837/2014
Reglugerð um (21.) breytingu á reglugerð nr. 653/2001 um hámark dýralyfjaleifa í sláturafurðum, eggjum og mjólk. - Brottfallin
Stofnreglugerð:
Felld brott með:
1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sem vísað er til í XIII. kafla II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirfarandi ESB-gerðir gildi hér á landi:
-
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1056/2013 frá 29. október 2013 um breytingu á viðaukanum við reglugerð (ESB) nr. 37/2010 um lyfjafræðilega virk efni og flokkun þeirra að því er varðar hámarksgildi leifa í matvælum úr dýraríkinu í tengslum við efnið neómýsín. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 80/2014, frá 17. maí 2014. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 36, frá 12. júní 2014, bls. 115.
-
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1057/2013 frá 29. október 2013 um breytingu á viðaukanum við reglugerð (ESB) nr. 37/2010 um lyfjafræðilega virk efni og flokkun þeirra að því er varðar hámarksgildi leifa í matvælum úr dýraríkinu í tengslum við efnið mangankarbónat. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 80/2014, frá 17. maí 2014. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 36, frá 12. júní 2014, bls. 118.
-
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1235/2013 frá 2. desember 2013 um breytingu á viðaukanum við reglugerð (ESB) nr. 37/2010 um lyfjafræðilega virk efni og flokkun þeirra að því er varðar hámarksgildi leifa í matvælum úr dýraríkinu í tengslum við efnið díklasúríl. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 81/2014, frá 17. maí 2014. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 36, frá 12. júní 2014, bls. 512.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 96/1997 um slátrun og sláturafurðir, lögum nr. 66/1998 um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, lögum nr. 93/1995 um matvæli og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, með síðari breytingum.
3. gr.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 9. september 2014.
|
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
|
Ólafur Friðriksson.
|
Eggert Ólafsson.