1. gr.
Markmið.
1. Markmiðið með reglugerð þessari er að bæta öryggi í flugi með því að tryggja tilkynningu, söfnun, geymslu, verndun, skipti á, miðlun og greiningu viðeigandi öryggisupplýsinga um almenningsflug.
Þessi reglugerð tryggir:
a) | að gripið sé tímanlega til öryggisaðgerða, eftir því sem við á, á grundvelli greiningar á upplýsingum sem hefur verið safnað, | |
b) | að aðgengi að öryggisupplýsingum sé viðhaldið með því að innleiða reglur um trúnaðarkvöð og viðeigandi notkun upplýsinga og með samræmdri og aukinni vernd fyrir tilkynnendur og einstaklinga, sem tilgreindir eru í tilkynningum um atvik, og | |
c) | að áhætta í tengslum við flugöryggi sé tekin til athugunar og að brugðist sé við henni á Evrópska efnahagssvæðinu og á landsvísu. |
2. Meginmarkmiðið með því að tilkynna atvik er að koma í veg fyrir slys og flugatvik, ekki að skipta sök eða ábyrgð.
2. gr.
Efni og gildissvið.
1. Í þessari reglugerð er mælt fyrir um reglur:
a) | um tilkynningu atvika, sem stofna eða, ef ekki er gripið til aðgerða eða gerðar úrbætur, gætu stofnað í hættu loftfari, farþegum þess eða öðrum einstaklingum, tækjabúnaði eða uppsettum búnaði, sem hefur áhrif á starfrækslu loftfars, og tilkynning annarra viðeigandi öryggistengdra upplýsinga í þessu samhengi, | |
b) | um greiningu og framhaldsaðgerðir að því er varðar tilkynnt atvik og aðrar öryggistengdar upplýsingar, | |
c) | um vernd fagfólks í flugi, | |
d) | um viðeigandi notkun öryggisupplýsinga sem hefur verið safnað, | |
e) | um skráningu upplýsinga í miðlæga, evrópska gagnasafnið og | |
f) | um nafnleynd við miðlun upplýsinga til hagsmunaaðila í þeim tilgangi að láta slíkum aðilum í té upplýsingarnar, sem þeir þurfa á að halda, til að auka flugöryggi. |
2. Þessi reglugerð gildir um atvik og aðrar öryggistengdar upplýsingar þar sem almenningsloftför eiga í hlut.
3. Reglugerð þessi gildir einnig fyrir loftför sem um getur í II. viðauka við reglugerð (EB) nr. 216/2008.
3. gr.
Lögbært stjórnvald.
Samgöngustofa er lögbært stjórnvald samkvæmt reglugerð þessari og skulu atvik í almenningsflugi tilkynnt Samgöngustofu í samræmi við ákvæði reglugerðar þessarar.
4. gr.
Refsiákvæði.
Brot gegn ákvæðum reglugerðar þessarar varða refsingu samkvæmt 141. gr. laga nr. 60/1998, um loftferðir, með síðari breytingum.
5. gr.
Innleiðing EES-gerða.
Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi eftirfarandi EES-gerðir, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka samningsins og bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans:
Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 376/2014 frá 3. apríl 2014 um tilkynningu atvika í almenningsflugi sem og greiningu á og eftirfylgni með þeim, um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 996/2010 og um niðurfellingu tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2003/42/EB og reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1321/2007 og (EB) nr. 1330/2007, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 275/2015 frá 30. október 2015. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 376/2014 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 74 frá 10. desember 2015, bls. 491-516.
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1018 frá 29. júní 2015 um skrá þar sem flokkuð eru atvik í almenningsflugi sem falla undir tilkynningarskyldu samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 376/2014, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 276/2015 frá 30. október 2015. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1018 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 74 frá 10. desember 2015, bls. 517-533.
6. gr.
Lagastoð og gildistaka.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 47. gr. og 47. gr. a, sbr. 145. gr. laga nr. 60/1998, um loftferðir, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 53/2006 um tilkynningarskyldu flugslysa, alvarlegra flugatvika og atvika, með síðari breytingum.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 12. október 2017.
F. h. r.
Sigurbergur Björnsson.
Björn Freyr Björnsson.