REGLUGERÐ
um söfnun, endurvinnslu og skilagjald á einnota umbúðir
fyrir drykkjarvörur.
1. gr.
Skilagjald.
Leggja skal skilagjald á drykkjarvörur í einnota umbúðum úr málmi, gleri, plasti, plastefnum eða sambærilegum efnum, svo og öl, gosdrykki eða slíka drykki, sem framleiddir eru eða átappaðir hér á landi í samskonar umbúðum og að framan greinir. Skilagjaldið skal nema 5,63 krónum á hverja umbúðaeiningu.
2. gr.
Umsýsluþóknun.
Umsýsluþóknun, skal leggja á til viðbótar skilagjaldi og skal nema 5% af skilagjaldi.
3. gr.
Gjaldskylda.
Gjaldskylda skv. 1. gr. nær til allra drykkjarvara í einnota umbúðum, sem fluttar eru til landsins eða eru framleiddar eða átappaðar hérlendis eru til sölu hér á landi og flokkast undir vöruliði 2201, 2202, 2203, 2204, 2205, 2206 og 2208 í tollskrá, sem er viðauki I við tollalög nr. 55/1987.
Skilagjald leggst ekki á drykkjarvörur í einnota umbúðum, sem seldar eru úr landi. Við flokkun til gjaldskyldu skv. reglugerð þessari skal fylgja flokkunarreglum tollalaga nr. 55/1987, með áorðnum breytingum.
Ákvæði tollalaga gilda jafnframt um úrskurðarvald í ágreiningsmálum um tollflokkun drykkjarvara.
4. gr.
Álagning skilagjalds
Öllum þeim, sem flytja inn til landsins skilagjaldsskyldar vörur skv. 1. gr., hvort sem er til eigin nota eða endursölu, ber skylda til við tollafgreiðslu að greiða skilagjald og umsýsluþóknun af hinum innfluttu vörum.
Skilagjald og umsýsluþóknun mynda ekki gjaldstofn við útreikning annarra aðflutningsgjalda en virðisaukaskatts.
5. gr.
Gjaldskyldir aðilar.
Þeim, sem framleiða eða tappa á skilagjaldsskyldar vörur innanlands, ber skylda til að greiða skilagjald og umsýsluþóknun af framleiðslu sinni og standa skil á því í ríkissjóð. Skilagjald og umsýsluþóknun mynda ekki gjaldstofn við álagningu vörugjalds eða annarra sambærilegra framleiðslugjalda. Gjöldin mynda hins vegar stofn til virðisaukaskatts.
6. gr.
Innheimta, uppgjörstímabil, gjalddagar o.fl.
Skilagjald og umsýsluþóknun af innlendum drykkjarvörum reiknast við sölu eða afhendingu þeirra frá framleiðanda, og skiptir þá ekki máli hvenær eða með hvaða hætti greiðsla kaupanda fer fram. Þó skal Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins sjá um greiðslu skilagjalds og umsýsluþóknunar af sölu fyrirtækisins á innlenndri framleiðslu öls og áfengis og standa skil á því í ríkissjóð.
Hvert uppgjörstímabil vegna skilagjaldsskyldrar innlendrar framleiðslu eða átöppunar eru tveir mánuðir: janúar og febrúar; mars og apríl; maí og júní; júlí og ágúst; september og október; nóvember og desember.
Skilagjaldi og umsýsluþóknun af innlendri framleiðslu, ásamt framtalsskýrslu í því formi sem ríkisskattstjóri ákveður, skal skila eigi síðar en á gjalddaga, og skulu framleiðendur senda Endurvinnslunni hf. afrit af innlagðri framtalsskýrslu. Gjalddagi er fimmtándi dagur annars mánaðar eftir lok uppgjörstímabils vegna sölu eða afhendingar á því tímabili. Beri gjalddaga upp á helgidag eða almennan frídag, færist gjalddagi á næsta virkan dag þar á eftir.
7. gr.
Viðurlög.
Ef skilagjald og umsýsluþóknun er ekki greitt á tilskildum tíma, skal aðili sæta álagi til viðbótar skilagjaldi eða til viðbótar því skilagjaldi og umsýsluþóknun, sem honum ber að standa skil á. Sama gildir ef skýrslu og skilagrein, skv. 6. gr., hefur ekki verið skilað eða verið ábótavant og skilagjald og umsýsluþóknun því áætlað, nema aðili hafi greitt fyrir gjalddaga upphæð, er til áætlunar svarar, eða gefið fullnægjandi skýringu á vafaatriðum fyrir lok kærufrests.
Álag skv. 1. mgr. skal vera sem hér segir:
1. 4% álag á þá upphæð, sem vangreidd er, fyrir hvern byrjaðan virkan dag eftir gjalddaga, þó ekki hærra en 20%.
2. Álag til viðbótar af vangreiddri upphæð fyrir hvern byrjaðan mánuð, reiknað í fyrsta sinn fyrsta dag næsta mánaðar eftir gjalddaga, hið sama og dráttarvextir eru á hverjum tíma, sbr. III. kafla vaxtalaga nr. 25/ 1987.
8. gr.
Innheimta og endurgreiðsla.
Skilagjald og umsýsluþóknun skal greiða í ríkissjóð, er síðan ráðstafar umsýsluþóknuninni, skilagjaldinu og virðisaukaskatti af því jafnskjótt og við verður komið til Endurvinnslunnar hf. Endurvinnslan hf. skal sjá um að skilagjaldið verði endurgreitt neytendum ásamt virðisaukaskatti af því við móttöku á notuðum skilagjaldsskyldum umbúðum. Skal endurgreiðslan þannig nema samtals 7,00 krónum á hverja umbúðaeiningu. Þó skulu líða 60 dagar frá hækkun álagðs skilagjalds úr 6,00 krónum í 7,00 krónur þar til Endurvinnslan hf. hækkar endurgreiðslu til neytenda fyrir hverja umbúð, sem skilað verður, úr 6,00 krónum í 7,00 krónur. Á sama hátt skal greiða samsvarandi gjald til einstaklinga, fyrirtækja eða félagasamtaka, sem taka að sér að safna slíkum umbúðum til eyðingar eða endurvinnslu.
9. gr.
Endurvinnslan hf.
Endurvinnslan hf. skal sjá um að koma upp og viðhalda skilvirku fyrirkomulagi á söfnun skilagjaldsskyldra umbúða um land allt. Félagið skal einnig endurvinna umbúðir eða koma þeim til endurvinnslu eða eyðingar.
Endurvinnslan hf. skal gefa umhverfisráðuneytinu reglulega skýrslu um starfrækslu skilakerfisins, þ.m.t. fjölda skilaðra umbúða eftir tegundum.
10. gr.
Reglugerðarheimild.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt 4. gr. laga nr. 52/1989 um ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur, og öðlast gildi 1. júní 1994. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 358/1990, ásamt síðari breytingum.
Umhverfisráðuneytið, 17. maí 1994.
Össur Skarphéðinsson.
Þórður H. Ólafsson.