1. gr.
4. gr. orðist svo:
Þessi eru almenn inntökuskilyrði:
1. Til þess að fá inngöngu í 1. bekk þarf umsækjandi að leggja fram vottorð um 24 mánaða hásetatíma eftir 15 ára aldur á skipi yfir 12 rúmlestir. Til þess að fá inngöngu í deild þá, er býr menn undir próf skipstjóraefna á varðskipum ríkisins, skal umsækjandi hafa lokið 3. stigs prófi með eigi lægri en fyrstu meðaleinkunn.
Skólastjóra er þó heimilt að veita efnilegum nemendum undanþágu frá þessu skilyrði, ef sérstaklega stendur á, svo sem langur reynslutími sem stýrimaður á varðskipum ríkisins.
2. Að hafa þá sjón, heyrn og málfæri, sem yfirmannsstaða krefst, eins og tilskilið er í reglugerð um sjón og heyrn skipstjórnarmanna.
3. Að kunna sund.
4. Að vera ekki haldinn neinum næmum sjúkdómi eða líkamskvilla, er orðið geti öðrum nemendum skaðvænn.
5. Að leggja fram sakarvottorð.
6. Að hafa lokið gagnfræðaprófi eða hliðstæðu prófi.
Starfrækja skal undirbúningsdeild fyrir þá sem fullnægja ekki framangreindu skilyrði 6. liðar. Inntökuskilyrði í deildina skulu vera 17 mánaða hásetatími eftir 15 ára aldur á skipi yfir 12 rúmlestir auk framangreindra almennra inntökuskilyrði, 2, 4 og 5.
Starfstími deildarinnar skal vera minnst 5 mánuðir.
Nú sannar umsækjandi með prófi að hann hafi þá kunnáttu sem undirbúningsdeildin veitir og á hann þá rétt á setu í 1. bekk að fullnægðum öðrum inntökuskilyrðum.
Heimilt er að halda inntökupróf upp í 1. bekk að haustinu, áður en kennsla hefst, í stærðfræði, eðlisfræði, íslensku, ensku og dönsku.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt lögum um Stýrimannaskólann í Reykjavík nr. 22, 3. maí 1972 öðlast þegar gildi.
Menntamálaráðuneytið, 15. maí 1992.
Ólafur G. Einarsson.
Hörður Lárusson.