1. gr.
Markmið.
Markmið reglugerðar þessarar er að tryggja rekjanleika búfjárafurða frá upprunahjörð og/eða fæðingu viðkomandi dýrs til sölu afurða og skapa með því grundvöll að markvissu matvæla- og búfjáreftirliti, eftirliti með flutningum dýra, skráningu búfjársjúkdóma og meðhöndlun þeirra.
2. gr.
Gildissvið.
Reglugerð þessi gildir um merkingar á búfé og skráningar upplýsinga um búfé þ.m.t. í gagnagrunna. Til viðbótar ber að uppfylla reglugerðir um merkingar einstakra búfjártegunda.
3. gr.
Orðskýringar.
4. gr.
Merkingarskylda.
Umráðamaður búfjár ber ábyrgð á að allt búfé sem alið er á hans vegum sé merkt innan tilskilins tíma frá fæðingu með viðurkenndu merki, sem fylgja á dýrinu alla ævi þess, sbr. ákvæði fyrir einstakar búfjártegundir.
Óheimilt er að breyta eða fjarlægja einstaklingsnúmer/merki dýrs eða eldishóps, nema það sé orðið ólæsilegt eða skemmt. Missi dýr merki, glatist það, eða það verði ólæsilegt, skal umráðamaður endurmerkja dýrið með merki sem tryggir rekjanleika þess við fyrra merki og hjarðbók.
Óheimilt er að nota númer sem þegar eru í notkun innan hjarðarinnar. Líða skulu 10 ár milli notkunar á sama einstaklingsnúmeri innan hjarðar.
5. gr.
Kröfur um gerð plötumerkja.
Plötumerki skulu þannig gerð að ekki sé unnt að nota þau aftur eftir að þau hafa verið fjarlægð. Upplýsingar á merkjum skal prenta fyrirfram með skýru letri sem ekki er hægt að breyta. Plötumerki til notkunar samkvæmt reglugerð þessari skulu viðurkennd af Matvælastofnun.
6. gr.
Merkingar nautgripa.
Nautgripir skulu merktir með forprentuðu plötumerki í bæði eyru innan 20 daga frá fæðingu. Á merkjunum skulu koma fram eftirfarandi upplýsingar:
Kálfar, sem slátrað er innan 20 daga frá fæðingu, skulu fluttir beint frá búinu í sláturhús og auðkenndir þannig að númer móður sé gefið upp við slátrun.
Heimilt er að nota eigin valnúmerakerfi fyrir nautgripi til viðbótar forprentuðum upplýsingum.
7. gr.
Merkingar svína.
Öll svín skulu merkt með forprentuðu plötumerki í eyra. Á merkjunum skulu koma fram eftirfarandi upplýsingar:
Svínin skulu merkt með merki áður en þau fara frá fæðingarbýli eða þegar þau eru, eftir fráfærur, meðhöndluð með lyfjum með afurðarnýtingarfresti.
8. gr.
Undanþága til merkingar grísa.
Matvælastofnun er heimilt að veita undanþágu frá því að merkja grísi til slátrunar með merki að uppfylltum öllum eftirfarandi skilyrðum:
Framleiðanda og sláturleyfishafa ber að sýna fram á að ofangreindum skilyrðum sé fullnægt til að undanþága sé gefin til að merkja ekki sláturgrísi.
Undanþága þessi gildir ekki um grísi sem sendir eru í sláturhús innan 30 daga frá fráfærum.
9. gr.
Merkingar sauðfjár og geita.
Ásetningsfé skal merkja með forprentuðu plötumerki í eyra. Á merkjunum skulu koma fram eftirfarandi upplýsingar:
Lömb og kið skal merkja með forprentuðu merki (lamba-/kiðamerki) innan 30 daga frá fæðingu. Á merkjunum skal koma fram IS-einkennisstafir Íslands, bæjarnúmer skv. landsmarkaskrá og lambanúmer innan hjarðar. Endurnýting slíkra merkja er óheimil, nema með leyfi Matvælastofnunar.
Heimilt er að notast við merki án IS-einkennisstafa Íslands en gripurinn skal þá endurmerktur við 6 mánaða aldur eða fyrr í samræmi við 1. mgr. 9. gr.
Litir forprentaðra plötumerkja í sauðfé og geitfé skulu vera í samræmi við skráningu Matvælastofnunar í miðlægan gagnagrunn skv. 12. gr.
10. gr.
Merkingar alifugla.
Umráðamaður búfjár á útungunarstöð skal auðkenna hvern alifuglahóp með sérstöku rekjanleikanúmeri.
Húsnúmer í rekjanleikanúmeri alifuglahóps breytist, við flutning, eftir því í hvaða húsi hópurinn er haldinn.
Ekki þarf að auðkenna alifuglahóp með rekjanleikanúmeri sem er eingöngu haldinn til nýtingar afurða til einkaneyslu.
11. gr.
Merkingar hrossa.
Öll hross skal örmerkja. Öll ásetningsfolöld skulu örmerkt við hlið móður fyrir 10 mánaða aldur. Folöld, sem slátrað er fyrir 10 mánaða aldur, skulu auðkennd þannig að fæðingarnúmer móður sé gefið upp við slátrun.
12. gr.
Hjarðbók.
Umráðamaður búfjár er ábyrgur fyrir skráningu upplýsinga um öll dýr hjarðar sinnar í sérstaka hjarðbók, í miðlægan gagnagrunn ef hann er til staðar en annars á skýrsluform, sem Bændasamtök Íslands láta í té og viðurkennt er af Matvælastofnun. Matvælastofnun ákveður og setur reglur um vistun hjarðbóka í formi miðlægs gagnagrunns, reglur um aðgengi, skráningar o.fl. Matvælastofnun hefur eftirlit með skráningu upplýsinga í kerfið.
Eftirfarandi upplýsingar um sauðfé, geitfé og nautgripi skal skrá í rafræna hjarðbók:
Eftirfarandi upplýsingar um svín skal skrá í hjarðbók:
Þegar nýtt svín kemur inn í hjörð skal skrá einstaklingsnúmer þess.
Eftirfarandi upplýsingar um hross skal skrá í hjarðbók hrossa (WorldFeng):
Eftirfarandi upplýsingar skal skrá í hjarðbók alifugla:
13. gr.
Heilsukort.
Umráðamaður búfjár er ábyrgur fyrir að sjúkdómar í búfé hans og meðhöndlun þeirra sé skráð, sem og fyrirbyggjandi aðgerðir. Upplýsingar skulu skráðar á eyðublöð sem Matvælastofnun viðurkennir eða í tölvuskrár. Við flutning dýra milli hjarða skal afrit heilsukorts fylgja dýrinu til móttakanda.
14. gr.
Varðveisla hjarðbókar og heilsukorta.
Hjarðbækur og heilsukort skulu umráðamenn búfjár varðveita í a.m.k. 10 ár. Sama gildir þótt framleiðslu sé hætt. Umráðamaður búfjár skal, að ósk Matvælastofnunar, veita allar umbeðnar upplýsingar um uppruna, númer og eftir því sem við á, áfangastað þeirra dýra sem hann hefur átt, alið, selt á fæti eða slátrað.
15. gr.
Ábyrgð sláturhúsa og flutningsaðila.
Flutningsaðilum er óheimilt að taka til flutnings ómerkta nautgripi, sauðfé/geitfé, hross og svín sbr. þó undanþágu í 8. gr. þessarar reglugerðar.
Sláturhúsum er óheimilt að taka til sölu og vinnslu búfé sem ekki uppfyllir ákvæði reglugerðar þessarar um merkingar.
Berist ómerkt dýr í sláturrétt sláturhúss skal það tilkynnt dýralækni sláturhússins. Dýrinu skal slátrað en heilbrigðisskoðun dýralæknis frestað eða tryggt við heilbrigðisskoðun dýralæknis og stimplun að afurðirnar fari ekki til manneldis. Matvælastofnun getur veitt undanþágu frá þessu ákvæði ef viðhlítandi skýringar koma fram á því af hverju dýrið er ómerkt og hægt er að sýna fram á uppruna þess m.a. hvaða einstaklingsnúmer dýrið hafði og skráningu í hjarðbók. Það er á ábyrgð sláturhúss og/eða eiganda búfjár að sýna fram á uppruna og veita skýringar sem og óska eftir undanþágu þessari fyrir heilbrigðisskoðun dýralæknis.
Ómerkt lömb sem koma fyrir í réttum er heimilt að merkja viðkomandi sveitarfélagi með rauðu merki og senda í sláturhús en afurðir þeirra mega ekki fara til manneldis.
Innan 10 daga frá slátrun grips skal umsjónarmaður sláturhúss tilkynna Matvælastofnun á tölvutæku formi, hvaða dag slátrun fór fram, númer dýrs eða dýra, fjölda og uppruna þeirra samkvæmt þeim reglum sem gilda um skráningu og móttöku gagna í hjarðbækur.
Um merkingar á afurðum og rekjanleika þeirra til einstaklingsmerkinga eða hópmerkinga dýra fer samkvæmt lögum nr. 93/1995 um matvæli og reglugerðum settum samkvæmt þeim.
16. gr.
Ómerkt og óskráð dýr.
Komi í ljós að merkingum og skráningum dýra í tiltekinni hjörð er ábótavant skal Matvælastofnun stöðvar allan flutning dýra frá hjörðinni, þ.m.t. flutning á afrétt.
Sinni umráðamaður búfjár ekki tilmælum Matvælastofnunar um að merkja búfé í hans umsjá, innan tímafrests sem Matvælastofnun ákveður, getur Matvælastofnun fyrirskipað merkingu búfjárins á kostnað eiganda.
17. gr.
Skráningarskylda.
Umráðamaður búfjár skal skrá upplýsingar í samræmi við ákvæði viðauka I við reglugerð þessa.
Allir umráðamenn búfjár skulu vera skráðir í tölvuskráningarkerfi fyrir merkingar búfjár.
18. gr.
Eftirlit.
Eftirlit með framkvæmd ákvæða reglugerðar þessarar er í höndum Matvælastofnunar.
19. gr.
Kostnaður.
Kostnað sem hlýst af framkvæmd ákvæða reglugerðar þessarar bera eigendur búfjár, þó bera sláturleyfishafar þann kostnað sem hlýst af ákvæðum 15. gr.
20. gr.
Refsiákvæði.
Brot gegn ákvæðum reglugerðar þessarar varða viðurlögum skv. 18. gr. laga nr. 103/2002, um búfjárhald o.fl., 19. gr. laga nr. 66/1998, um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr og 30. gr. laga nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim og XI. og XII. kafla laga nr. 93/1995 um matvæli.
21. gr.
Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 17. gr. laga nr. 103/2002, um búfjárhald o.fl., lögum nr. 66/1998, um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr og lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim og 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli. Reglugerð þessi er auk þess sett með hliðsjón af tilskipun ráðsins nr. 2008/71/EB. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 289/2005 um merkingar búfjár.
Ákvæði til bráðabirgða.
Gildistaka fyrir nautgripi, sauðfé og geitfé.
Ekki er krafist endurmerkingar á gripum sem eru fæddir fyrir 11. nóvember 2011 sem skráðir eru í kynbótaskýrsluhaldskerfi Bændasamtaka Íslands og eru einstaklingsmerktir á fullnægjandi hátt. Ef slíkt merki týnist úr grip skal hann merktur skv. ákvæðum þessarar reglugerðar.
Gildistaka fyrir svín.
Ákvæði um merkingar grísa tekur gildi 1. janúar 2013.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 30. október 2012.
F. h. r.
Sigurgeir Þorgeirsson.
Baldur P. Erlingsson.
VIÐAUKI
(sjá PDF-skjal)