549/2021
Reglugerð um breytingu á reglugerð um flutning á hættulegum farmi á landi, nr. 1077/2010, með síðari breytingum.
1. gr.
Við 2. mgr. 38. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður, svohljóðandi:
- Framseld tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2020/1833/ESB frá 2. október 2020 um breytingu á viðaukunum við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2008/68/EB að því er varðar aðlögun þeirra að framförum á sviði vísinda og tækni, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 61/2021 frá 5. febrúar 2021 um breytingu á viðauka XIII við EES-samninginn, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 22, frá 25. mars 2021, bls. 635-636.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 4. mgr. 69. gr. og 4. mgr. 81. gr. umferðarlaga nr. 77/2019, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 29. apríl 2021.
F. h. r.
Ólafur Kr. Hjörleifsson.
Ástríður Scheving Thorsteinsson.