1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla, I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 134/2007, frá 26. október 2007, öðlast eftirfarandi ESB-gerð gildi hér á landi:
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/589 frá 11. apríl 2019 um breytingu á III. viðauka við reglugerð (EB) nr. 1251/2008 að því er varðar að færa Sameinaða konungsríkið Stóra-Bretland og Norður-Írland og tilteknar hjálendur krúnunnar á skrá yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði, svæði eða hólf þaðan sem leyfður er aðflutningur á sendingum af lagareldisdýrum til Evrópusambandsins.
2. gr.
Ofangreind reglugerð framkvæmdastjórnarinnar er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 93/1995 um matvæli, lögum nr. 55/1998 um sjávarafurðir, lögum nr. 71/2008 um fiskeldi, lögum nr. 54/1990 um innflutning dýra, lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim og lögum nr. 60/2006 um varnir gegn fisksjúkdómum, öll með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 8. maí 2019.
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
Kristján Skarphéðinsson.
Iðunn Guðjónsdóttir.
Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)