1. gr.
3. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Litir forprentaðra plötumerkja í sauðfé og geitfé skulu vera í samræmi við skráningu Matvælastofnunar í tölvuskráningarkerfinu MARK.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 18. gr. reglugerðarinnar:
a) |
2. mgr. orðast svo: Lömb og kið skal merkja með plötumerki í lit skv. 6. gr. a.m.k. í annað eyrað. |
|
b) |
3. mgr. fellur brott. |
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 17. gr. laga nr. 103/2002, um búfjárhald o.fl., lögum nr. 66/1998, um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr og lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, ásamt síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 27. október 2010.
F. h. r.
Sigurgeir Þorgeirsson.
Arnór Snæbjörnsson.