515/2023
Reglugerð um (10.) breytingu á reglugerð nr. 822/2010 um flutning úrgangs á milli landa.
1. gr.
Við 1. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar bætist tveir nýir stafliðir svohljóðandi:
-
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1840 frá 20. október 2021 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1418/2007 um útflutning á tilteknum tegundum úrgangs til endurnýtingar sem tilgreindar eru í III. viðauka eða III. viðauka A við reglugerð (EB) nr. 1013/2006 til tiltekinna landa, sem falla ekki undir ákvörðun Efnahags- og framfarastofnunarinnar um eftirlit með flutningi úrgangs yfir landamæri, sem vísað er til í lið 32cb í XX. kafla viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 350/2022, þann 9. desember 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 8 frá 26. janúar 2023, bls. 346-407.
-
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/520 frá 31. mars 2022 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1418/2007 um útflutning á tilteknum tegundum úrgangs til endurnýtingar sem tilgreindar eru í III. viðauka eða III. viðauka A við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1013/2006 til tiltekinna landa, sem falla ekki undir ákvörðun Efnahags- og framfarastofnunarinnar um eftirlit með flutningi úrgangs yfir landamæri, sem vísað er til í lið 32cb í XX. kafla viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 350/2022, þann 9. desember 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 8 frá 26. janúar 2023, bls. 408-415.
2. gr.
Innleiðing.
Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirtöldum EES-gerðum:
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1840 frá 20. október 2021 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1418/2007 um útflutning á tilteknum tegundum úrgangs til endurnýtingar sem tilgreindar eru í III. viðauka eða III. viðauka A við reglugerð (EB) nr. 1013/2006 til tiltekinna landa, sem falla ekki undir ákvörðun Efnahags- og framfarastofnunarinnar um eftirlit með flutningi úrgangs yfir landamæri.
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/520 frá 31. mars 2022 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1418/2007 um útflutning á tilteknum tegundum úrgangs til endurnýtingar sem tilgreindar eru í III. viðauka eða III. viðauka A við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1013/2006 til tiltekinna landa, sem falla ekki undir ákvörðun Efnahags- og framfarastofnunarinnar um eftirlit með flutningi úrgangs yfir landamæri.
3. gr.
Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 43. gr. laga nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs, og öðlast þegar gildi.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 26. maí 2023.
Guðlaugur Þór Þórðarson.
Stefán Guðmundsson.