1. gr.
Reglugerð þessi gildir um úthlutun aflaheimilda samkvæmt 5. mgr. 6. gr. laga nr. 116/2006, sbr. 1. gr. laga nr. 70/2011, um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.
2. gr.
Heimilt er að úthluta allt að 180 lestum af óslægðum botnfiski á fiskveiðiárinu 2010/2011 sem skiptast þannig: júlí 90 tonn og ágúst 90 tonn.
Komi ekki til úthlutunar alls viðmiðunarafla júlímánaðar bætast ónýttar heimildir við viðmiðunarafla ágústmánaðar. Heimildir sem ekki hefur verið úthlutað 31. ágúst 2011 falla niður. Gegn greiðslu gjalds er heimilt að úthluta aflaheimildum á skip sem leyfi hefur til frístundaveiða, skv. 2. tl. 4. mgr. 6. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.
Fiskistofa annast úthlutun aflaheimilda samkvæmt reglugerð þessari og skal hverju skipi úthlutað að hámarki 2 lestum hverju sinni. Fiskistofa skal afgreiða umsóknir þannig að umsóknir sem berast fyrir kl. 16 hvern virkan dag skulu afgreiddar næsta virka dag. Berist umsókn eftir kl. 16 ber að telja hana til umsókna næsta dags. Ef aflaheimildir sem til ráðstöfunar eru nægja ekki til úthlutunar í samræmi við umsóknir þess dags skal umbeðið magn, sem fram kemur í umsóknum, lækkað hlutfallslega.
Verð á aflaheimildum skal vera 80% af meðalverði í viðskiptum með aflamark, sem birt er á vef Fiskistofu, í lok dags daginn áður en umsókn berst Fiskistofu og skal það greitt Fiskistofu fyrir úthlutun. Hafi viðskipti með aflamark ekki átt sér stað síðasta virka dag áður en umsókn barst Fiskistofu skal miða við þann dag sem viðskipti fóru síðast fram fyrir þann tíma. Hafi gjald ekki verið greitt innan sjö daga frá því að umsókn barst Fiskistofu fellur réttur útgerðar til úthlutunar á grundvelli umsóknarinnar niður.
3. gr.
Aflaheimildir sem úthlutað er samkvæmt reglugerð þessari er einungis heimilt að nýta til frístundaveiða og eru þær framseljanlegar á milli frístundafiskiskipa.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 466, 4. maí 2011, um sérstaka úthlutun aflaheimilda til frístundafiskiskipa með síðari breytingum.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 1. júlí 2011.
F. h. r.
Jóhann Guðmundsson.
Þórhallur Ottesen.