1. gr.
Við 1. gr. bætist nýr stafliður, e-liður, sem orðast svo:
e) |
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 304/2009 frá 14. apríl 2009 um breytingu á IV. og V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 850/2004 að því er varðar meðhöndlun úrgangs sem inniheldur þrávirk, lífræn mengunarefni, í varmaferlum og málmframleiðsluferlum, sem vísað er til í tölulið 12w, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 67/2010, þann 12. júní 2010. Reglugerðin er birt í fylgiskjali 2 með reglugerð þessari. |
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 20. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs og 4. gr. laga nr. 45/2008 um efni og efnablöndur.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Umhverfisráðuneytinu, 15. október 2010.
F. h. r.
Magnús Jóhannesson.
Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.
Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)