Við reglugerðina bætist svohljóðandi ákvæði til bráðabirgða:
Þrátt fyrir ákvæði 3. og 5. gr. reglugerðar þessarar skal brunamálastjóri að fengnu samþykki félagsmálaráðherra úthluta styrkjum úr Fræðslusjóði brunamála á síðari hluta ársins 1995.
Reglugerð þessi, sem sett er á grundvelli 2. mgr. 24. gr. laga um brunavarnir og brunamál nr. 41/1992, öðlast þegar gildi.
Félagsmálaráðuneytið, 29. ágúst 1995.
Páll Pétursson.
Sesselja Árnadóttir.