340/2013
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 206/2007 um viðvarandi lofthæfi loftfara og flugtæknilegra framleiðsluvara, hluta og búnaðar og um samþykki fyrir viðhaldsstöðvum og starfsfólki á þessu sviði. - Brottfallin
Stofnreglugerð:
Felld brott með:
1. gr.
3. gr. orðist svo ásamt fyrirsögn:
Aðlögunarfrestur.
Þrátt fyrir ákvæði 6. gr. frestast gildistaka:
a)
|
ákvæða í I. viðauka (M-hluta) í fylgiskjali I, að því er varðar loftför, sem ekki eru notuð í flutningaflugi, til 28. september 2009;
|
b)
|
eftirfarandi ákvæða, þar sem fram koma kröfur um að fara eigi eftir III. viðauka (66. hluta), að því er varðar loftför, sem eru ekki notuð í flutningaflugi, að undanskildum stórum loftförum, til 28. september 2010:
|
|
- g-lið M.A.606 og 2. lið b-liðar M.A.801 við I. viðauka (M-hluta) í fylgiskjali I;
|
|
- g- og h-lið 145.A.30 við II. viðauka (145. hluta) í fylgiskjali I.
|
Að því er varðar loftför, sem eru ekki notuð í flutningaflugi, skulu öll lofthæfistaðfestingarvottorð eða sambærileg skjöl, sem gefin eru út í samræmi við almennar reglur um lofthæfi og voru í gildi 28. september 2008, vera í gildi uns gildistími þeirra er útrunninn eða til 28. september 2009, hvort sem gerist fyrst. Þegar gildistími lofthæfistaðfestingarvottorðs er útrunninn er Flugmálastjórn Íslands heimilt að gefa það aftur út, eða sambærilegt skjal, tvisvar sinnum, til eins árs í senn, þó ekki lengur en til 28. september 2011. Frekari endurútgáfa eða framlenging er ekki leyfileg.
2. gr.
Við 5. gr. bætast eftirfarandi töluliðir:
-
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 376/2007 frá 30. mars 2007 um breytingu á reglugerð nr. 2042/2003 um viðvarandi lofthæfi loftfara og flugtæknilegra framleiðsluvara, hluta og búnaðar og um samþykki fyrir viðhaldsstöðvum og starfsfólki á þessu sviði, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á XIII. viðauka við EES-samninginn nr. 90/2007 frá 6. júlí 2007. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 67, 2. desember 2010, bls. 561.
-
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1056/2008 frá 27. október 2008 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 2042/2003 um áframhaldandi lofthæfi loftfara og annarra framleiðsluvara, hluta og búnaðar til flugs og um samþykki fyrir fyrirtækjum og starfsfólki á þessu sviði, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á XIII. viðauka við EES-samninginn nr. 70/2009 frá 29. maí 2009. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 54, 15. október 2009, bls. 46.
-
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 127/2010 frá 5. febrúar 2010 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 2042/2003 um áframhaldandi lofthæfi loftfara og annarra framleiðsluvara, hluta og búnaðar til flugs og um samþykki fyrir fyrirtækjum og starfsfólki á þessu sviði, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á XIII. viðauka við EES-samninginn nr. 140/2010 frá 10. desember 2010. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 29, 19. maí 2011, bls. 47.
-
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 962/2010 frá 26. október 2010 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 2042/2003 um áframhaldandi lofthæfi loftfara og annarra framleiðsluvara, hluta og búnaðar til flugs og um samþykki fyrir fyrirtækjum og starfsfólki á þessu sviði, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á XIII. viðauka við EES-samninginn nr. 36/2011 frá 1. apríl 2011. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 22, 14. apríl 2011, bls. 35.
-
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 593/2012 frá 5. júlí 2012 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 2042/2003 um áframhaldandi lofthæfi loftfara og annarra framleiðsluvara, hluta og búnaðar til flugs og um samþykki fyrir fyrirtækjum og starfsfólki á þessu sviði, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á XIII. viðauka við EES-samninginn nr. 224/2012 frá 7. desember 2012. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 14, 7. mars 2013, bls. 706.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 7. mgr. 28. gr., 28. gr. a og 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.
Samhliða falla úr gildi reglugerðir nr. 1047/2007, 807/2009, 714/2010, 845/2011, 1105/2011 um breytingu á reglugerð nr. 206/2007 um viðvarandi lofthæfi loftfara og flugtæknilegra framleiðsluvara, hluta og búnaðar og um samþykki fyrir viðhaldsstöðvum og starfsfólki á þessu sviði.
Innanríkisráðuneytinu, 4. apríl 2013.
Ögmundur Jónasson.
Ragnhildur Hjaltadóttir.
Reglugerðir sem falla brott: