Fiskveiðiárin 2001/2002 til og með 2005/2006 hefur sjávarútvegsráðherra til sérstakrar ráðstöfunar aflaheimildir sem nema árlega 500 lestum af óslægðum þorski sem skal ráðstafað til tilrauna með áframeldi á þorski í samráði við Hafrannsóknastofnunina sem fylgist með tilraununum og birtir niðurstöður um gang þeirra. Úthlutun fer fram einu sinni á ári og gildir til árs í senn. Aflaheimildirnar eru ekki framseljanlegar, hvorki til annarra eldisfyrirtækja né til almennra veiða.
Hafrannsóknastofnunin leggur mat á fræðilegt framlag eldistilraunanna og tekur tillit til gildis þeirra sem þáttar í víðtækum rannsóknum á áframeldi á þorski sem miða m.a. að því að kanna möguleika á þorskeldi við mismunandi umhverfisaðstæður við landið, einnig skal miðað við að tilraunirnar taki til þátta sem dragi úr afföllum við föngun fisks og flutning hans í eldiskvíar og við eldi, svo og að auka vöxt og holdgæði eldisfisks.
Sjávarútvegsráðherra skal við úthlutun þessara aflaheimilda taka tillit til aðstöðu umsækjenda til að stunda áframeldi, þ.e. stærð og gerð kvía, frágang þeirra og staðsetningu. Ráðherra getur óskað upplýsinga um aðrar aflaheimildir sem umsækjandi hefur til ráðstöfunar vegna áframeldisins og tekið tillit til þess við úthlutunina ásamt fyrri reynslu og framtíðaráætlunum umsækjenda þegar hann leggur mat á hæfni umsækjenda til að takast á við viðfangsefnið.
Fiskistofa sér um framkvæmd úthlutunar aflaheimildanna til fiskeldisfyrirtækjanna sem við úthlutun skulu greiða veiðieftirlitsgjald í samræmi við ákvæði 2. gr. laga nr. 33/2000, um veiðieftirlitsgjald. Fiskistofa veitir jafnframt leyfi til áframeldisins og hefur eftirlit með framkvæmd þess, skv. ákvæðum laga nr. 33/2002, um eldi nytjastofna sjávar og setur nánari skilyrði um framkvæmd eldisins. Fiskiskip sem eldisfyrirtæki felur að fanga fyrir sig fisk skal hafa almennt leyfi til fiskveiða í atvinnuskyni og skal við það verk og aðra þætti starfseminnar hlíta ákvæðum laga nr. 38/1990, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.
Reglugerð þessi er sett skv. ákvæðum laga nr. 85 15. maí 2002, um breytingu á lögum nr. 38 15. maí 1990, um stjórn fiskveiða með síðari breytingum, til að öðlast þegar gildi og varða brot gegn ákvæðum reglugerðarinnar refsingum samkvæmt ákvæðum þeirra laga eða laga nr. 33, 16. apríl 2002, um eldi nytjastofna sjávar.