1. gr.
Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra tollkvótum skv. 12. gr. tollalaga nr. 88/2005 og viðaukum IVA og IVB, með síðari breytingum, sbr. viðauka V, í samræmi við tillögur nefndar skv. 87. gr. laga nr. 99/1993.
2. gr.
Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um tollkvóta, tímabil innflutnings, verð- og magntoll:
Vara | Tímabil | Vörumagn | Verðtollar | Magntollar | |
Tollskrárnr.: | kg/stk. | % | kr./kg/stk. | ||
0208.9003 | Rjúpur, frystar | 01.01.-31.12.17 | ótilgr. | 0 | 0 |
0208.9007 | Beinlaust hreindýrakjöt, fryst | 01.01.-31.12.17 | ótilgr. | 0 | 878 |
Hreindýrakjöt með beini, fryst: | |||||
0208.9008 | Skrokkar og hálfir skrokkar | 01.01.-31.12.17 | ótilgr. | 0 | 0 |
0208.9009 | Annað | 01.01.-31.12.17 | ótilgr. | 0 | 878 |
0603.1202 | Innflutningur á öðrum tíma (nellikur) | 01.05.-30.11.17 | ótilgr. | 0 | 48 |
0603.1905 | Innflutningur á öðrum tíma (lokaskegg, flamingóblóm, fuglamjólk og paradísarfuglablóm) | 01.05.-30.11.17 | ótilgr. | 0 | 48 |
0701.9001 | Bökunarkartöflur, 65 mm eða stærri | 01.01.-31.12.17 | ótilgr. | 0 | 0 |
0703.9001 | Blaðlaukur | 01.01.-31.12.17 | ótilgr. | 0 | 0 |
0704.1000 | Blómkál og hnappað spergilkál | 01.01.-30.06.17 | ótilgr. | 0 | 0 |
0704.9002 | Rauðkál | 01.02.-30.06.17 | ótilgr. | 0 | 0 |
0704.9003 | Kínakál | 01.01-30.06.17 | ótilgr. | 0 | 0 |
0704.9004 | Spergilkál (Brassica oleracea var. Ita.) | 01.01.-30.06.17 | ótilgr. | 0 | 0 |
0706.1000 | Gulrætur og næpur | 31.03.-30.06.17 | ótilgr. | 0 | 0 |
0706.9002 | Rauðrófur | 01.01.-31.12.17 | ótilgr. | 0 | 0 |
0709.4000 | Selja, önnur en seljurót | 01.01.-30.06.17 | ótilgr. | 0 | 0 |
0709.5100 | Sveppir af ættinni Agaricus | 01.01.-31.12.17 | ótilgr. | 0 | 80 |
3. gr.
Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 448/2012 um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins og reglugerðar nr. 189/1990 um innflutning og útflutning á plöntum og plöntuafurðum.
4. gr.
Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 82. gr. laga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.
5. gr.
Reglugerð þessi sem sett er samkvæmt heimild í 65. gr. A búvörulaga nr. 99/1993 með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til og með 31. desember 2017.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 15. desember 2016.
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
Ólafur Friðriksson.
Baldur Sigmundsson.