1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XIV. kafla II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 11/2012 frá 11. febrúar 2012 öðlast eftirfarandi ESB-gerð gildi hér á landi:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 137/2011 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2003/2003 um áburð í því skyni að laga I. og IV. viðauka við hana að tækniframförum.
2. gr.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 137/2011 er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.
3. gr.
Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar vegna áburðareftirlits sé framfylgt í samræmi við 3. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 24. apríl 2012.
F. h. r.
Sigurgeir Þorgeirsson.
Baldur P. Erlingsson.
Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)