Í 2. gr. c-lið, d-lið og n-lið fellur niður tilvísun í 1. janúar 1999 og í staðinn kemur 1. janúar 2001.
Við 3. mgr. 5. gr. bætist eftirfarandi setning:
Svo á einnig við um búnað sem talinn er upp sem "nýr liður" undir dálknum "heiti" í viðauka A.1.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 4. mgr. 1. gr. laga nr. 35/1993, um eftirlit með skipum, sbr. 4. gr. laga nr. 62/1993 og með hliðsjón af tilskipun ráðsins 2001/53/EB frá 10. júlí 2001 um breytingu á tilskipun 96/98/EB frá 20. desember 1996, um búnað um borð í skipum sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun nr. 6/2002.
Reglugerð þessi öðlast gildi 1. maí 2002.