nr. 1248/2019, um greiðsluþátttöku sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu. Frá og með 1. júlí 2020 skal greiða gjald sem nemur 11.000 kr. og rennur gjaldið til þeirrar heilbrigðisstofnunar sem framkvæmir sýnatökuna. Gjaldið myndar ekki afsláttar­­stofn skv. 4. gr. reglugerðar um greiðsluþátttöku sjúkratryggðra í kostnaði vegna heil­brigðis­þjónustu, sbr. jafnframt 29. gr. laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar. Heilbrigðis­stofnun er jafnframt heimilt að taka komugjald.

 

2. gr.

Reglugerð þessi sem sett er á grundvelli 12., 13., 17. og 18. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, með síðari breytingum, og 1. tölul. 1. mgr. og 5. mgr. 29. gr. laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar, með síðari breytingum, tekur þegar gildi.

 

Heilbrigðisráðuneytinu, 10. júní 2020.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Ásta Valdimarsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica