1. gr.
26. grein orðist þannig:
Gjöld til hafnarsjóðs skulu innheimt samkvæmt gjaldskrá, er hafnarstjórn semur og samgönguráðuneytið staðfestir.
2. gr.
Greinar nr. 26 - 47 falla niður og breytist röð eftirfarandi greina í samræmi við það.
3. gr.
1. setning 2. málsgreinar 48.greinar, sem verður 27.grein, orðist þannig: Ef samningum verður ekki við komið um skaðabætur, má ákveða þær af tveimur óvihöllum, dómkvöddum mönnum.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt hafnalögum, nr. 45 24. apríl 1973, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.
Samgönguráðuneytið, 25. apríl 1975.
Halldór E. Sigurðusson.
Kristinn Gunnarsson.