Matvælaráðuneyti

1304/2024

Reglugerð um (21.) breytingu á reglugerð nr. 41/2012 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 999/2001 um setningu reglna um forvarnir gegn, eftirlit með og útrýmingu tiltekinna tegunda smitandi heilahrörnunar.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 65. tölul., svohljóðandi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/877 frá 21. mars 2024 um breytingu á VIII. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 999/2001 að því er varðar sam­þykki fyrir þeirri stöðu Tékklands að áhætta í tengslum við dæmigerða riðuveiki sé óveruleg. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 185/2024 frá 23. september 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 83, frá 14. nóvember 2024, bls. 335.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum um matvæli, nr. 93/1995, og lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 14. nóvember 2024.

 

Bjarni Benediktsson.

Svava Pétursdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica