1. mgr. 3. gr. orðist svo:
Gjaldskylda samkvæmt 1. gr. nær til allra drykkjarvara í einnota umbúðum, sem fluttar eru til landsins eða eru framleiddar eða átappaðar hérlendis og eru til sölu hér á landi og flokkast undir vöruliði 2201, 2202, 2203, 2204, 2205, 2206, 2208 eða 0403.9003 í tollskrá, sem er viðauki I við tollalög nr. 55/1987.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í ákvæði 4. gr. laga nr. 52/1989 um ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur til þess að öðlast gildi við birtingu.
Umhverfisráðuneytið, 22. febrúar 1995.
Össur Skarphéðinsson.
Ingimar Sigurðsson.