Brottfallnar reglugerðir

623/1980

Reglugerð um breyting á reglugerð nr. 94/1979 um framlög atvinnurekenda til lífeyristrygginga skv. 20. gr., sbr. 25. gr., og iðgjöld til slysatrygginga skv. 36. gr. laga um almannatryggingar nr. 67/1971, sbr. lög nr - Brottfallin

REGLUGERÐ

um breyting á reglugerð nr. 94/1979.

Um framlög atvinnurekenda til lífeyristrygginga skv. 20. gr., sbr. 25. gr., og iðgjöld til slysatrygginga skv. 36. gr. laga um almannatryggingar nr. 67/1971, sbr. lög nr. 59/1978.

1.gr.

3. gr. orðist svo:

Lífeyristryggingaiðgjald skal á árinu 1980 vera 2% af gjaldstofni ársins 1979, samkv. 2. gr.

2. gr.

7. gr. orðist svo:

Gjald fyrir tryggingu íþróttamanna, sbr. 29. gr. f-lið, skal fyrir árið 1980 nema 4.000.000,00 kr. alls og greiðast að jöfnu af Íþróttasambandi Íslands og ríkissjóði. Fyrir tryggingar, sem greinir í e-lið sömu greinar, kemur ekkert gjald.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt 36. og 65. gr. laga nr. 67/1971, sbr. lög nr. 58/1978.

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, 8. desember 1980.

Svavar Gestsson.

Jón Ingimarsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica