Brottfallnar reglugerðir

251/1992

Reglugerð um tollfrjálsan farangur ferðamanna og farmanna við komu frá útlöndum, einkasölugjald o.fl. - Brottfallin

REGLUGERÐ

um tollfrjálsan farangur ferðamanna og farmanna

við komu frá útlöndum, einkasölugjald o.fl.

1. gr.

Ferðabúnaður og annar farangur.

Ferðamönnum, sem búsettir eru hér á landi, er heimilt án greiðslu aðflutningsgjalda að hafa með sér við komu til landsins fatnað og ferðabúnað sem þeir hafa haft með sér héðan til útlanda og auk þess varning fenginn erlendis í ferðinni, um borð í flutningsfari eða í tollfrjálsri verslun hér á landi - auk varnings sem talinn er í 2. gr. - fyrir allt að 32.000 kr. að smásöluverði á innkaupsstað. Andvirði hvers hlutar má þó ekki nema hærri fjárhæð en 16.000 kr. Börn yngri en 12 ára skulu njóta að hálfu þeirra réttinda er að framan greinir.

Skipverjar og flugliðar innlendra farartækja svo og íslenskir farmenn og flugliðar erlendra farartækja sem leigð eru til nota hérlendis af íslenskum aðilum mega hafa með sér án greiðslu aðflutningsgjalda varning slíkan er greinir í 1. og 2. málsl. 1. mgr. fyrir allt að 12.000 kr. við hverja komu til landsins, hafi þeir verið skemur en 15 daga í ferð, en 24.000 kr. fyrir lengri ferð. Andvirði hvers hlutar má þó ekki nema hærri fjárhæð en 12.000 kr.

Ferðamönnum, sem búsettir eru erlendis, er heimilt án greiðslu aðflutningsgjalda að hafa með sér fatnað, sængurföt, viðlegubúnað og annan ferðabúnað (þ.m.t. matvæli og aðrar vistir) til eigin nota á ferðalaginu, enda geti varningur þessi talist hæfilegur og eðlilegur miðað við tilgang ferðalagsins, dvalartíma viðkomandi hérlendis og hagi hans að öðru leyti og varningurinn verði ennfremur fluttur úr landi við brottför eiganda að svo miklu leyti sem hann eyðist ekki hérlendis.

Andvirði matvæla (þ.m.t. sælgæti) sem heimilt er að taka með inn í landið skv. 1.-3. mgr. má ekki vera meira en 4.000 kr. og skulu þau ekki vera meira en 3 kg að þyngd.

2. gr.

Áfengir drykkir og tóbaksvörur.

A. Áfengir drykkir.

Auk varnings samkvæmt 1. gr. er ferðamönnum og áhöfnum heimilt að hafa meðferðis án greiðslu aðflutningsgjalda áfenga drykki sem hér segir:

 

 

Áfengi

Áfengi

 

 

 

22-50% að

undir 22%

 

 

 

styrkleika

styrkleika

ÖL

_______________________________________________

 

 

 

 

 

1. Ferðamenn . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .

 

1,01

1,0 l

Ekkert

 

eða

1,01

Ekkert

61 erlent eða

 

 

 

 

8 l innlent

 

eða

Ekkert

1,0 l

6 l erlent eða

 

 

 

 

8 l innlent

 

eða

Ekkert

2,0 l

Ekkert

2. Skipverjar á íslenskum skipum

 

 

 

 

og erlendum skipum í leigu ís-

 

 

 

 

lenskra aðila og með íslenskum

 

 

 

 

áhöfnum sem eru 15 daga eða

 

 

 

 

lengur í ferð . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .

 

1,51

3,01

Ekkert

 

eða

1,51

Ekkert

241 erlent eða

 

 

 

 

321 innlent

3. Skipverjar á skipum

 

 

 

 

samkvæmt 2. tl. þessarar

 

 

 

 

greinar sem eru skemur en

 

 

 

 

15 daga í ferð . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .

 

0,75 l

1,5 l

Ekkert

 

eða

0,75 l

Ekkert

12 l erlent eða

 

 

 

 

16 l innlent

_______________________________________________

 

 

Áfengi

Áfengi

 

 

 

22-50% að

undir 22`%

 

 

 

styrkleika

styrkleika

ÖL

4. Flugáhafnir

 

 

 

 

(þ.m.t. aukaáhafnir), sem

 

 

 

 

hafa skemmri útivist en

 

 

 

 

15 daga . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .

 

0,375 l

0,75 l

Ekkert

 

eða

0.375 l

Ekkert

3 l erlent eða

 

 

 

 

4 l innlent

 

eða

Ekkert

0,75 l

3 l erlent eða

 

 

 

 

4 l innlent

5. Flugáhafnir, (þ.m.t.

 

 

 

 

aukaáhafnir), á íslenskum

 

 

 

 

flugvélum sem hafa 15

 

 

 

 

daga samfellda útivist

 

 

 

 

eða lengri . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .

 

1,0 l

0,75 l

Ekkert

 

eða

1,0 l

Ekkert

6 l erlent eða

 

 

 

 

8 l innlent

 

eða

Ekkert

0,75 l

6 l erlent eða

 

 

 

 

8 l innlent

Skipverjar á íslenskum skipum sem í fyrsta sinn er siglt til íslenskrar hafnar eða hafa verið erlendis til viðgerðar eða breytinga skulu tollafgreiddir samkvæmt 3. tl.

Skipstjóra, yfirstýrimanni, yfirvélstjóra og bryta, svo og matsveinum á farþega- og vöruflutningaskipum
er heimilt að taka aukalega til risnu jafnstóran skammt og þeir hafa samkvæmt 1. málsgrein.

B. Tóbak

Hverjum ferðamanni, farmanni og flugliða, er heimilt að hafa með sér til landsins 200 stk. af vindlingum eða 250 g af öðru tóbaki. Skipverjum á íslenskum skipum og erlendum skipum í leigu íslenskra aðila og með íslenskum áhöfnum, sem eru 15 daga eða lengur í ferð er þó heimilt að hafa með sér 400 stk. af vindlingum eða 500 g af öðru tóbaki. Flugáhöfnum (þ.m.t. aukaáhöfnum) sem hafa skemmri útivist en 15 daga skal heimilt að hafa með sér 100 stk. vindlinga eða 125 g af öðru tóbaki. Í þessu sambandi reiknast hver vindill vega 5 g, hver smávindill 2,5 g og hver vindlingur 1,25 g. Smávindlar sem eru 1,5 g og léttari reiknast sem vindlingar.

Skipverjar á íslenskum skipum sem í fyrsta sinn er siglt til íslenskrar hafnar eða hafa verið erlendis til viðgerðar eða breytinga skulu tollafgreiddir samkvæmt 1. málslið.

Ef skip í utanlandssiglingum hefur viðdvöl hér samfleytt í sjö daga er tollstjóra heimilt að beiðni eiganda skips að veita skipverjum undan innsigli 200 stk. af vindlingum eða 250 g af öðru tóbaki til hverra sjö daga. Ekki skal veita undan innsigli sama dag og skip leggur úr höfn. Eiganda skips er skylt að greiða kostnað fyrir afgreiðslu samkvæmt þessari málsgrein.

Skipstjóra, yfirstýrimanni, yfirvélstjóra og bryta svo og matsveinum á farþega- og vöruflutningaskipum er heimilt að taka aukalega til risnu jafnstóran skammt og þeir hafa samkvæmt framangreindu.

3. gr.

Tollívilnanir samkvæmt 1. og 2. gr. gilda um varning sem viðkomandi farmaður eða ferðamaður hefur í eigin vörslu við komu frá útlöndum og innfluttur er til persónulegra nota viðkomandi, fjölskyldu hans eða til gjafa. Ennfremur er heimilt að leyfa tollfrjálsan innflutning farangurs sem orðið hefur viðskila við eiganda, enda sýni hann fram á með vottorði tollgæslunnar að hann hafi ekki nýtt sér tollfríðindi samkvæmt 1. gr. þegar hann kom til landsins.

Lágmarksaldur til innflutnings áfengis samkvæmt reglum þessum er 20 ár og 16 ár að því er varðar innflutning á tóbaki. Tollgæslumaður getur krafist þess að lágmarksaldur sé sannaður með framvísun persónuskilríkja.

Flugliðar, farmenn og ferðamenn njóta ekki tollívilnunar samkvæmt 1 . og 2. gr. oftar en einu sinni á hverjum 72 klukkustundum.

Sé verðmæti hlutar sem framvísað er meira en um ræðir í 1. gr. getur viðkomandi notið tollfríðinda samkvæmt 1. gr. enda greiði hann aðflutningsgjöld af því verðmæti sem umfram er tollívilnun.

4. gr.

Með aðflutningsgjöldum í reglugerð þessari er átt við toll, virðisaukaskatt og einkasölugjald og þau gjöld önnur sem lögð eru á og innheimt við tollafgreiðslu á innfluttum vörum.

5. gr.

Inntlutningsbann og -takmarkanir.

Ákvæði reglugerðar þessarar veita hvorki undanþágu frá innflutningsbanni né innflutningstakmörkunum á ýmsum vörutegundum samkvæmt lögum, reglugerðum, eða öðrum stjórnvaldsfyrirmælum.

Meðal vara sem innflutningur er bannaður á eru eftirtaldar vörutegundir:

1. Ávana- og fíkniefni, svo sem Asetorfín, Desómorfín, DET, DMHP, DMT, Etorfín, Heróín, Kókaín, Kannabis (Marihuana) og Kannabis harpeis, Ketóbemídón, Lýsergíð (LSD, LSD- 25) Meskalín (peyote), Parahexýl, Psflosine, Psílotsín, Psílocybin, STP, DOM, Tetrahýdrócannabínólar, allir ísómerar.

2. Ósoðið kjötmeti og kjötvörur ýmiss konar, t.d. þurrkað kjötmeti, ósoðin reykt svínslæri, beikon, svínahryggir, reyktar ósoðnar pylsur, ósoðnir fuglar og fuglainnyfli, fersk eða fryst, innmatur, svið og blóð.

3. Ósoðin mjólk, ósoðin egg, eggjaduft og sykraðar eggjarauður.

Meðal vara sem háðar eru innflutningsleyfum eru eftirtaldar vörutegundir:

1. Lyf umfram hæfilegt magn til persónulegra þarfa viðkomandi farmanns eða ferðamanns.

2. Skotvopn, skotfæri og sprengiefni.

3. Símar, talstöðvar, radíósendar og viðtæki sem ekki eru ætluð til almennrar útvarpsviðtöku.

4. Lifandi dýr.

Tollfríðindi geta náð til vara, sem háðar eru innflutningsleyfum, enda sé þess gætt að tilskilin leyfi séu fyrir hendi.

6. gr.

Framvísunarskylda o.fl.

Farþegi sem kemur til landsins frá útlöndum skal við komu ótilkvaddur skýra tollgæslumanni frá og framvísa við hann tollskyldum varningi sem hann hefur meðferðis svo og þeim varningi sem háður er innflutningstakmörkunum eða innflutningsbanni. Af tollskyldum varningi sem heimilaður er innflutningur á skal greiða aðflutningsgjöld með venjulegum hætti.

Þar sem tollafgreiðsla farþega fer fram er tollstjóra heimilt að hafa aðskilda tollafgreiðslu, annars vegar fyrir þá sem hafa engan tollskyldan farangur meðferðis við komu til landsins og hins vegar fyrir þá sem annað hvort hafa tollskyldan farangur meðferðis eða farangur sem háður er innflutningstakmörkunum eða innflutningsbanni. Fyrrnefndir farþegar skulu ganga um hlið, merkt grænu átthyrndu skilti með áletruninni: "ENGINN TOLLSKYLDUR VARNINGUR". Síðarnefndir farþegar skulu ganga um hlið, merkt rauðu ferhyrndu skilti með áletruninni: "TOLLSKYLDUR VARNINGUR". Við skiltin skal skráð

"TOLLGÆSLA". Áletranir skulu vera á íslensku og þeim erlendu tungumálum sem tollstjóra þykir ástæða til. Um leið og farþegi hefur gengið um hlið sem merkt er samkvæmt framansögðu telst hann hafa svarað því hvort hann hafi meðferðis tollskyldan varning eða varning sem háður er innflutningstakmörkunum eða innflutningsbanni.

Við tollafgreiðslu aðkomufars skal sérhver farmaður gera tollgæslunni skriflega grein fyrir öllum varningi sem hann hefur fengið erlendis eða í ferðinni, hvort sem hann er tollskyldur eða ekki og eins þótt sá varningur kunni að vera háður innflutningstakmörkunum eða innflutningsbanni. Einnig skal hann gera tollgæslunni skriflega grein fyrir áður fengnum tollskyldum varningi, en ótollafgreiddum, sem notaður er um borð í fari. Framvísa ber við tollgæslumann þeim varningi sem kann að vera háður innflutningstakmörkunum eða innflutningsbanni svo og öðrum þeim varningi sem tollgæslumaður óskar eftir að skoða.

Óski tollgæslumaður eftir því að skoða farangur farþega eða farmanns skulu þeir veita til þess alla aðstoð með því að opna töskur og umbúðir, taka upp úr þeim og gefa þær upplýsingar um farangurinn sem um er beðið. Komi fram varningur við þessa skoðun sem ekki er greint frá eins og fyrir er mælt hér að framan skoðast hann ólöglega innfluttur og er þá heimilt að gera hann upptækan til ríkissjóðs auk þess sem viðkomandi kann að þurfa að sæta refsingu.

7. gr.

Um einkasölugjald o.fl.

Nú hefur einhver af áhöfn fars eða farþegi við komu til landsins meðferðis meira magn af varningi en heimilaður er tollfrjáls innflutningur á samkvæmt 2. gr. og ríkið eða stofnanir þess hafa einkasölu á og er viðkomandi þá heimilt að halda til viðbótar allt að þreföldu því magni sem þar greinir gegn greiðslu einkasölugjalds samkvæmt eftirfarandi gjaldskrá, enda hafi viðkomandi gert grein fyrir og framvísað varningnum við tollgæslu eins og fyrir er mælt í reglugerð þessari:

A. Áfengi:

kr/l

1. Rauðvín, hvítvín, ljós rauðvín og freyðivín . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .

700

2. Portvín, sherry, madeira, vermút, líkjörar, aperitívar, o.fl. undir 22% styrkleika .

1 000

3. Aperitívar, þ.m.t. bitterar undir 30% styrkleika . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .

1 400

4. Koníak, brandy, whisky, vodka, gin, genever, romm, líkjörar, bitterar o.fl. yfir

 

30% styrkleika . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .

2 300

5. Öl (24 stk. af 33 cl dósum) . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .

2 300

B. Tóbak:

 

1. Reyktóbak . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .

2 000 kr/tylft

 

bréfa eða lb.

2. Vindlingar . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .

1 200 kr/200 stk.

3. Smávindlar . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .

90 kr/10 stk.

4. Vindlar, meðalstærð . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .

450 kr/25 stk.

5. Vindlar, aðrir . . . . . . . . . . .. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .

800 kr/25 stk.

Sé um að ræða aðrar stærðir umbúða en að ofan greinir skal greitt hlutfallslega.

Nú er framvísað meira magni en um getur í 1. mgr. og getur tollstjóri þá heimilað innflutning gegn greiðslu einkasölugjalds ef sérstakar ástæður eru fyrir hendi en ella gert varninginn upptækan til ríkissjóðs.

Þegar um er að ræða tækifæris- og gjafasendingar frá útlöndum á áfengi og tóbaki má hver sending ekki nema meira magni en tvöföldu því sem tilgreint er í 1. tölul. 1. mgr. 2. gr. Greiða skal einkasölugjald af slíkum sendingum eftir gjaldskránni í 1. mgr. þessarar greinar.

8. gr.

Sérhverja afgreiðslu samkvæmt 7. gr. skal færa í sérstaka afgreiðslubók. Þar skal fært inn magn og tegund varnings sem greitt er af, svo og gjöld þau sem innheimt eru, en innflytjandi á rétt á að fá greiðslukvittun. Ennfremur skal varningurinn auðkenndur með sérstökum merkimiðum sem Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins lætur tollgæslunni í té og gerðir skulu í samráði við ríkistollstjóra. Ríkistollstjóri getur ákveðið að framangreindur varningur verði auðkenndur með öðrum hætti.

9. gr.

Einkasölugjald sem innheimt er samkvæmt 7. gr. skal sent viðkomandi einkasölu svo fljótt sem kostur er og eigi síðar en tveim mánuðum eftir að afgreiðsla fór fram.

10. gr.

Nú er varningur sem tollafgreiddur er samkvæmt reglugerð þessari seldur eða boðinn til sölu án þess að aðflutningsgjöld hafi áður verið greidd og varðar það þá refsingu samkvæmt XIV. kafla tollalaga nr. 55 30. mars 1987, með áorðnum breytingum.

11. gr.

Reglugerð þessi, er sett samkvæmt heimild í 4. og 5. tl. 5. gr. og 20. tl. 6. gr. tollalaga nr. 55 30. mars 1987, með áorðnum breytingum, og 3. mgr. 1. gr. laga nr. 63 28. maí 1969, um verslun ríkisins með áfengi, tóbak og lyf, með áorðnum breytingum, til að öðlast gildi þegar í stað. Jafnframt er úr gildi felld reglugerð nr. 55/1991, um sama efni.

Fjármálaráðuneytið, 29. júní 1992.

F. h. r.

Bjarnveig Eiríksdóttir.

Rúna S. Geirsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica