1. gr.
Gjaldtaka er heimil innan Vatnajökulsþjóðgarðs fyrir veitta þjónustu og aðgang að svæðinu, eftir því sem nánar er kveðið á um í 2., 3. og 4. gr. Virðisaukaskattur og gistináttaskattur er innifalinn í gjaldi samkvæmt 2. gr. Virðisaukaskattur er innifalinn í gjaldi samkvæmt 3. og 4. gr.
2. gr.
Gjald fyrir einn í gistingu í eina nótt á tjaldstæði í tjaldi, fellihýsi, tjaldvagni, hjólhýsi eða húsbíl (*):
1. | Almennt gjald | kr. | 1.700 | |
2. | 13 til 16 ára börn, í fylgd með fullorðnum | kr. | 800 |
Aðgangur 12 ára og yngri barna, í fylgd með fullorðnum, að tjaldstæði er gjaldfrjáls.
Gjald fyrir gistingu í skála A í eina nótt:
1. | Almennt gjald | kr. | 6.500 | |
2. | 13 til 16 ára börn, í fylgd með fullorðnum | kr. | 3.250 |
Aðgangur 12 ára og yngri barna, í fylgd með fullorðnum, að skála A er gjaldfrjáls.
Gjald fyrir gistingu í skála B í eina nótt:
1. | Almennt gjald | kr. | 5.000 | |
2. | 13 til 16 ára börn, í fylgd með fullorðnum | kr. | 2.500 |
Aðgangur 12 ára og yngri barna, í fylgd með fullorðnum, að skála B er gjaldfrjáls.
_____________
(*) Þjónustugjald er innifalið í tjaldsvæðisgjaldi.
3. gr.
Gjald fyrir aðra þjónustu:
1. | Sturtugjald, eitt skipti | kr. | 500 | |
2. | Rafmagn fyrir húsbíl, hjólhýsi og fellihýsi, pr. sólarhring | kr. | 1.000 | |
3. | Afnot af þvottavél, eitt skipti | kr. | 500 | |
4. | Afnot af þurrkara, eitt skipti | kr. | 500 | |
5. | Gjald vegna almenns aðgangs að aðstöðu í skála, einn dagur (án gistingar) | kr. | 500 | |
6. | Sértæk þjónusta við ferðamenn sem felur í sér sérstakt vinnuframlag af hálfu starfsmanna þjóðgarðsins, gjald fyrir hverja klst. | kr. | 16.000 | |
7. | Útgáfa atvinnuleyfa | kr. | 25.000 | |
8. | Kortabæklingur, stk. | kr. | 500 | |
9. | Aðrir bæklingar, stk. | kr. | 400 | |
10. | Aðgangsgjald í íshella, pr. mann | kr. | 1.000 | |
13 til 16 ára börn, í fylgd með fullorðnum | kr. | 500 |
Aðgangur 12 ára og yngri barna, í fylgd með fullorðnum er gjaldfrjáls.
4. gr.
Þjónustugjald í Skaftafelli (sólarhringsgjald frá kl. 00.00 - 24.00):
Gildir frá 1. ágúst 2017.
1. | Flokkur A - Fólksbifreið, 5 manna eða færri | kr. | 600 | |
2. | Flokkur B - Fólksbifreið 6-9 manna | kr. | 900 | |
3. | Flokkur C - Rúta, 10-18 manna | kr. | 1.800 | |
4. | Rútur D, E og F | kr. | 3.600 | |
5. | Bifhjól | kr. | 300 |
5. gr.
Reglugerð þessi, sem er sett samkvæmt heimild í 21. gr. laga nr. 60/2007, um Vatnajökulsþjóðgarð, öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð um gjaldtöku vegna tjaldstæða og þjónustu í Vatnajökulsþjóðgarði, nr. 877/2015.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 14. júlí 2017.
F. h. r.
Jón Geir Pétursson.
Stefán Guðmundsson.