1. gr.
2. gr. orðist svo:
Starfsgreinaráð eru skipuð í eftirtöldum starfsgreinaflokkum:
a) |
bygginga- og mannvirkjagreinum, |
b) |
farartækja- og flutningsgreinum, |
c) |
heilbrigðis- og félagsgreinum, |
d) |
hönnunar- og handverksgreinum, |
e) |
matvæla-, veitinga- og ferðaþjónustugreinum, |
f) |
málm-, véltækni- og framleiðslugreinum, |
g) |
rafiðngreinum, |
h) |
sjávarútvegs- og siglingagreinum, |
i) |
skrifstofu- og verslunargreinum, |
j) |
snyrtigreinum, |
k) |
uppeldis- og tómstundagreinum, |
l) |
upplýsinga- og fjölmiðlagreinum. |
2. gr.
5. gr. orðist svo:
Fulltrúar fyrir samtök vinnumarkaðarins í starfsgreinaráðum eru tilnefndir sem hér segir:
Starfsgreinaráð bygginga- og mannvirkjagreina: 2 fulltrúar tilnefndir af Samiðn, 1 fulltrúi tilnefndur af Starfsgreinasambandi Íslands, 1 fulltrúi tilnefndur sameiginlega af Múrarasambandi Íslands, Sveinafélagi pípulagningamanna og Veggfóðrarafélagi Reykjavíkur og fjórir fulltrúar tilnefndir af Samtökum atvinnulífsins.
Starfsgreinaráð farartækja- og flutningsgreina: 2 fulltrúar tilnefndir af Samiðn, 1 fulltrúi tilnefndur af Starfsgreinasambandi Íslands, 1 fulltrúi tilnefndur af Samtökum atvinnulífsins og tveir fulltrúar tilnefndir af Bílgreinasambandinu.
Starfsgreinaráð heilbrigðis- og félagsgreina: 2 fulltrúar tilnefndir af Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja, 1 fulltrúi tilnefndur af Starfsgreinasambandi Íslands, 1 fulltrúi tilnefndur af Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Auk þeirra tilnefnir félagsmálaráðuneytið 1 fulltrúa og heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið 1 fulltrúa.
Starfsgreinaráð hönnunar- og handverksgreina: 1 fulltrúi tilnefndur af Alþýðusambandi Íslands, 1 fulltrúi tilnefndur af Form Ísland og 3 fulltrúar tilnefndir af Samtökum atvinnulífsins. Auk þeirra tilnefnir menntamálaráðherra 1 fulltrúa.
Starfsgreinaráð matvæla-, veitinga- og ferðaþjónustugreina: 2 fulltrúar tilnefndir af Matvís, 1 fulltrúi tilnefndur af Landssambandi íslenskra verslunarmanna, 1 fulltrúi tilnefndur af Starfsgreinasambandi Íslands og 4 fulltrúar tilnefndir af Samtökum atvinnulífsins.
Starfsgreinaráð málm-, véltækni- og framleiðslugreina: 2 fulltrúar tilnefndir af Samiðn, 1 fulltrúi tilnefndur af Starfsgreinasambandi Íslands og 3 fulltrúar tilnefndir af Samtökum atvinnulífsins.
Starfsgreinaráð rafiðngreina: 3 fulltrúar tilnefndir af Rafiðnaðarsambandi Íslands og 3 fulltrúar tilnefndir af Samtökum atvinnurekenda í raf- og tölvuiðnaði.
Starfsgreinaráð sjávarútvegs- og siglingagreina: 1 fulltrúi tilnefndur af Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands, 1 fulltrúi tilnefndur af Sjómannasambandi Íslands, 1 fulltrúi tilnefndur af Starfsgreinasambandi Íslands, 1 fulltrúi tilnefndur af Vélstjórafélagi Íslands, 1 fulltrúi tilnefndur af Sambandi íslenskra kaupskipaútgerða og 3 fulltrúar tilnefndir af Samtökum atvinnulífsins.
Starfsgreinaráð skrifstofu- og verslunargreina: 1 fulltrúi tilnefndur af Landssambandi íslenskra verslunarmanna, 1 fulltrúi tilnefndur af Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja, 1 fulltrúi tilnefndur af Sambandi íslenskra bankamanna og 3 fulltrúar tilnefndir af Samtökum atvinnulífsins.
Starfsgreinaráð snyrtigreina: 1 fulltrúi tilnefndur af Samiðn, 1 fulltrúi tilnefndur af Samtökum atvinnulífsins og 2 fulltrúar tilnefndir af Félagi íslenskra snyrtifræðinga.
Starfsgreinaráð uppeldis- og tómstundagreina: 2 fulltrúar tilnefndir af Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja, 1 fulltrúi tilnefndur af Starfsgreinasambandi Íslands, 2 fulltrúar tilnefndir af Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Auk þeirra tilnefnir félagsmálaráðuneytið 1 fulltrúa.
Starfsgreinaráð upplýsinga- og fjölmiðlagreina: 1 fulltrúi tilnefndur af Blaðamannafélagi Íslands, 1 fulltrúi tilnefndur af Félagi bókagerðarmanna, 1 fulltrúi tilnefndur af Félagi grafískra teiknara og 3 fulltrúar tilnefndir af Samtökum atvinnulífsins.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 28. gr. laga um framhaldsskóla, nr. 80/1996, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.
Menntamálaráðuneytinu, 18. ágúst 2006.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.
Guðmundur Árnason.