834/2019
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1077/2010 um flutning á hættulegum farmi á landi.
1. gr.
Við 2. mgr. 38. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður svohljóðandi:
- Tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2018/1846/ESB frá 23. nóvember 2018 um breytingu á viðaukunum við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2008/68/EB um flutning á hættulegum farmi á landi og skipgengum vatnaleiðum í því skyni að laga viðaukana að framförum á sviði vísinda og tækni sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 49, frá 20. júní 2019, bls. 287-288.
2. gr.
Lagastoð og gildistaka.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 2. mgr. 50. gr., 1. mgr. 60. gr. og 5. mgr. 73. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 6. september 2019.
F. h. r.
Sigurbergur Björnsson.