Samgönguráðuneyti

179/1975

Reglugerð um breytingu á hafnarreglugerð fyrir Siglufjarðarkaupstað. nr. 111, 10. ágúst 1956. - Brottfallin

REGLUGERР

um breytingu á hafnarreglugerð fyrir Siglufjarðarkaupstað.

nr. 111, 10. ágúst 1956. 

1. gr.

Yfirskrift VII. kafla orðist þannig:

 

Um gjöld til hafnarinnar. 

2. gr.

22. gr. orðist þannig: Gjöld til hafnarsjóðs skulu innheimt samkvæmt gjaldskrá, er hafnarstjórn semur og samgönguráðuneytið staðfestir.

 

3. gr.

3. mgr. 15. gr. og greinar nr 23-36 falla niður og breytist töluröð eftirfarandi greina og kafla í samræmi við það.

 

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt hafnalögum, nr. 45 24. apríl 1973, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.

 

Samgönguráðuneytið, 25. apríl 1975.

 

Halldór E. Sigurðsson.

Kristinn Gunnarsson.

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica