Fjármála- og efnahagsráðuneyti

1010/2022

Reglugerð um breytingu á ýmsum reglugerðum er varða virðisaukaskatt.

I. KAFLI

Breyting á reglugerð nr. 562/1989, um virðisaukaskatt af eigin þjónustu
og úttekt til eigin nota innan óskattskyldra fyrirtækja og stofnana.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á reglugerðinni:

  1. 2. málsl. 1. gr. orðast svo: Um skattskyldu sveitarfélaga, fyrirtækja þeirra og stofnana, og ríkis­stofnana og ríkisfyrirtækja, annarra en viðskiptabanka í eigu ríkisins, fer þó eftir ákvæðum reglugerðar nr. 248/1990, um virðisaukaskatt af skattskyldri starfsemi opinberra aðila.
  2. Í stað "skattstjóra" í 1. málsl. 4. gr. kemur: Skattsins.
  3. 2. málsl. 4. gr. fellur brott.
  4. Í stað "nr. 501/1989" í 8. gr. kemur: nr. 50/1993.

 

II. KAFLI

Breyting á reglugerð nr. 563/1989,
um uppgjör, uppgjörstímabil og skil fiskvinnslufyrirtækja.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á reglugerðinni:

  1. Í stað "skattstjóra" í 1. málsl. 3. gr. og 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. kemur: ríkisskattstjóra.
  2. Í stað "Skattstjóri" í 3. mgr. 4. gr. kemur: Ríkisskattstjóri.
  3. Í stað "2. gr. reglug. nr. 529/1989, um framtal og skil virðisaukaskatts, fengið heimild skatt­stjóra" í 5. mgr. 4. gr. kemur: 4. gr. reglugerðar nr. 667/1995, um framtal og skil á virðis­auka­­skatti, fengið heimild ríkisskattstjóra.

 

III. KAFLI

Breyting á reglugerð nr. 576/1989, um virðisaukaskatt af byggingarstarfsemi.

3. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á reglugerðinni:

  1. 3. tölul. 2. gr. fellur brott.
  2. Orðin "efni sem hann og starfsmenn hans nota, svo og" í 1. mgr. 3. gr. falla brott.
  3. Í stað "af efni sem ekki sætir neins konar aðvinnslu af hálfu byggingaraðila sjálfs eða starfsmanna hans" í 1. málsl. 2. mgr. 3. gr. kemur: sem aðili greiðir af keyptu efni.
  4. 3. tölul. 4. gr. fellur brott.
  5. Í stað "skattstjóra" í 8. gr. kemur: Skattsins.

 

IV. KAFLI

Breyting á reglugerð nr. 577/1989,
um frjálsa og sérstaka skráningu vegna leigu eða sölu á fasteign.

4. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á reglugerðinni:

  1. Í stað "skattstjóra" í 1. málsl. 1. mgr. 1. gr. kemur: Skattsins.
  2. Í stað "skattstjóra" í 1. málsl. 1. mgr. 2. gr. og 4. málsl. 1. mgr. sömu greinar kemur: ríkisskattstjóra; og: Skattinum.
  3. 1. málsl. 3. mgr. 2. gr. fellur brott.
  4. Í stað "Fallist hann á skýrsluna" í 2. málsl. 3. mgr. 2. gr. kemur: Fallist ríkisskattstjóri á skýrslu skv. 1. mgr.
  5. Í stað "skattstjóri" í 4. mgr. 2. gr. og 3. málsl. 2. mgr. 5. gr. kemur: ríkisskattstjóri.
  6. Í stað "skattstjóra" og "skattstjóri" í 1. málsl. 1. mgr. 3. gr. kemur: ríkisskattstjóra; og: hann.
  7. Í stað "skattstjóra" í 1. mgr. 4. gr., 2. mgr. 8. gr. og 1. málsl. 9. gr. kemur: Skattsins; Skattinum; og: Skattinum.

 

V. KAFLI

Breyting á reglugerð nr. 194/1990, um virðisaukaskatt af þjónustu
fyrir erlenda aðila og af aðkeyptri þjónustu erlendis frá.

5. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á reglugerðinni:

  1. Í stað "Skattstjóranum í Reykjavík" í 3. málsl. 2. mgr. 1. gr. kemur: ríkisskattstjóra.
  2. Í stað "skattstjóra" í 1. mgr. 6. gr. kemur: Skattinum.
  3. Í stað "Ríkistollstjóri" í 1. málsl. 2. mgr. 7. gr. kemur: Ríkisskattstjóri.
  4. Í stað "skattstjóra" í 1. málsl. 1. mgr. 8. gr., 2. mgr. sömu greinar og 1. málsl. 3. mgr. sömu greinar kemur: Skattsins.

 

VI. KAFLI

Breyting á reglugerð nr. 248/1990,
um virðisaukaskatt af skattskyldri starfsemi opinberra aðila.

6. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á reglugerðinni:

  1. Í stað "banka" í 2. málsl. 1. mgr. 1. gr. kemur: viðskiptabanka.
  2. Í stað "útskattur af hinni skattskyldu starfsemi að jafnaði hærri en frádráttarbær innskattur" í 1. mgr. 6. gr. kemur: samanlögð velta af hinni skattskyldu starfsemi að jafnaði hærri en kostnaður við aðföng sem keypt eru með frádráttarbærum virðisaukaskatti til starfseminnar.
  3. Í stað "skattstjóra" í 1. málsl. 7. gr. kemur: ríkisskattstjóra.
  4. 2. málsl. 7. gr. fellur brott.
  5. Í stað "við kaup á eftirtalinni vinnu og þjónustu" í inngangslið 12. gr. kemur: af innflutningi eða kaupum innanlands á eftirtalinni vöru, vinnu eða þjónustu.
  6. Við 6. tölul. 12. gr. bætist: skv. lögum nr. 40/2008, um samræmda neyðarsvörun.
  7. Á eftir "við kaup á" í 1. málsl. 13. gr. kemur: vöru,.
  8. Í stað "viðkomandi skattstjóra" í 1. málsl. 2. mgr. 14. gr. kemur: Skattsins.
  9. Í stað "Skattstjóri" í 1. málsl. 3. mgr. 14. gr. og "skattstjóri" í 2. málsl. 3. mgr. sömu greinar og 4. málsl. 3. mgr. sömu greinar kemur: Ríkisskattstjóri; og: ríkisskattstjóri.
  10. Í stað "viðkomandi skattstjóra" í 5. mgr. 14. gr. kemur: Skattinum.
  11. 16. gr. orðast svo: Sveitarfélag getur fengið heimild ríkisskattstjóra til að greiða virðis­auka­skatt við framvísun virðisaukaskattsskýrslu einu sinni á ári vegna þeirrar starfsemi sem skatt­skyld er skv. 4. gr. ef skattverð, ákvarðað skv. 4. mgr. 4. gr. er undir fjár­hæðar­mörkum 1. mgr. 3. gr. reglugerðar nr. 667/1995, um framtal og skil á virðisauka­skatti.

 

VII. KAFLI

Breyting á reglugerð nr. 449/1990,
um endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu manna við íbúðarhúsnæði.

7. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á reglugerðinni:

  1. Í stað "ríkisskattstjóra" í 1. mgr. 7. gr., 1. og 3. málsl. 3. mgr. 8. gr., 12. gr. og 3. málsl. 2. mgr. 13. gr. kemur: Skattinum.
  2. 1. málsl. 1. mgr. 14. gr. orðast svo: Til að sannreyna fjárhæðir á endurgreiðslubeiðni getur ríkisskattstjóri krafið aðila um framlagningu reikninga, greiðslukvittana og annarra gagna, svo sem kaupsamning, lóðasamning og teikningar.
  3. Í stað "viðkomandi skattstjóra" í 15. gr. kemur: Skattinum.

 

VIII. KAFLI

Breyting á reglugerð nr. 667/1995, um framtal og skil á virðisaukaskatti.

8. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á reglugerðinni:

  1. Í stað "ríkisskattstjóra" í 2. málsl. 3. mgr. 4. gr. kemur: Skattinum.
  2. Í stað "ríkisskattstjóra" í 2. málsl. 1. mgr. 6. gr. kemur: Skattsins.
  3. 3. mgr. 6. gr. orðast svo: Virðisaukaskattsskýrslu ber að skila fyrir hvert uppgjörs­tímabil, einnig þótt ekki hafi verið um virðisaukaskattsskylda starfsemi að ræða á tímabilinu.
  4. Í stað "ríkisskattstjóra" í 2. málsl. 7. gr. kemur: Skattinum.
  5. 2. málsl. 2. tölul. 1. mgr. 9. gr. orðast svo: Innheimtumenn ríkissjóðs eru annars vegar ríkis­skattstjóri í umdæmi sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu og hins vegar sýslumenn utan höfuðborgarsvæðisins.
  6. Á eftir "veflykils" í 2. málsl. 2. mgr. 9. gr. og í stað "jafngildir" í 2. málsl. 2. mgr. sömu greinar kemur: eða rafrænna skilríkja; og: jafngilda.
  7. 1. mgr. 10. gr. orðast svo: Sé innskattur hærri en útskattur á einhverju uppgjörstímabili skal senda skýrslu vegna þess tímabils til Skattsins. Fallist ríkisskattstjóri á skýrsluna tilkynnir hann innheimtumanni ríkissjóðs um samþykki sitt til endurgreiðslu.
  8. Í stað "barst ríkisskattstjóra" í 3. málsl. 2. mgr. 10. gr. kemur: barst Skattinum.
  9. Í stað 1. og 2. málsl. 5. mgr. 10. gr. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Ríkisskattstjóri má því aðeins samþykkja endurgreiðslu samkvæmt þessari grein ef álagning virðisaukaskatts á fyrra uppgjörstímabili, einu eða fleiri, er ekki byggð á áætlun skv. 2. málsl. 2. mgr. 25. gr. eða 1.-3. mgr. 26. gr. laga nr. 50/1988.
  10. Í stað "96/1997" í 1. málsl. 1. mgr. 12. gr. kemur: 93/1995.
  11. Í stað "4. mgr. 3. gr." í 2. mgr. 15. gr. kemur: 6. mgr. 3. gr.

 

IX. KAFLI

Breyting á reglugerð nr. 515/1996, um skráningu virðisaukaskattsskyldra aðila.

9. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á reglugerðinni:

  1. Í stað "skattstjóra" í 1., 2. og 3. mgr. 1. gr. kemur: Skattinum.
  2. Í stað "RSK 10.22" í 2. mgr. 1. gr. kemur: RSK 5.02.
  3. Í stað "Skattstjóri" í 1. og 3. mgr. 3. gr. og "Skattstjóra" í 2. mgr. sömu greinar kemur: Ríkisskattstjóri; og: Ríkisskattstjóra.
  4. Í stað "skattstjóra" og "skattstjóri" í 4. mgr. 3. gr. kemur: ríkisskattstjóra; og: ríkis­skattstjóri.
  5. Í stað "skattstjóra" í 2. og 4. málsl. 3. mgr. 4. gr. og "skattstjóri" í 3. málsl. 3. mgr. sömu greinar kemur: ríkisskattstjóra; og: ríkisskattstjóri.
  6. Í stað "skattstjóra" í 1. mgr. 5. gr. kemur: Skattinum.
  7. Í stað "Skattstjóri" í 1. málsl. 2. mgr. 5. gr. og "skattstjóri" í 2. málsl. 2. mgr. sömu greinar kemur: Ríkisskattstjóri; og: ríkisskattstjóri.
  8. Í stað "skattstjóri" í 1. og 2. málsl. 1. mgr. 6. gr. og "skattstjóra" í 3. málsl. 1. mgr. sömu greinar kemur: ríkisskattstjóri; og: ríkisskattstjóra.
  9. Í stað "skattstjóra" í 1. málsl. 1. mgr. 7. gr. og "skattstjóri" í 2. og 3. málsl. 3. mgr. sömu greinar kemur: ríkisskattstjóra; og: ríkisskattstjóri.
  10. Í stað "skattstjóra" í 2. málsl. 1. mgr. 7. gr. kemur: Skattinum.
  11. Í stað "skattstjóra" í 1. málsl. 1. mgr. 8. gr. og "Skattstjóri" í 2. málsl. 1. mgr. sömu greinar kemur: Skattinum; og: Ríkisskattstjóri.
  12. Í stað "skattstjóri" tvívegis í 2. mgr. 8. gr. kemur: ríkisskattstjóri; og: hann.
  13. Í stað "skattstjóra" í 1. málsl. 3. mgr. 8. gr. og "Skattstjóri" í 2. málsl. 3. mgr. sömu greinar kemur: Skattinum; og: Ríkisskattstjóri.
  14. Í stað "skattstjóri" í 1. og 2. málsl. 4. mgr. 8. gr. kemur: ríkisskattstjóri.
  15. Í stað "skattstjóra" í 1. mgr. 9. gr. og 11. gr. kemur: ríkisskattstjóra.
  16. Í stað "Skattstjóri" í 3. mgr. 10. gr. kemur: Ríkisskattstjóri.

 

X. KAFLI

Breyting á reglugerð nr. 541/2001, um endurgreiðslu virðisaukaskatts
vegna sölu hópbifreiða úr landi.

10. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á reglugerðinni:

  1. Í stað "tollstjórinn í Reykjavík" í 2. gr. kemur: ríkisskattstjóri.
  2. Í stað "Tollstjórinn í Reykjavík" í 1. mgr. 3. gr. og "tollstjóra" í 2. mgr. sömu greinar kemur: Ríkisskattstjóri; og: ríkisskattstjóra.
  3. 1. málsl. 3. mgr. 3. gr. orðast svo: Til að sannreyna fjárhæðir á endurgreiðslubeiðni getur ríkisskattstjóri krafið umsækjanda nánari skýringa á viðskiptunum.

 

XI. KAFLI

Breyting á reglugerð nr. 925/2017,
um endurgreiðslu virðisaukaskatts til alþjóðastofnana o.fl.

11. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á reglugerðinni:

  1. Í stað "ríkisskattstjóra" í 1. málsl. 2. mgr. 3. gr. kemur: Skattsins.

 

XII. KAFLI

Breyting á reglugerð nr. 1243/2019,
um endurgreiðslu virðisaukaskatts til erlendra fyrirtækja.

12. gr.

Í stað "ríkisskattstjóra" í 2. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar kemur: Skattinum.

 

XIII. KAFLI

13. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 2. mgr. 3. gr., 5. gr., 6. gr., 2. mgr. 12. gr., 23. gr., 1. mgr. 24. gr., 1. og 2. mgr. 33. gr., 35. gr., 42. gr., 3. mgr. 43. gr. og 49. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, öðlast gildi nú þegar. Frá sama tíma falla brott reglugerð nr. 336/1993, um inn­heimtu virðisaukaskatts af blöðum og tímaritum sem send eru í áskrift erlendis frá í pósti, reglugerð nr. 63/1994, um frjálsa skráningu vegna fólksflutninga á milli landa, reglugerð nr. 686/2005, um tíma­bundna endurgreiðslu 2/3 hluta virðisaukaskatts vegna kaupa eða leigu hópferðabifreiða og reglugerð nr. 1144/2008, um endurgreiðslu vörugjalds og virðisaukaskatts af vélknúnum öku­tækjum sem flutt eru úr landi.

 

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 24. ágúst 2022.

 

F. h. r.

Helga Jónsdóttir.

Hlynur Ingason.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica