1. gr.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 162/2007, frá 19. febrúar 2007 og reglugerð ráðsins (EB) nr. 885/2004, sem vísað er til í XIV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt, annars vegar með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 106/2007, frá 29. september 2007 og hins vegar með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 107/2005, frá 9. júlí 2005, skulu öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af reglugerð þessari, II. viðauka samningsins, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans.
2. gr.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 162/2007 og reglugerð ráðsins (EB) nr. 885/2004 eru birtar sem fylgiskjöl við reglugerð þessa.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 24. nóvember 2008.
F. h. r.
Sigurgeir Þorgeirsson.
Baldur P. Erlingsson.
Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)