1. gr.
Við reglugerðina bætist ákvæði til bráðabirgða svohljóðandi:
Strandveiðar í ágústmánuði skulu eigi hefjast fyrr en 4. ágúst.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæði I til bráðabirgða í lögum nr. 66/2009, um breytingu á lögum nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 28. júlí 2009.
Jón Bjarnason.
Sigurgeir Þorgeirsson.