1. gr.
Reglugerð nr. 283/2011 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1151/2009 um setningu sérstakra skilyrða fyrir innflutningi á sólblómaolíu, sem er upprunnin í Úkraínu eða send þaðan, vegna áhættu á mengun af völdum jarðolíu og um niðurfellingu á ákvörðun 2008/433/EB, er felld úr gildi.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 853/2014 frá 5. ágúst 2014 um niðurfellingu á reglugerð (EB) nr. 1151/2009 um setningu sérstakra skilyrða fyrir innflutningi á sólblómaolíu sem er upprunnin í Úkraínu eða send þaðan. Reglugerðin var felld inn í samninginn á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 134/2007 frá 1. maí 2010. Reglugerð (ESB) nr. 853/2014 er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 27. gr. b og 31. gr. a laga nr. 93/1995, um matvæli.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 5. júní 2015. |
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, |
Ólafur Friðriksson. |
Eggert Ólafsson.
Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)