637/2021
Reglugerð um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2236 um reglur um beitingu reglugerða Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429 og (ESB) 2017/625 að því er varðar fyrirmyndir að dýraheilbrigðisvottorðum vegna komu inn í Sambandið og tilflutninga innan Sambandsins á sendingum af lagardýrum og af tilteknum lagardýraafurðum og opinbera vottun að því er varðar slík vottorð (dýraheilbrigði).
Stofnreglugerð:
Breytingareglugerð:
1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 93/2021, frá 19. mars 2021, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2236 frá 16. desember 2020 um beitingu reglugerða Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429 og (ESB) 2017/625 að því er varðar fyrirmyndir að dýraheilbrigðisvottorðum vegna komu inn í Sambandið og tilflutninga innan Sambandsins á sendingum af lagardýrum og opinbera vottun að því er varðar slík vottorð og um niðurfellingu á reglugerð (EB) nr. 1251/2008. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 34, frá 12. maí 2021, bls. 367.
2. gr.
Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 54/1990, um innflutning dýra, lög nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, lög nr. 60/2006, um varnir gegn fisksjúkdómum og lög nr. 71/2008, um fiskeldi.
3. gr.
Um þvingunarúrræði og viðurlög vísast til laga nr. 54/1990, um innflutning dýra, laga nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, laga nr. 60/2006, um varnir gegn fisksjúkdómum og laga nr. 71/2008, um fiskeldi.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 54/1990, um innflutning dýra, lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, lögum nr. 60/2006, um varnir gegn fisksjúkdómum og lögum nr. 71/2008, um fiskeldi, öll með síðari breytingum.
Reglugerð þessi öðlast þegar gildi og á sama tíma fellur brott reglugerð nr. 168/2011, með síðari breytingum.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 26. maí 2021.
Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Reglugerðir sem falla brott:
- 10/2021 Reglugerð um (9.) breytingu á reglugerð nr. 168/2011 um skilyrði og kröfur vegna útgáfu heilbrigðisvottorða við markaðssetningu lagareldisdýra, afurða þeirra og innflutning þeirra inn á EES-svæðið og um skrá yfir tegundir smitferja.
- 1333/2019 Reglugerð um (8.) breytingu á reglugerð nr. 168/2011 um skilyrði og kröfur vegna útgáfu heilbrigðisvottorða við markaðssetningu lagareldisdýra, afurða þeirra og innflutning þeirra inn á EES-svæðið og um skrá yfir tegundir smitferja.
- 422/2019 Reglugerð um (7.) breytingu á reglugerð nr. 168/2011 um skilyrði og kröfur vegna útgáfu heilbrigðisvottorða við markaðssetningu lagareldisdýra, afurða þeirra og innflutning þeirra inn á EES-svæðið og um skrá yfir tegundir smitferja.
- 317/2017 Reglugerð um (6.) breytingu á reglugerð nr. 168/2011 um skilyrði og kröfur vegna útgáfu heilbrigðisvottorða við markaðssetningu lagareldisdýra, afurða þeirra og innflutning þeirra inn á EES-svæðið og um skrá yfir tegundir smitferja.
- 169/2015 Reglugerð um (5.) breytingu á reglugerð nr. 168/2011 um skilyrði og kröfur vegna útgáfu heilbrigðisvottorða við markaðssetningu lagareldisdýra, afurða þeirra og innflutning þeirra inn á EES-svæðið og um skrá yfir tegundir smitferja.
- 389/2014 Reglugerð um (4.) breytingu á reglugerð nr. 168/2011 um skilyrði og kröfur vegna útgáfu heilbrigðisvottorða við markaðssetningu lagareldisdýra, afurða þeirra og innflutning þeirra inn á EES-svæðið og um skrá yfir tegundir smitferja.
- 142/2013 Reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð nr. 168/2011 um skilyrði og kröfur vegna útgáfu heilbrigðisvottorða við markaðssetningu lagareldisdýra, afurða þeirra og innflutning þeirra inn á EES-svæðið og um skrá yfir tegundir smitferja.
- 661/2012 Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 168/2011 um skilyrði og kröfur vegna útgáfu heilbrigðisvottorða við markaðssetningu lagareldisdýra, afurða þeirra og innflutning inn á EES-svæðið og um skrá yfir tegundir smitferja.
- 1010/2011 Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 168/2011 um skilyrði og kröfur vegna útgáfu heilbrigðisvottorða við markaðssetningu lagareldisdýra, afurða þeirra og innflutning þeirra inn á EES-svæðið og um skrá yfir tegundir smitferja.
- 168/2011 Reglugerð um skilyrði og kröfur vegna útgáfu heilbrigðisvottorða við markaðssetningu lagareldisdýra, afurða þeirra og innflutning þeirra inn á EES-svæðið og um skrá yfir tegundir smitferja.