1. gr.
Allar rækjuveiðar innfjarða eru óheimilar nema að fengnum sérstökum leyfum Fiskistofu. Hvert leyfi er bundið við veiðar á einu tilteknu svæði.
Innfjarðarækjusvæðin eru þessi:
2. gr.
Miðað er við að veiðitímabil innfjarðarækju standi frá 1. október til 1. maí.
Veiðar á Arnarfirði skulu stundaðar innan dags á tímabilinu frá kl. 07.00-19.00. Ráðherra er heimilt að fela Fiskistofu að tilkynna leyfishöfum um breytingu á upphafi og lokum vertíðar á tilgreindum veiðisvæðum innfjarðarækju, liggi fyrir umsögn um það frá Hafrannsóknastofnuninni.
3. gr.
Aðeins er heimilt að veita skipi leyfi til rækjuveiða á ofangreindum svæðum að það hafi aflamark í rækju á viðkomandi svæði og sé minna en 200 brúttótonn að stærð. Við veitingu leyfa til rækjuveiða á Eldeyjarsvæði skal þó miða við að skipum sé heimilt að stunda rækjuveiðar á þeim svæðum sem þeim er heimilt að stunda veiðar með botn- og flotvörpu, samkvæmt 5. gr. laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.
4. gr.
Lágmarksmöskvastærð rækjuvörpu skal vera 45 mm í vængjum aftur að þaki (miðneti) og 36 mm í öðrum hlutum vörpunnar. Við veiðar á rækju innfjarða skal nota net á legg í a.m.k. fjórum öftustu metrum vörpunnar eða smárækjuskilju sbr. reglugerð um gerð og búnað smárækjuskilju. Um gerð og búnað vörpunnar vísast til reglugerðar um möskvastærðir og útbúnað varpna til veiða á botnfiski, rækju og humri með síðari breytingum.
5. gr.
Skipstjóra er skylt að halda afladagbók skv. reglugerð um afladagbækur.
6. gr.
Heimilt er Fiskistofu að svipta skip leyfi til rækjuveiða innfjarða vegna brota á ákvæðum reglugerðar þessarar eða ákvæðum leyfisbréfa sem gefin eru út með stoð í reglugerð þessari. Missi skip leyfi til veiða í atvinnuskyni fellur jafnframt úr gildi leyfi til rækjuveiða innfjarða.
7. gr.
Með mál sem kunna að rísa út af brotum á ákvæðum reglugerðar þessarar og ákvæðum leyfisbréfa gefnum út samkvæmt henni skal farið að hætti sakamála og varða brot viðurlögum samkvæmt 17. gr. laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.
8. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt 2. mgr., sbr. 1. mgr. 6. gr. og 2. mgr. 7. gr. laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, laga nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða og laga nr. 57, 3. júní 1996, um umgengni um nytjastofna sjávar til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Við gildistöku þessarar reglugerðar fellur úr gildi reglugerð nr. 700/2004 um rækjuveiðar innfjarða, með síðari breytingum.
Leyfi sem gefin hafa verið út, með stoð í reglugerð nr. 700/2004, halda gildi sínu, að því marki sem þau skarast ekki á við ákvæði þessarar reglugerðar.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 15. mars 2012.
F. h. r.
Jóhann Guðmundsson.
Arnór Snæbjörnsson.