321/2023
Reglugerð um breytingu á reglugerð um starfsemi slökkviliða nr. 747/2018.
1. gr.
Við reglugerðina bætist ný grein ásamt fyrirsögn, sem verður 22. gr. og breytist röð annarra greina samkvæmt því:
Einkennisfatnaður slökkviliðsmanna.
Slökkviliðsmenn skulu að jafnaði ganga í einkennisfatnaði við störf sín. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun skal gefa út leiðbeiningar um einkennisfatnað slökkviliða að fenginni umsögn Félags slökkviliðsstjóra.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á viðauka við reglugerðina:
- Orðin ":1998" í 1. mgr. falla brott.
- Á eftir 4. mgr. bætast tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
ÍST EN 14710-1 Slökkvidælur - Miðflóttaaflsdælur án sogdælubúnaðar - 1. hluti: Flokkun, almennar kröfur og öryggiskröfur (Fire-fighting pumps - Fire-fighting centrifugal pumps without primer - Part 1: Classification, general and safety requirements).
ÍST EN 14710-2 Slökkvidælur - Miðflóttaaflsdælur án sogdælubúnaðar - 2. hluti: Sannprófun á almennum kröfum og öryggiskröfum (Fire-fighting pumps - Fire-fighting centrifugal pumps without primer - Part 2: Verification of general and safety requirements).
- Orðin ":2007" í 20. mgr. (nú 18. mgr.) falla brott.
- Fyrirsögn viðaukans verður: Búnaður slökkviliða skal að lágmarki uppfylla ákvæði nýjustu útgáfu eftirtalinna staðla.
3. gr.
Lagastoð og gildistaka.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 17. og 39. gr. laga nr. 75/2000 um brunavarnir, öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 13. mars 2023.
Sigurður Ingi Jóhannsson.