2. gr. reglugerðarinnar orðist svo:
Náttúruvernd ríkisins til ráðgjafar starfar sérstök ráðgjafarnefnd skipuð af ráðherra til 4 ára í senn. Í nefndinni eiga sæti forstjóri Náttúruverndar ríkisins sem er formaður, einn fulltrúi tilnefndur af Kelduneshreppi og einn tilnefndur af ferðamálasamtökum í viðkomandi landshluta. Þjóðgarðsvörður situr fundi nefndarinnar og hefur málfrelsi og tillögurétt. Nefndin skal halda fundi eigi sjaldnar en tvisvar á ári.
Reglugerð þessi er sett í samræmi við ákvæði 52. gr. laga nr. 44/1999 um náttúruvernd og öðlast þegar gildi.